2 26. mars 2009 FIMMTUDAGUR BANDARÍKIN, AP Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mælti fyrir fyrsta fjárlagafrumvarpi sínu í öldungadeild Bandaríkja- þings í gær. Kvöldið áður varði hann efnahagsstefnu ríkisstjórn- ar sinnar á blaðamannafundi. Hann sagði að á heildina litið væru tillögurnar í fjárlaga- frumvarpinu til þess fallnar að ?mjaka landinu í rétta átt? til að koma efnahagslífinu á réttan kjöl. ?Þetta fjárlagafrumvarp er óaðskiljanlegur þáttur í þessum efnahagsbata,? sagði hann, ?þar sem það leggur grundvöllinn að öruggri og varanlegri velferð.? Frumvarpið var gagnrýnt fyrir gríðarlegan fjárlagahalla. - aa Fjárlagafrumvarpið vestra: Gagnrýnt fyrir mikinn halla Í BEINNI ÚTSENDINGU Obama reyndi að stappa stálinu í Bandaríkjamenn á blaðamannafundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja Marstilboð til elli- og örorkulífeyrisþega Ævar Örn, var þetta ekki ótta- legt skítadjobb? ?Það er spurning.? Hin vinsæla spurningakeppni fjölmiðl- anna hefur verið slegin af hjá Rás 2. Ævar Örn Jósepsson hefur haft umsjón með keppninni undanfarin ár en hann er höfundur bókarinnar Skítadjobb. EVRÓPUMÁL Að óbreyttum reglum Evrópusambandsins um aðildarskil- yrði myntbandalagsins gæti Ísland fengið aðild að því í fyrsta lagi í árs- byrjun 2013. Þetta staðfesti Mass- imo Suardi, yfirmaður á þeirri skrif- stofu framkvæmdastjórnar ESB sem annast peninga- og gjaldeyris- mál, í samtali við Fréttablaðið. Þessi dagsetning byggir á þeim forsendum að umsókn um aðild Íslands að ESB komi fram fljótlega, að um ESB-aðild semjist á innan við ári og landið fái aðild á sama tíma og Króatía í ársbyrjun 2011. Hún byggir enn fremur á þeirri forsendu að um það semjist að Ísland fái strax frá fyrsta degi aðildar að taka þátt í fastgengiskerfinu ERM II, en að óbreyttum reglum um evrópska myntbandalagið þurfa væntanleg aðildarríki þess að hafa verið í ERM II í tvö ár hið minnsta. Í ljósi alþjóðlegu efnahagskrepp- unnar, sem leikur nú nýjustu aðild- arríki ESB í austanverðri álfunni sérstaklega grátt, hafa ráðamenn í þeim löndum þrýst á um að opnað verði fyrir möguleikann á flýti- inngöngu í myntbandalagið. Suar- di bendir á að þetta hafi verið rætt á leiðtogafundi ESB í byrjun þessa mánaðar og niðurstaðan orðið sú að gera engar breytingar á reglunum. Umræðan heldur þó áfram innan sambandsins. Suardi flutti erindi á málfundi um gjaldmiðilsmál sem haldinn var á vegum Viðskiptaráðs og fastanefnd- ar ESB í Reykjavík í gær. - aa EVRUMÁL RÆDD Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra setti fundinn og sést hér hlýða á mál gestsins frá Brussel. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tímaramminn fyrir mögulega inngöngu Íslands í ESB og myntbandalagið: Í ársbyrjun 2013 hið fyrsta STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæð- isflokksins, var í síðasta sinn við störf á Alþingi í gær. Hann lætur af formennsku í Sjálfstæðis- flokknum á sunnudag og heldur til Hollands á mánudag til framhaldsaðgerðar vegna meinsins sem uppgötvaðist í honum í janúar. Geir hefur setið á þingi í 22 ár og var ráðherra í ellefu ár. ?