42 RÉTTUR samkomulagi þessu. Hagsmunir hins vinnandi fólks við sjóinn og í sveitinni eru tengdir saman traustum böndum. Minnki tekjur laun- þega, kemur það engu síður niður á bóndanum, verðið á afurðum hans lækkar, Iaun hans lækka. Batni hagur fólksins í bæjunum, auk- ist atvinnan, hækki kaupið, nýtur bóndinn þess engu síður, verðið á búsafurðum hans hækkar, kaupið sem hann fær fyrir erfiði sitt hækkar. Rökrétt ályktun: Bændum og verkamönnum ber að bindast traustum samtökum og vináttuböndum sín á milli til þess að vinna að sameiginlegum hagsmunum beggja. Allmikilli gagnrýni sætti nefndin fyrir störf sín, enda hafði hún skamman tíma til starfa og viðurkenndi sjálf að margt hefði þurft meiri athugunar við. Hitt fór að vonum, að öfl þau, sem hafa pólit- ískan hag af því að æsa til fjandskapar milli verkamanna og bænda risu öndverð gegn samkomulaginu. Kauplækkun við sjávarsíðuna hefur verið helzta áhugamál Framsóknarflokksins að undanförnu. Slík kauplækkun hlyti nú að bitna á bændum, engu síður en verka- mönnum. Afstaða Framsóknarmanna er því orðin ærið erfið fyrir flokk, sem telur sig málsvara bændanna. Enda virðast þeir hafa grun- samlegan áhuga fyrir ýmsu, sem orðið gæti lil að spilla samkomu- laginu. Þeir spyrntu fast gegn því, að 6-manna nefndin fengi að halda áfram störfum til þess að endurskoða grundvöll sinn. Þeir beita sér mjög fyrir því að verð á landbúnaðarafurðum sé fært niður" með greiðslum úr ríkissjóði, þvert ofan í tillögur neytenda. Mestur styr stóð þó um þá kröfu Framsóknar, sem náði samþykki Alþingis, að greiða skyldi framleiðendum, sem landbúnað stunda, tugi milljóna í uppbætur úr ríkissjóði, vegna útfluttra afurða, og skyldi greiða þeim því hærri upphæðir af almannafé, sem þeir eru auðugri, því stærra, sem bú þeirra er. Tillaga sósíalista var aftur á móti sú, að hverjum bónda yrðu tryggðar tekjur af meðalbúi (14500 kr. á liðnu ári), en uppbætur lil stærri búanna takmörkuð- ust við afurðamagn, sem svarar til meðalbús. Alþýðuflokkurinn gerði harða hríð gegn samkomulagi 6-manna- nefndarinnar. Var ekki vandséð, að hér var um samræmdar hern- aðaraðgerðir" að ræða af hálfu forustumanna Alþýðuflokksins og Framsóknar.