TRYGGVI EMILSSON: Dagsbrún og lífskjarabaráttan Ritað í minningu Eðvarðs Sigurðssonar Þegar Yerkamannafélagið Dagbrún var 50 ára skrifaði Eðvarð Sigurðsson í Litlu-Brekku grein í blað félagsins Dagsbrún" um stofnun þess og kaupgjalds- baráttuna í 50 ár. Tímaritsgreinin sem hér birtist er byggð á frásögn Eðvarðs og skrifuð í minningu lífskjarabaráttu Dagsbi únarmanna og jafnframt í minningu Eðvarðs Sigurðssonar sem helgaði verkalýðsbai áttunni allt sitt líf. Eövarð segir fyrst frá stofnun Verka- mannafélagsins og helstu hvata- og fram- kvæmdamönnum að undirbúningi sam- takanna. Fyrsti fundurinn var haldinn 28. desember 1905, fundarmenn voru 36. Þar kom fram tillaga um stofnun verka- mannafélags og var hún samþykkt ein- róma, kosin 5 manna nefnd til að semja frumvarp til laga fyrir hið fyrirhugaða fé- lag og til að gefa því nafn. í nefndina völdust: Árni Jónsson verkamaður, Jón Magnússon fiskimatsmaður, Sigurður Sigurðsson búfræðingur, Sigurður Jóns- son verkamaður og Runólfur Þórðarson verkamaður. Næsti fundur var haldinn í Bárubúð þann 3. janúar 1906 samkvæmt fundar- boði frá nefndinni. Pó nefndin hefði ekki lokið störfum sínum, verður þessi fundur að teljast merkur áfangi í stofnun félags- ins, því á fundinum lagði nefndin fram stofnskrá fyrir hið væntanlega félag er hún hafði komið sér saman um að nefna: Verkamannafélagið Dagsbrún. Með samþykkt stofnskrárinnar á þessum fundi, er félaginu raunveru- lega valið nafn, hið táknræna og fagra Eðvarð Sigurðsson