R É T T U R 75 meðal annars í því fólgnar, að verkamenn fengu aukin tækifæri til þjálfunar og sérhverjum seinvirkum verkamanni var fenginn reynd- ur verkamaður til ráðuneytis og leiðsagnar.1 I öllum helztu fyrir- tækjum voru skipaðir sérstakir ráðunautar í hinum nýju vinnuað- ferðum, og ráðstafanir voru gerðar til þess að duglegir verkamenn í hinum ýmsu verksmiðjum gætu skipzt á reynslu sinni og komið væri upp sérstökum skólum handa Stakanoffum.2 Þess sáust nú glögg merki, að í öllum ráðstjórnariðnaðinum var farið að sinna mönn- unum meir en vélunum, og einstaklingnum, sérviðfangsefnum hans og hæfileikum, sýnd meiri umhyggja en áður hafði tíðkast. Stalín sagði svo í ræðu árið 1935: Við vorum vanir að segja að tæknin ráði úrslitum alls". ... Þetta kjörorð hjálpaði okkur til að binda endi á tæknilega fátækt okkar. .. . Það er gott>og blessað. En það er ekki nóg, því fer fjarri að það sé nóg. . . . Tæknin er dauð ef ekki eru til menn, sem kunna á henni tökin.... Það er tími til þess kominn að gera sér þess grein, að af öllu því dýrmæta auðmagni, sem veröldin á eru menn- irnir dýrmætasta og mikilvægasta auðmagnið. Það er ekki ófyrirsynju, að einn af lokaköflunum í Sögu komm- únistaflokks Sovétríkjanna gæti staðhæft, að rússneski verka- lýðurinn væri ekki lengur verkalýður í hinni gömlu merkingu þess orðs"; hann hefði breytzt í algerlega nýja stétt" í vinnandi stétt með þeim hætti, sem ekki væri dæmi til í allri sögu mannkyns- ins." Það er ekki ófróðlegt að athuga hverskonar menn og konur það voru, Stakanoffarnir, sem stóðu að þessum nýjungum í vinnuað- ferðum. Flestir voru þeir fremur ungir, á aldrinum 25 til 30 ára: menn og konur hinnar nýju ráðstjórnarkynslóðar, sem höfðu hlotið 1 Sjá Indústría, 14. febrúar 1938. 2 Sjá Industrial and Labour Information, Völ. lxxii, nr. 4, 126. tsvestía, 23. sept. 1939, skýrði frá nokkrum fróðlegum dæmum um samvinnu leiðbeinanda úr hópi Stakanoffa og verkfrðinga í vjelaverksmiðjunum í Sverdlovsk, sem leiddi af sér, að teknar voru upp nýjar gerðir af verkíærum, o. s. frv. sam- kvæmt tillögum Stakanoffanna, er byggðar voru á grundvelli tilrauna, sem þeir höfðu gert í vinnuaðferðum.