Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Réttur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Réttur

						Dýrtíðin var mikil á stríðsárunum fyrri

en vinnan minnkaði þá mikið. En það var

sama hvort unnin var eftirvinna eða ekki,

kaupið var alltaf það sama. Ég leigði hjá

Andrési Bryde, hjá honum var ég á

bátum. í hvert sinn er ég borgaði honum

húsaleiguna var flaskan á lofti. Já, það

var nóg af því í þá daga. En það sást aldrei

að menn væru ölvaðir við vinnu. Og á fé-

lagsfundum sá ég aldrei vín á nokkrum

rnanni. Félagið vann á móti áfengisdrykkju.

— Guðmundur Gissurarson húsráð-

andi í litlum bæ við Lindargötu 35 var

einn af stofnendum Dagsbrúnar. Hann

var fæddur 30. ágúst 1867 í Litlabæ sem

var rétt við Lindargötu 35 en þar hafði

hann verið í 68 ár þegar samtalið fór

fram. Eina húsið við Laugaveginn var

Vísir, þar bjó Jón yfirdómari. Þar fyrir

vestan þar sem Völundur er nú, við

Klapparstíg, var Lindin, sem Lindargata

heitir eftir. Lind var einnig hér fyrir neð-

an á Kveldúlfslóðinni. Þarna kom vatnið

hreint upp úr jörðinni. Svo var gerður

brunnur. Þá kom upp taugaveiki. Niku-

lásarkot var skammt frá þar sem Land-

smiðjan er nú. Þá var holtið hér einn

svakki í rigningum, og vorum við að stela

steini og steini úr görðum til að stikla á

hingað heim. Það voru engar götur um

holtið. Þeir gátu farið að leggja Laug-

aveginn og brúa lækinn, — Fúlutjarnar-

lækinn — eftir að tveir kvenmenn sem

voru að koma úr þvottalaugunum fórust í

læknum. Nei það var engin brú á

læknum, ekkert að gera nema vaða hann.

Hann var krappur, djúpur og illur yfir-

ferðar, einkum í myrkri. Það var ljóta

ferðalagið að fara í. Laugar þá og standa

úti í hvaða veðri sem var. Sæmundur með

sextán skó bar marga poka af þurrum

þvotti inn í Laugar suma daga og blautan

þvott til baka.  Á morgnana bar hann

vatn.

Það er húsráðandinn í litlum bæ við

Lindargötu 35 sem talar. Dyr móti norð-

vestri. Smellilás að utan. Skellihurð að

innan, með járnlóði. Skafbylurinn ham-

ast á bænum, en við heyrum það ekki inn.

Veggir eru þykkir, hlaðnir úr höggnum

grásteini úr holtinu. Bærinnn er lágreistur

og tekur lítið á sig í veðrum. Inni er hlýtt

og andlit húsráðandans er hann spjallar

við gesti sína ljómar af þeirri fölskvalausu

gleði er ekki verður séð í háreistum sam-

kvæmissölum. Nei, Guðmundur Stefáns-

son næturvörður byggði þennan bæ, Guð-

mundur Gissurarson keypti hann árið

1903 á 1700 krónur. Pá var ég farinn að

búa. Eg hefði aldrei farið að búa ef konan

hefði ekki verið duglegri en ég.

Nei við áttum ekkert og fengum ekkert

nema skammir í heimamund. Ég átti ekk-

ert nema puttana þegar ég fór að búa.

Seldi jakkann minn og keypti fyrir hann

fyrstu aðdrættina. Fór svo að róa niðri í

Klapparvör, við vorum á fjögurra manna

fari, Jóhann í Klapparhúsum var formað-

ur. Þá gat maður ekki fengið neitt fyrr en

fiskurinn var þurr. Ég bar fiskinn til

þurrkunar inn á móts við Laugaveg 60, þá

voru þar klappir, konan bar með mér á

börum. Ég man það að eitt sinn fékk ég

30 krónur fyrir skippund af fiski, þóttist

ég þá ríkur maður.

Guðmundur Gissurarson var spurður

hvernig kjörin voru áður en Dagsbrún var

stofnuð. Pá var allt borið af bryggjunum

upp í pakkhús. Þegar þangað var komið

voru handleggirnir bilaðir. Það var ljótt

að detta á hausinn með saltpoka. Konur

unnu jafnt og karlar í timbri og kolum,

sumar voru komnar á steypirinn. Það var

ljótt. Við höfðum aldrei frí á sunnudög-

um. Það var enginn matartími. Matur var

59

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108
Blašsķša 109
Blašsķša 109
Blašsķša 110
Blašsķša 110
Blašsķša 111
Blašsķša 111
Blašsķša 112
Blašsķša 112