R É T T U R 43 NÝ 6-MANNA NEFND Nokkru síðar fór ríkisstjórnin þess á leit við Alþýðusambandið og Búnaðarfélagið að þrír fulltrúar frá hvorum aðila yrðu til- nefndir til að ræðast við um vandamál dýrtíðarinnar og gera til- lögur. Hvorirtveggja urðu við þessum tilmælum, en stjórn Alþýðu- sambandsins tók það fram að fulltrúar hennar hefðu ekki umboð til að ræða um kauplækkun í nokkurri mynd. Þessi nýja 6-manna nefnd lét það vera sitt fyrsta verk, að ráða sérfræðinga til að rannsaka hver áhrif það mundi hafa á dýrtíðina, ef felldir yrðu nið- ur tollar á þeim vörum, sem hafa bein áhrif við útreikning vísitöl- unnar. Niðurstaðan varð sú, að vísitalan myndi lækka fljótlega um 20 stig, ef að því ráði yrði horfið, og mundi það kosta ríkissjóð 8,5 milljónir, eða því sem næst, í lækkuðum tolltekjum. Raunveru- leg verðlækkun mundi þó verða nokkru meiri, en lækkun vísitöl- unnar gæfi til kynna. Til samanburðar má geta þess, að framlög úr ríkissjóði til þess að lækka vísitöluna um 15 stig hafa verið um 16 milljónir á ári. Fulltrúar Alþýðusambandsins gerðu það nú að tillögu sinni að þessi leið yrði farin. Virtust allir vera sammála um það í fyrstu. En þar kom að fulltrúar Búnaðarfélagsins lögðu fram tillögu um lækkun á kaupi og verði landbúnaðaraíurða, og kváðu allt sam- komulag úr sögunni, ef ekki yrði á það fallizt. Hefði það lækkað vísitöluna um 34 stig. Fulltrúar Alþýðusambandsins höfnuðu þessu, en umboðsmenn Búnaðarfélagsins neituðu að fallast á lækk- un tollanna. Ekki verður þessi einkennilega framkoma þeirra manna, sem íóru með umboð Búnaðarfélagsins skýrð á annan veg en þann, að flokkar þeirra (Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn) hafi bannað þeim að fallast á þá einu tillögu, sem er í samræmi við hagsmuni umbjóðenda þeirra. Þingmenn sósíalista hafa nú lagt fram tillögu um að felldir verði niður tollar af nauðsynjavörum almennings og vörum, sem at- vinnuvegir landsmanna þarfnast til framleiðslu sinnar. Sú tillaga er nú til meðferðar í þinginu.