Lét CIA myrða Palme? Nú er Palme daudur!" Þessi vafningalausu skilaboð bárust rosknum hjónum í Stokkhólmsúthverfinu Bromma símleiðis klukkan 11.35 að kvöldi föstudagsins 28. febrúar í fyrra, tæp- um 15 mínútum eftir að skotið var á Olof Palme forsætisráðherra Svía og Lisbeth konu hans á horni Sveavágen og Tunnelgatan í Stokkhólmi þegar þau voru á leið heim af kvikmyndasýningu. Þegar þessi skilaboð bárust var það aðeins á vitorði örfárra hver sá myrti var. Það var ekki tilkynnt fyrr en 8 mínútum síðar á útvarpsbylgju lögreglunnar. Símtalið allt var svona: Nú er Palme dauður!" segir sá sem hringir. Mér er skítsama," svarar maðurinn í Bromma sem hélt að verið væri að grínast. Er það?" segir símhringjandinn og leggur snöggt á eins og rcnni upp fyrir honum að hann hafi hringt í rangt númer. Símnúmerið hjá hjónunum í Bromma er næstum því eins og símnúmerið hjá Áke Lindsten sem þá var foringi Sví- þjóðardeildar hinna alræmdu Heimssam- taka andkommúnista, WACL (World Anti-Communist League). Þessi samtök hafa löngum (og sér í lagi upp á síðkastið Palme ásamt sendiherra Norður-Víetnam í Moskvu í mótmælagöngu gegn þjóðarmorði Bandaríkjanna í Víet- nam. Bandaríkin urðu æf og kölluðu heim sendiherra sinn frá Svíþjóð. 76