ERLEND VIÐSJA Trúarofsóknir í Bandaríkjunum Bandarískir fjölmiölar stæra sig af því að þeir séu verjendur lýðræðis, trúfrelsis, svo ekki sé nú talað um verjendur frelsis hinna ríku" til að græða á þeim fátæku. Það er rétt í þessu sambandi að rifja upp atburð, er gerðist í sjálfri Philadelfíu, stofnborg lýðveldisins. Sovéskur blaða- maður, V. Simonov, var þarna vestra þá og lýsir atburðinum, er gerðist 13. maí 1985, á þessa leið: Tvö ár eru liðin, en ég man hvert smáatriði, eins og þetta hafi gerst í gær. Ég man hvernig fjölskyldumynd í ramma brast í rjúkandi öskunni við fætur mér. Helmingur myndarinnar var brunninn. Það sást í brúðarkjól. Hér hef- ur einhvern tíma verið haldin brúðkaups- veisla. En þann 13. maí 1985 var varpað sprengjum á konur og börn á þessum stað og á þann, sem mótmælir Ameríku. Já, Bandaríkin minnast dapurlegs af- mælis. Fyrir tveim árum varpaði lögregl- an í Philadelfíu íkveikjusprengju á hús nr. 6221 við Osage-stræti, þar sem var að- setur Move-heimspeki og trúarsamtak- anna. I dag vitum við hvað gerðist. Ellefu manns, þar á meðal fjögur börn, brunnu inni. Sextíu hús brunnu. Hundruð fjöl- skyldna blökkumanna stóðu uppi heimil- islausar og urðu að eyða nóttunni í kjöllurum í kirkjum.og í loftvarnabyrgj- um sem voru gerð til þess að vernda fólk gegn rússneskum sprengjum". En það voru bandarísk yfirvöld, sem vörpuðu sprengjunni, bandarískir þjón- ar lýðræðisins". Bang og samfélag var lagt í rúst. Bang og karlar, konur og börn bandarískir borgarar voru loga slegin vegna þess að þau voguðu sér að fordæma gróðahyggjuna, sem þrúgar samfélagið, vegna þess að þau voguðu sér að lýsa yfir vantrú á bandaríska siðmenningu, sem að þeirra mati, eyðileggur bæði eðli og góðar vonir í hinni mannlegu sál. Tvö ár hafa liðið síðan sagan skipaði harmleiknum á Osage-stræti á bekk með morðinu á Martin Luther King og Wat- ergate-hneykslinu. Þann dag stóð hin hugsandi Ameríka og syrgði yfir hinum látnu í öskunni, sem enn rauk upp af. Þann dag jarðsetti hún sumar vonir sínar. Hvar er hin nýja bjartsýni", nýja trú á föðurlandshugsjónir", sem Reaganstjórn- in lofaði? Þær hafa verið jarðsettar í rúst- unum í Philadelfíu a.m.k. hvað varðar þá Bandaríkjamenn, sem ekki eru þröng- sýnir. Eftir því sem tíminn líður, því skýrar sjáum við hið táknræna eðli þess skamma starfs, sem Move-samtökin unnu. Hræði- legur harmleikur hefur átt sér stað í Phila- delfíu, vöggu Bandaríkjanna og er hann óskiljanlegur í siðmenningu dagsins í dag." 110