RÉTTUR 55 Tilgangurinn með frumhlaupi Vilhjálms Þórs var sýnilega sá, aS brjóta skarS í varnir verkalýðssamtakanna til þess að hægt væri að tefla fram meginhernum á eftir. Það átti að freista þess að lækka kaup vegavinnumanna og afnema 8 stunda vinnudaginn. Til þess- átti að nota styrk ríkisvaldsins í þeirri von að atvinnurekendur sigldu í kjölfarið. Honum tókst að baka sjálfum sér mikla smán og þjóðinni mikið tjón, með því að stöðva alla vegavinnu, brúar- gerðir og vitabyggingar í hálfan mánuð. Annar varð árangurinn ekki. Svo fór um sjóferð þá. Alþýðusambandið vann deiluna, en ríkisstjórnin vann dóminn. Þetta er mjög táknrænt fyrir ástandiS og styrkleikahlutföllin í land- inu. SkrifaS í iúní 1944 Brynjólfur Bjarnasoru jr_______ RETTUR TÍMARIT UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL Ritstjóri: Sigurður Guðmundsson, Fálkagötu 1, Rvík Afgreiðsla: Arni Einarsson, Skólavörðustíg 19, Rvík Árgangurinn kostar 10.00 kr. PRENTSMIÐJAN HOLAR H-F