Keflavíkurganga 1987 Laugardaginn fyrír hvítasunnu stóðu Samtök herstöðvaandstæðinga fyrir Kefla- víkurgöngu, þeirri tíundu í röðinni. Safnast var saman við aðalhlið herstöðvar- innar á Miðnesheiði árla morguns, þar sem Ólafur Ragnar Grímsson og Ingibjörg Haraldsdóttir kennari og formaður SHA fiuttu ávörp. Síðan lögðu um það bil 250 göngumenn af stað og gengu sem leið lá til Reykjavíkur, með viðkomu á hefðbundnum stöðum: Kúagerði, Straumi, Hafnarfirði og Kópavogi. Á leiðinni bættust margir í gönguna og er talið að um 2000 manns hafi verið í henni þegar gengið var niður Bankastræti á ellefta tímanum um kvöldið. A Lækjartorgi var haldinn útifundur sem Birna Þórðardóttir stjórnaði af alkunnri röggsemi. Þar söng Bubbi Morthens nokkur ný lög, saniin sérstaklega í tilefni af göngunni, og Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur flutti ávarp það sem hér fer á eftir: Góðir samherjar Gangan er löng og henni lýkur ekki hér. Gangan heldur áfram, hvað sem mogginn segir um tímaskekkjur, hvað sem kaninn segir um lýðræði og frelsi inn- an gæsalappa, hvað sem tautar og raular heldur hún áfram þessi ganga sem er ganga lífsins gegn dauðanum. Við viljum frið, við krefjumst friðar og framtíðar fyr- ir börnin okkar í þessu landi, framtíðar fyrir börnin í þessum heimi okkar. Við Kcflavíkurganga '87. - Ljósmyndari: Eiríkur Guðjónsson. 68