MAURICE DOBB: VINNA OG VERKALAUN í Sovétríkjunum Englendingurinn Mauríce Dobb er einn jremsti marxistiski hag- jrðingurinn sem nú er uppi og nýtur mikils álits fyrir rann- sóknir sínar og rit. Hann er háskólakennari í hagjrði við hinn virðulega Cambridgeháskóla og hejur ritað noklcrar bcekur um hagjrðileg ejni. Þr helztu eru: Capitalist Enterprise and Social Progress, Russian Economic Development since the Re- volution, Wages, PoliticalEconomy and Capitalism. Vinna og verkalaun í Sovétrílcjunum" er kafli úr lítilli en gagnmerkri bók, Soviet Planning and Labour. Það væri hin mesta kórvilla að starblína svo á tæknileg atriði áætlunarinnar, að menn sjái eingöngu samhæfingu hennar og stjórn ofan frá, en gefi ekki gaum að hinum alþýðlega þætti hennar, sem falinn er í virkri þátttöku fólksins og athafnasemi. En margar stoðir renna undir það, að þessi þáttur sé sízt þýðingarminni. Það hefur verið almannaskoðun á Vesturlöndum að ráðstjórnarfólkið væri að mestu óvirkur, sinnulaus lýður, sem hefði fátt til málanna að leggja og enn minna framtak, þegar um væri að ræða framkvæmd áætlana eða fyrirmæla. Viðburðir þeir, sem orðið hafa síðan í júnímánuði 1941, hafa fært greinilegar sönnur á það, að þetta er ein af þeim mörgu hugmyndum, sem menn verða að endurskoða frá rótum. Hitt er mála sannast, að viðburðirnir hafa sýnt að hinn óbreytti borgari, hvort sem hann er bóndi eða sveitakennari, sem gerzt hef- ur skæruliði, hermaður eða flugmaður, eða verkamaður í iðnaði, sem hefur farið á flakk", er gæddur athyglisverðum hæfileika til að standa á eigin fótum og finna úrræði, þótt fátt sé um efni. Við- burðir síðustu ára, bæði í friði og stríði, hafa sýnt mörg dæmi framtaksemi, sem ber vott um algerlega nýtt viðhorf hins óbreytta verkamanns gagnvart iðnaðinum og því þjóðfélagi, sem hann er