Réttur - 01.08.1989, Blaðsíða 3
HERMANN ÞÓRISSON:
„Til hvers
er ég að þessu?“
^ __________
I minningu Brynjólfs Bjarnasonar
Aðrir eru betur til þess fallnir að minnast Brynjólfs Bjarnasonar þessa mikla
baráttumanns íslenskrar alþýðu og einlæga heimspekings en mig langar samt að
kveðja hann hér með nokkrum hugleiðingum út frá ritum hans og þeim orðræð-
um sem við áttum saman, — og því sem við áttum órætt.
Þetta eru hugleiðingar sem þyrluðust upp 1 hugann vikurnar eftir að ég fregn-
aði lát hans og því persónulegs eðlis og fjarri því að vera tilraun til að gera hug-
myndum og starfi Brynjólfs nein tæmandi skil. Þess í stað vil ég hvetja fólk til að
lesa rit hans. Heimspekirit Brynjólfs eru einstök á íslenskri tungu.
Efablandinn marxisti
Það er nú hátt á annan áratug síðan ég
tók að glugga í rit Brynjólfs. Ég minnist
þess að hafa þá látið þau orð falla að ekki
væri þetta nú allt marxismi eins og ég
hefði skilið hann. Nú má náttúrulega
efast um að ég hafi skilið einhver býsn
og ekki man ég hvað það var sem mér
þótti ómarxískt, ætli það hafi ekki verið
skortur á sperrileggjaðri efnishyggju,
íhuganir um tilgang lífsins og líf eftir lík-
amsdauðann. Fróðlegt þótti inér því síðar
meir að sjá að einmitt á sviði heimspek-
innar var Brynjólfur efins um marxism-
ann. í Samræðum um heimspeki segir
hann:
„Ég leit á sjálfan mig sem marxista.
Eftir því sem ég hef þekkingu og vit til,
er ég samþykkur marxismanum, fyrst
og fremst sem þjóðfélagsvísindum.
Hins vegar er marxisminn líka heim-
speki, og þar var ég alltaf miklu meira
efablandinn.“ (bls. 24)
en jafnframt:
„ég lærði ákaflega mikið af marxistun-
um, bæði Marx, Engels og Lenín, í að-
ferðum, í hugsunaraðferðum. Fyrst og
fremst að skoða ekki hlutina í einangr-
un heldur í samhengi. Ég hef alltaf lit-
ið á það sem meginatriði í díalektískri
hugsun.“ (bls. 28)
Brynjólfur hafði óneitanlega tilhneig-
ingu til að bera blak af marxistunum. Mig
rámar í að hafa veist að Engels fyrir að
rugla um stærðfræði í Díalektík náttúr-
unnar en þar segir hann m.a.: „Allar regl-
ur um tölur eru háðar því kerfi senr notað
99