RETTUR 73 Til þess að vinna vel veröur maður að þekkja vel vélina sína, maður verður að þekkja hið innra líf hennar. . . . Það var ekki að þakka sérstakri líkamlegri áreynslu, að ég gerði þessi 1400 skópör, heldur því eingöngu, að ég tamdi mér háttbundna vinnu og rannsakaði gaumgæfilega sérhverja grein í starfi mínu."1 Annar Stakanoff í vefnaðarverksmiðju í Ivanoff, Kíríanova að nafni, bætti við: Ef Stakanoffhreyfingin á að taka framförum verð- ur að beita greindaraðferðum í ríkari mæli en áður tíðkaðist..... Eg hef náð ágætum árangri með því að láta af öllum ónauðsynleg- um hreyfingum, og í því er fólginn allur galdurinn við vinnu mína."2 Ekki var laust við að nokkurra veikleika og öfga gætti í hreyf- ingunni, og í sumum efnum varð hún einskonar æðisótt. Stundum jók hún aðeins vinnhraðann um stundarsakir á kostnað frambúðar- árangurs. I sumum vefnaðarverksmiðjum varð fjölgun þeirra vef- stóla, sem unnið var við, til þess að framleiðslumagn hvers vefstóls minnkaði.3 Stundum var hreyfingunni leyft að valda slíkum breyt- ingum í framleiðslumagni að ekki var gætt hvert misræmi yrði af því gagnvart öðrum greinum áætlunarinnar (t. d. aukin eftir- spurn eftir hráefnum eða vélaútbúnaði). Síðar meir var það hlát- ursefni ráðstjórnarblaða, þegar reynt var að beita aðferðum Stak- anoffhreyfingarinnar umsvifalaust í rakarastofum, eða á rann- sóknarstofum og í þýðingastarfsemi. En þótt þessi dæmi væru oft fundið fé erlendum blaðamönnum, þá voru þau greinilega hrein- ir smámunir í samanburði við hinn trausta árangur hreyfingarinn- ar. Jafnvel á sviði vísindalegrar starfsemi, þar sem fljótfærnisleg notkun hennar kann að hafa verið 'hlægileg, mátti þó í þeim efn- um finna hið víðasta olbogarými þeirri meginreglu, að nauðsyn- legt væri að beita hugsun við vinnuaðferðir engu síður en við verkið sjálft. Mjög snemma var gangskör gerð að því að tryggja gagnkvæmt samræmi í vinnu, ekki aðeins í hinum ýmsu deildum eða vinnustofum sömu verksmiðju, heldur í öllum skyldum fyrir- 1 Fyrsta þing Stakanoffa, 14. nóv. 1935. 2 Sjá B. Marcus, bls. 2324. 3 Sjá rSu Ljúbímoffs á miðstjórnarfundi Bolsjevíkaflokksins, 21. des. 1935.