R É T T U R 33 munar. Ég veit líka, að ekkert getur friðþægt fyrir þjáningar okk- ar hér, nema sigur. En ef við sigrum, munum við að lokum, hver og einn ,geta lifað sínu lífi. En allir þeir, sem afneitað hafa bræðralagi mannana, munu finna að þeir eru einir, á kvöldin munu þeir koma heim í herbergi þar sem þeir verða einnig einir, og fyrirlitning og kæruleysi allra mun fylgja þeim, elta þá alstaðar eins og hundur. Og þeir munu fara og finna sér konu til að búa með af því það er erfitt að lifa einn, og þau munu sofa saman og geta börn, sem einnig verða óvelkomin, og að lokum grotna niður eins og sæðið sem féll í grýtta jörð. Einnig nú á þessari stundu, ef úti er eins dimmt og hér. sitja og liggja víða í húsum vansælir menn. Því ástin þýðir val, og sá á enga völ sem engu getur fórnað. En frá þessum blindu mönnum í París og allt til kínversku sovét- anna, í öllum löndum heims, eru á þessari stundu nokkrir menn, sem hugsa til okkar eins og við værum börn þeirra dáin. Eg hef séð. . . . Ég verð að fara aftur í tímann.... Það er erfitt að tala í niða- myrkri. I tuttugu ár var faðir minn einn mesti baráttumaður verkalýðsins í Gelsenkirchen. Þá dó móðir mín. Hann fór að drekka. A kvöldin kom hann á fundina dauðadrukkinn, líkt og fólk sem hefur verið að dauða komið úr hungri, fer á fætur um miðjar nætur til að ná sér í brauð og fela undir koddanum. Hann kallaði fram í, hagaði sér eins og fífl. . . . En stundum sat hann steinþegjandi aftast í salnum. Hinir þekktu hann allir og þegar hann kom inn litu þeir til hans hryggir og eyðilagðir, en þeir létu hann aldrei út. Víst eru það leiðindi," sagði félagi einn háðslega, vissi ekki að ég stóð bak við hann.... Það var faðir minn, sem gaf mér fyrstu pólitísku skólunina, löngu áður en þetta var, auðvitað.... Þegar ég fór að halda ræður, reyndi hann að hætta að drekka, en það stóð ekki lengi. Framíköll hans voru eins og högg neðan við beltisstað, en ég varð að hafa það gegn- um heilar ræður. Það var þá sem mér varð ljóst hve fast tengdur ég var byltingunni. Hann vann í nárnu. Dag nokkurn er hann var þar niðri með tvö- hundruð vinnufélögum varð sprenging. Félagarnir úr björgunar- 3