hvað af því sem fram hefur komið um at- burðarásina kringum morðið á Palme stoðum undir þetta? Símhringingin sem getið er í upphafi þessarar greinar bendir óneitanlega til að WACL hafi komið hér eitthvað við sögu. Þá mun lögreglunni hafa borist bréf frá Bandaríkjunum í desember 1986 með upplýsingum í þá veru að WACL hafi lagt á ráðin um morðið en sænskir aðilar hafi séð um framkvæmdina. Fyrir nokkrum mánuðum fékk útvarps- þátturinn Kanalen" bréf þar sem greint var frá fundi sem haldinn var 18. febrúar Mormóninn Grcgory Newell var nýorðinn sendiherra Bandaríkjanna í Svíþjóð þegar Palme var myrtur. Hann átti í orðasennu viö Palme rétt fyrir moröið. Þegar til stóð í vor að sýna sovéska mynd um morðið á Palme í sjónvarpinu reyndi hann að fá því afstýrt. í fyrstu lýsti sjónvarpið því yfir að hann hefði ekkert með þetta að gera en að lokum var gefið eftir og myndin flutt frá besta sendingartíma fram undir miðnætti en þá eru allir venjulcgir Svíar löngu sofnaðir. 84