LÚÐVÍK JÓSEPSSON: Meirihluti í 40 ár Sósíaiistar hafa haft meirihiuta- völd í bæjarstjórn Neskaup- staðar samfleytt í 40 ár. Það var í bæjarstjórnarkosningunum, sem fram fóru 27. janúar 1946, að fram- boðslisti sósíalista hlaut 5 fulltrúa af 9 sem þá voru kosnir í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar. Síðan hafa sósíalistar haldið meirihlutaaðstöðu sinni í Neskaupstað óslitið í 40 ár og hlutu enn á ný 5 fulltrúa af 9 í síðustu kosningum 1986. Þeir sem kosnir voru sem bæjarfulltrú- ar af lista sósíalista 1946 voru: Jóhannes Stefánsson, Bjarni Þórðarson, Jón Svan Sigurðsson, Vigfús Guttormsson og Lúðvík Jósepsson. Þess munu fá dæmi, að pólitískur flokkur, hafi haldið meirihluta-aðstöðu sinni óslitið jafnlengi og sósíalistar í Neskaupstað. í kosningunum 1946 tóku þátt allir aðalstjórnmálaflokkar landsins, sem þá voru, þ.e. auk Sósíalistaflokksins, Al- þýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur. Þannig hefir það jafnan verið, þegar kosið hefir verið til bæjar- stjórnar í Neskaupstað á þessum liðnu 40 árum. Hvers vegna hafa sósíalistar verið svona sterkir í Neskaupstað? Um þetta hefi ég oft verið spurður, og við þessu á ég ekkert einfalt og öruggt svar. Oft hefir verið bent á þátt okkar félag- anna þriggja; minn, sem þessar línur skrifa, Jóhannesar Stefánssonar og Bjarna Þórðarsonar, sem skýringu á því hvernig til hefir tekist. Sú skýring er að mínum dómi langt frá því að vera full- nægjandi. Vissulega áttum við félagarnir þrír mikið og gott starf saman. Við vorum Lúðvík Jósepsson B* '^Bá wL v- ^^SS^^^^I ¦1 m VÁs [/ IL - ,AÍ .¦Mvri 1 ílf |Q