RÉTTUR 71 í Taganrog jók svo mjög framleiðslu sína (fjórfaldaði hana og þaðan af meira), að ekki þurfti að byggja fleiri verksmiðjur í þess- ari grein, svo sem áætlað hafði verið.1 Nokkrum mánuðum síðar, í nóvember 1935, var haldið fyrsta Landsþing Stakanoffa í Moskvu. Og Stalín, sem ávarpaði þingið, lýsti því yfir, að með frumkvæði þeirra hefði tekizt að ónýta úrelta framleiðslumælikvarða og leið- rétta hið áætlaða framleiðslumagn iðjunnar og atvinnulegar áætl- anir, sem forgöngumenn iðnaðarins höfðu gert." Ekki leið á löngu áður en leitun var á þeirri verksmiðju, að ekki væri þar hópur Stakanoffa, þ. e. verkamanna, sem gátu hrósað sér af verulegum ár- angri í starfi sínu og höfðu rétt á að fá sérstakar aukagreiðslur. I stórum verksmiðjum voru þeir í þúsundatali, svo sem kúluleguverk- smiðjunni Kaganovitsj í Moskvu, þar sem greindir voru 2000 Stakanoffar meðal 19000 verkamanna.2 Vér sögðum hér að framan, að árangur þessi hefði, að mestu leyti, ekki orðið fyrir áhlaupa"aðferðir eða vinnu í skorpum", heldur fyrir varanlegar endurbætur á vinnubrögðum. Jafnskjótt og aðferðum þessum hafði verið beitt gátu ólærðari og ólaghentari verkamenn numið þær auðveldlega og aukið allt framleiðslumagnið. Þetta er auðsætt af mörgum dæmum. I byggingariðnaðinum hafði rússneski múrarinn frá fornu fari hrært steypu sína sjálfur og bæði borið múrsteinana að og múrað þá. Nú var mönnum í sérhverjum vinnuflokki fengið eitt starf að vinna. Ennfremur var vinnunni við hleðslu steinanna breytt á þá lund, að múrarinn þurfti ekki að lyfta hverjum steini nema um eitt fet að meðaltali, í stað einnar alinar áður, með því að skipa steinunum á hækkaðan pall við hlið- ina á múraranum, o. s. frv., og fyrir þá sök var hægt að hlaða jafn- mörgum steinum með einum þriðja þeirrar orku, sem áður þurfti. I ullarverksmiðjunni Kúntsovskaja breytti konan Sjekúnova um vinnuaðferð og annaðist átta spunavélar í stað tveggja áður og jók 1 B. Marcus um Stakanofflircyfinguna" í International Labour Review, júlí 1936, bls. 1112; Skýrslur frá fyrsta þingi Stakanoffa, 14. nóv. 1935. 2 Sjá Georges Friedmann, De la Sainte Russie á 1' U.R.S.S. (N.R.F., Gallimard, 1938), bls. 104.