Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Réttur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Réttur

						í ársbyrjun 1921 hófu atvinnurekendur

kauplækkunarherferð og heimtuðu að

kaup verkamanna lækkaði í 90 aura (úr

kr. 1,48) og hótuðu að stöðva togarana ef

ekki yrði að því gengið og framkvæmdu

þá hótun að nokkur leyti. Atvinna var lít-

il í bænum og mikið um aðkomumenn í

atvinnuleit. Var mikið þjarkað um þessi

mál, en svo fór að lokum að Dagsbrún

gerði samkomulag um að lækka kaupið

niður í kr. 1,20. Var það gert 21. mars.

Mestu mun hafa ráðið um að verkamenn

samþykktu þessa lækkun, að þeir trúðu

um of þeim áróðri andstæðinganna að at-

vinna yrði meiri ef kaupið lækkaði. Menn

sáu líka fljótt að þeir höfðu verið illa

blekktir því atvinna var miklu rýrari

næstu ár á eftir en verið hafði áður.

24. mars var gerð fundarsamþykkt um

að allt yfirvinnukaup skyldi vera kr. 3,00

á klst. Atvinnurekendur vildu ekki greiða

nema kr. 1,50. Urðu um þetta nokkur

átök við höfnina og var eftirvinna oftar en

einu sinni stöðvuð af stjórn Dagsbrúnar. í

þessum átökum átti „Þjóðhjálpin" verk-

fallsbrjótalið sem stofnað var, að koma til

aðstoðar atvinnurekendum, en lét aldrei

sjá sig, enda voru verkamenn oft hundr-

uðum saman við höfnina á kvöldin.

Verkamenn báru sigur af hólmi í þessum

átökum.

Eftir þetta gekk á ýmsu í kaupgjalds-

baráttunni og var ýmist að kaup hækkaði

um nokkra aura eða lækkaði á ný og var

á vordögum 1930 kr. 1,20 á klst. í dag-

vinnu, eftirvinnukaup kr. 2,00 og nætur

og helgidagakaup kr. 2,50.

Við stofnun Dagsbrúnar 1906 var, eins

og fyrr segir, dagvinnutíminn ákveðinn

frá kl. 6-6 að frádregnum einum tíma til

matar, eða 11 klst. vinnudagur. Oft var

rætt um að stytta vinnudaginn og ekki

hvað síst að takmarka yfirvinnuna. Til

framkvæmda kom í þessum málum þó

ekki fyrr en 1930. Um veturinn það ár var

mikil næturvinna unnin við höfnina (og

segir frá því á öðrum stað, að þegar

Hannes Hafstein kom af saltfiskveiðum

seint að kvöldi, var þá norðan rok og

frost mikið. Byrjað var undir eins að af-

ferma skipið og unnið alla nóttina. Dag-

inn eftir veiktust þrír verkamenn sem

unnu við uppskipunina um nóttina, af

lungnabólgu, og dóu tveir þeirra). Þetta

varð til þess að á Dagsbrúnarfundi 15.

mars 1930 var samþykkt að banna nætur-

vinnu eftir kl. 10 að kvöldi. Bann þetta

átti að gilda til 18. maí um vorið og gekk

allgreiðlega að koma því á.

Á félagsfundi í Dagsbrún 10. maí 1930

var samþykkt að undangenginni allsherj-

ar atkvæðagreiðslu, að næturvinnubannið

skyldi gilda áfram. Jafnframt var sam-

þykkt að frá og með 14. maí skyldi dag-

vinna teljast frá kl. 7 að morgni til kl. 6 að

kvöldi, tímakaup í dagvinnu skyldi vera

kr. 1,36 á klst. og kr. 2,50 í eftirvinnu.

Með þessu var vinnutíminn styttur um

eina klst. í dagvinnu og dagkaupið hækk-

að úr kr. 13,20 í kr. 13,60, og var þetta

stærsta skrefið sem Dagsbrú hafði stigið í

kjarabaráttunni frá stofnun 1906. Þessari

skipan mála vildi Reykjavíkurbær ekki

hlíta, í bæjarvinnunni hafði kaupið verið

kr. 1,10 frá 1927, svipað hafði kaupið ver-

ið í byggingarvinnunni og í fiskverkunar-

stöðvum. Dagsbrún hótaði verkfalli frá

20. maí, af því varð þó ekki og gekk

kauptaxtinn í gildi og má segja að eftir

það hafði að mestu verið úr sögunni það

misræmi í kaupi sem verið hafði árin á

undan.

Gúttóslagurinn

Eftir þetta hélst kaupið óbreytt til árs-

ins 1937. Með árinu 1930 fóru í hönd

55

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108
Blašsķša 109
Blašsķša 109
Blašsķša 110
Blašsķša 110
Blašsķša 111
Blašsķša 111
Blašsķša 112
Blašsķša 112