46 RÉTTUR að þeir hefðu bundizt samtökum um sjálfstæðismálið, skilnað við Danmörku og stofnun lýðveldis á Islandi eigi síðar en 17. júní 1944. Síðar lýsti ríkisstjórnin því yfir að hún myndi fylgja flokkunum að þessu máli og hafa samvinnu við þá. Ákveðið var að kalla sam- an reglulegt þing 10. jan. og skyldi aðalverkefni þess vera að af- greiða lýðveldisstjórnarskrána. Forsprakkar Alþýðuflokksins og hinir fáu embættismenn, sem tekið höfðu upp merki undanhaldsins í sjálfstæðismálinu voru nú mjög einangraðir og fylgislausir með þjóðinni. Hvar sem menn komu saman, voru menn á einu máli. Á fundum verkamanna, bænda fiskimanna og annars starfandi fólks í landinu heyrðust bókstaflega engar undanhaldsraddir. Undantekning var fundur í Stúdentafélagi Reykjavíkur, þar sem undanhaldslið höfuðborgarinnar var mest allt saman komið. Það voru 50 menn og þó ekki nema fjórðungur greiddra atkvæða. Þegar þing kom saman lagði ríkisstjórnin fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um niðurfellingu sambandslaganna, er skyldi bera undir þjóðaratkvæði. Ennfremur frumvarp það um lýðveld- isstjórnarskrá fyrir ísland, er stjórnarskrárnefndin hafði samið. Nefndir þær, sem fjölluðu um skilnaðar- og lýðveldismálið á þingi tóku nú að leita samstarfs við Alþýðuflokkinn. Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn féllust á að taka það ákvæði út úr stjórnarskrárfrumvarpinu, sem kveður svo á að lýðveldis- stjórnarskráin skuli taka gildi 17. júní. Hinsvegar lýstu þeir því yfir að þeir mundu eftir sem áður fylgja því fast fram að Alþingi skildi ákveða gildistöku þann dag að lokinni þjóðaratkvæðagreiðsl- unni. Sósíalistaflokkurinn mótmælti þessu mjög eindregið og lýsti því yfir að með þessu væru samtök lýðveldisflokkanna þriggja rofin og dýðveldisnefndin úr sögunni. Sýndu þeir fram á að það væri engan- veginn hættulaust að falla frá því að ákveða gildistökudaginn. I fyrsta lagi mundi slíkt hik af hálfu Alþingis gefa þeim öflum inn- lendum og erlendum, sem leggja vilja stein í götu sjálfstæðis vors, byr undir báða vængi og bjóða heim nýjum tilraunum til að þvinga