Það eru mikil forréttindi að fá að gegna störfum svo drjúgan hluta starfsævinnar á vett- vangi elstu og æðstu stofnunar landsins,? sagði Geir í stuttri ræðu í þinginu í gær. Á fundi með blaðamönnum harmaði Geir stöðu mála í þinginu enda hefði ríkisstjórnin hlaupið á sig með tvö mál; annars vegar breytingar á kosn- ingalögum og hins vegar breytingar á stjórnar- skránni. ?Það voru mistök af hennar hálfu að hafa ekki Sjálfstæðisflokkinn með í ráðum og ætla að valta yfir hann með þessi mál því það mun ekki takast,? sagði Geir. Illa færi á því að þingstörf- um lyki með þingið í uppnámi vegna deilna um stjórnar skrána; heiður þingsins væri í veði um að sáttaleið tækist. Um aðgerðina í næstu viku sagði Geir hana framhald þeirrar sem hann gekkst undir í febrú- ar. Allt væri með eðlilegu lagi og hann væri talinn úr hættu. - bþs Geir H. Haarde var gagnrýninn á stjórnarflokkana á síðasta degi sínum á þingi: Heiður þingsins er í veði LOKADAGUR Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust stuttlega með blaðamönnum í þinghúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ATVINNUMÁL Orkuveitan og dóttur félög hennar hafa gripið til víðtækra aðhaldsaðgerða vegna áhrifa kreppunnar. Meðal aðgerðanna eru launa- lækkanir hjá öllu starfsfólki með yfir 300 þúsund krón- ur í mánaðar- laun. Laun for- stjóra Orku - veitunnar, Hjörleifs Kvaran, lækka þannig um fjórðung, eða um hálfa milljón. Laun millistjórnenda lækka um tíu til fimmtán prósent og laun almennra starfsmanna um fjög- ur prósent. Þá verður fjárhags- áætlun ársins endurskoðuð. Einnig eru uppi áform um að lækka laun stjórnarmanna Orkuveitunnar. - sh Orkuveitan í aðhaldi: Forstjóralaun lækka um 25% HJÖRLEIFUR B. KVARAN LÖGREGLUMÁL ?Shineray 50cc barnafjórhjól, flott fyrir 3 til 10 ára,? segir í kynningu verslunar- innar SportX á Akureyri á vél- knúnum fjórhjólum fyrir börn. Lögregla fékk í gær ábendingu um sölu þessara fjórhjóla fyrir börn þar sem hámarkshraði þeirra sé skráður 38 kílómetrar á klukku- stund. ?Vélknúin ökutæki sem fara hægar en 25 kílómetrar á klukku- stund eru flokkuð eins og reiðhjól en þegar þau ná meiri hraða þarf tiltekin öku- réttindi til að stjórna þeim,? segir Einar Magnús Magn- ússon, upplýs- ingafulltrúi Umferðarstofu. Einar segir að fyrir sitt leyti vilji Umferðar- stofa vara almenning, og þá sérstaklega for- eldra, við og benda bæði þeim og söluaðilum á að gæta sín á að fara að þeim reglum sem gilda. ?Fyrir utan að þurfa kannski að glíma við áfall af slysi eru öll tryggingamál í uppnámi vegna þess að börnin eru réttindalaus.? Haukur Sveinsson, eigandi SportX, segir barnafjórhjólin hafa verið til sölu í þrjú ár og selst vel. Hann kveðst ekki telja að fjórhjól- in séu ólögleg fyrir þennan aldurs- hóp og verslunin hafi aldrei fengið athugasemdir. Reyndar séu hjólin þó varla ætluð fyrir þriggja ára börn eins og kynnt er heldur kaupi foreldrar þau fyrst og fremst fyrir börn á aldrinum sjö til tíu ára. Um þau gildi sömu reglur og um tor- færuhjól sem börn allt niður í fjög- urra ára aki á lokuðum brautum. ?Auðvitað ræður þú sjálfur sem foreldri hvenær þú kaupir eitt- hvað dót handa krakkanum. Þú bara metur það sjálfur hvort hann ræður við það eða ekki. Það er ekki verið að neyða neinn til að kaupa þetta,? segir Haukur. Að sögn Hauks er nú aðeins eitt barnafjórhjól eftir hjá SportX. Hann segist ekki búast við að panta þessi hjól aftur því þau séu svo kraftlaus. ?