RÉTTUR 4,7 þjóöina til að slá stoínun lýðveldisins enn á írest. I öðru lagi yrði þetta til að veikja málstað íslendinga þar sem þjóðinni væri ekki gefinn kostur á að skera úr með atkvæði sínu, því atriði, sem mest hefur verið um deilt: hvenær lýðveldið skuli stofnað. Á það var einnig bent að ekki væri stætt á því fyrir AlþýSuflokksmenn að Iáta það ráða úrslitum um atkvæði sitt á þingi hvort gildistaka 17. júní væri ákveðin í frumvarpinu eða ekki, nema þeir hefðu ákveSn- ar vonir um aS stofnun lýSveldisins yrSi enn frestaS. Loks ork- aði það mjög tvímælis hvort tiltæki þetta yrði ekki frekar til að sundra þjóðinni en sameina hana, þar sem hin víðtæku samtök, sem skapazt hefðu um máliS væru rofin, og mundi þaS ala á tor- tryggni og draga úr þeim samhug og þjóSarvakningu, sem mest ríSur á til þess að ná góðum árangri í atkvæSagreiSslunni. Hins vegar gæfu þessar tilslakanir viS undanhaldsmenn enga tryggingu fyrir því að þeir héldu ekki uppteknum hætti og ynnu á móti málinu eftir sem áður. Þetta kom líka fljótt á daginn. Þrátt fyrir hátíSlegar yfirlýsing- ar flokksforustunnar um aS beita öllum blaðakostinum með lýð- veldisflokkunum, tóku blöð AlþýSuflokksins á Akureyri og IsafirSi upp hatramman áróSur gegn lýSveldisstjórnarskránni og hvöttu kjósendur til aS greiSa atkvæSi gegn henni. Ritstjóri Skutuls" á IsafirSi lét sig hafa þaS aS skora á menn aS greiða atkvæði með dönsku konungsvaldi á Islandi í nafni Jóns Sigurðssonar og Skúla Thoroddsens! Og Alþýðublaðið tók upp vörn fyrir starfsbræður sína á Akureyri og Isafirði, svo aS áróSur þessi var sýnilega í fullri sátt viS flokksforustuna. 4. maí barst forsætisráSherra boSskapur frá konungi, þar sem hann tilkynnir aS hann muni ekki viSurkenna lýSveldisstofnunina, að minnsta kosti ekki meðan Island og Danmörk séu hernumin. Stjórnmálaflokkarnir og ríkisstjórn svöruðu samstundis að það væri réttur íslenzku þjóðarinnar einnar að ákveða stjórnarform sitt og boðskapur konungs gæti engu breytt um afstöðu þeirra. Þetta varð lil þess að sameina íslenzku þjóðina enn betur er til atkvæðagreiðslunnar kom. Urslitin sýndu að allur áróður undan- haldsmanna fékk harla litlu áorkað og brigðmæli SjálfstæSisflokks-