RITSJÁ Nokkrar erlendar bækur í 1. hefti Réttar, 28. árg. var getið nokkurra erlendra bóka. er mér höfðu borizt í hendur, og skal nú lítillega minnzt á nokkrar fleiri. Maður heitir Eugene Victor Tarlé og er prófessor í sögu og hebir verið formaður sögurannsóknarstofnunarinnar í Leningrad frá því 1927. Hann hefir samið mörg rit sögulegs efnis og má þar m. a. nefna rit um stórveldatímabilið í Evrópu frá 18701919, rit um hagrænan bakgrunn frönsku byltingarinnar og um sögu Italíu o. fl. En aðalviðfangsefni hans var Napóleonstíminn örlög Napó- leons og áhrif. NAPÓLEON BÓNAPARTE heitir eitt rit hans um þetta tímabil og hefir verið þýtt á ensku. Er þetta í.senn ævisaga Napóleons og meginþættir úr sögu þess tímabils, sem við hann er kennt. Afstaða hinna ýmsu sagnfræðinga til Napóleons hefur verið ærið ólík, bæði af mismunandi sögulegum skilningi þeirra, þjóðerni og öðru þ. h. Hefur þar oft skipt í tvo horn. Napóleon hefur ýmist verið hafinn til skýjanna í taumlausri og blindri aðdáun og örlög hans og áhrif notuð sem sönnun þess, hvernig mikilmennin sköpuðu söguna. Hinsvegar hafa svo aðrir reynt að gera hlut hans sem verstan og lítið séð í örlögum hans og afrekum nema takmarkalausa grimmd og mikilmennskubr j álæði. Aðferð Tarlé er allt önnur. Hann skýrir þróun og örlög Napóleons með því að skilgreina hinn félagslega veruleika samtímans og sýna fram á víxláhrifin milli hans og þessa þjóðhöfðingja.