BANDARIKIN: Land pólitískra morða Þó að morðum sé beitt sem pólitísku vopni víða um heim þá eru Bandai íkin sér á parti meðal háþróaðra iðnríkja hvað þetta snertir. Þar eru pólitísk morð eðlilegur" þáttur í stjórnmáialífinu. Saga Bandaríkjanna sem sjálfstæðs ríkis er ekki löng en samt hafa fjórir forsetar þeirra fallið fyrir morðingjahendi og öðrum verið sýnd banatiiræði. Forsetamorð Fyrstur í röðinni var Abraham Lincoln en hann féll fyrir byssukúlu stuðnings- manns Suðurríkjanna árið 1865. Næstur var James Garfield. Hann var myrtur árið 1881 af flokksfélaga sínum sem taldi sig hafa verið sniðgenginn í sambandi við einhverja stöðuveitingu. Ekki eru tilefnin alltaf beysin. Tuttugu árum síðar, árið 1901, var röðin komin að heimsvaldasinnanum WHliam McKinley. Pað var anarkisti sem skaut hann. Síðastur kemur svo John F. Kennedy v*^' ¦ John F. Kennedy myrtur ¦ Dallas árið 1963 fjórði forsétinn á 100 árum. 98