Ég reikna ekkert með því að við tökum þessi hjól aftur heldur tökum aðeins stærri næst. Við vorum með 150 kúbika hjól í fyrrasumar, svolítið stærri, sem menn keyptu miklu frekar því þú getur verið á því alveg þar til þú ert orðinn unglingur.? Einar hjá Umferðarstofu segir það misskilning að það sama gildi um þessi fjórhjól og um torfæru- hjól fyrir börn. ?Það er engin undanþága til um fjórhjól eins og til er til dæmis um mótorkrosshjól sem börn mega aka á vissum til- greindum svæðum,? segir upplýs- ingafulltrúi Umferðarstofu. gar@frettabladid.is Fjórhjól í boði fyrir börn frá þriggja ára SportX býður vélknúin fjórhjól fyrir þriggja til tíu ára. Umferðarstofa segir hjól- in ólögleg fyrir aldurshópinn. Eigandi verslunarinnar segir foreldra ráða hvort börn fái slík tæki og noti á lokuðum svæðum. Lögregla rannsakar málið. BARNAFJÓRHJÓLIÐ Kostar 140 þúsund krónur og hefur fyrst og fremst verið selt fyrir börn á aldrinum sjö til tíu ára segir eigandi verslunarinnar SportX. EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu fann yfir 600 kannabisplöntur í húsnæði í Hafnarfirði í fyrradag. Karl- maður á þrítugsaldri var yfir- heyrður í tengslum við rannsókn málsins. Þá tók lögreglan fimmtíu plöntur í húsi í miðborg Reykja- víkur síðdegis á sunnudag. Plönturnar voru í báðum tilvik- um á ýmsum stigum ræktunar. Lögreglan hefur lagt hald á á sjötta þúsund kannabisplöntur á þessu ári. Enn sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800 5005. Í hann má hringja nafn- laust til að koma á framfæri upp- lýsingum um fíkniefnamál. - sh Á sjöunda hundrað plantna: Lögregla finnur meira kannabis Brýn mál stjórnar eru 22 22 mál, sem ríkisstjórnin leggur áherslu á, liggja nú fyrir hjá Alþingi. Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur í gær við fyrirspurn Birgis Ármannssonar. ?Þó að aðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki séu brýnastar eru lýðræðisumbætur ekki síður mikilvægar,? sagði Jóhanna. Barnabótum ekki breytt Það skiptir ekki miklu máli fyrir barna- fjölskyldur hvort þær fá barnabætur mánaðarlega eða á fjögurra mánaða fresti, sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í gær. Fólki með lágar og meðalháar tekjur yrði sérstaklega hlíft við skoðun niðurskurðar næsta árs. ALÞINGI LÖGREGLUMÁL Kona um fertugt hefur kært karlmann um þrítugt til lögreglunnar í Vestmanna- eyjum fyrir nauðgun um liðna helgi. Meint nauðgun átti sér stað í heimahúsi konunnar aðfara- nótt sunnudags. Fólkið er hvort tveggja íslenskt og búsett í Vest- mannaeyjum. Teknar hafa verið skýrslur bæði af konunni og karlinum, sem og einhverjun þeirra sem konan sagði fyrst frá meintri nauðgun. Maðurinn er ekki kærður fyrir innbrot á heimili konunnar. Lögregla í Vestmannaeyjum nýtur aðstoðar lögreglunnar á Sel- fossi við rannsókn málsins. - sh Kona í Vestmannaeyjum: Kærði nauðgun í heimahúsi SPURNING DAGSINS