Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						8 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ

FRÉTTIR

Það er ég sem ræð, hún vinnur nú bara við þrif hjá einhverju útlensku fyrirtæki.

S

amkeppniseftirlitið

hefur ákveðið að

nema úr gildi heim-

ild Bandalags íslenskra

leigubifreiðastjóra (BÍLS)

til þess að gefa út hámarks

ökutaxta leigubifreiða frá

og með 1. maí næstkom-

andi og frá sama tíma er

hvers kyns samráð um

ökutaxta ólögmætt. Tals-

maður leigubifreiðastjóra

óttast að með ákvörðun-

inni sé frumskógalögmálið

innleitt á markaði leigubif-

reiða.

Um margra ára skeið

hefur Bandalag íslenskra leigubif-

reiðastjóra gefið út hámarks öku-

taxta fyrir leigubifreiðar og hafa

verðbreytingar á töxtunum verið

háðar samþykki samkeppnisyfir-

valda og áður verðlagsyfirvalda, en

hér á árum áður voru margvísleg-

ar verðákvarðanir háðar samþykki

verðlagsyfirvalda. Að auki gilda

sérstök lög og reglugerðir um

akstur leigubifreiða og er akstur

þeirra háður leyfum sem Vega-

gerðin hefur umsjón með útgáfu á,

en áður gegndi samgönguráðu-

neytið því hlutverki. Sambæri-

legar reglur giltu um akstur sendi-

bifreiða hér á árum áður en þær

reglur voru afnumdar fyrir nokkru

síðan.

Þetta er rakið að nokkru í

ákvörðun samkeppnisráðs af

þessu tilefni. Er vísað til ákvæða

samkeppnislaga og markmiðs

þeirra um að efla virka samkeppni

meðal annars með því að vinna

gegn óhæfilegum hindrunum og

takmörkunum á atvinnurekstri.

Segir að ástæður þess að ökutaxt-

ar leigubifreiða stóðu eftir þegar

verðlagsákvæði voru að mestu af-

numin á níunda áratug síðustu ald-

ar megi rekja til þess lagaum-

hverfis sem leigubílaakstur hafi

búið við, en þar sé meðal annars

um að ræða svæðisbundnar tak-

markanir á fjölda atvinnuleyfa í

leiguakstri. Hafi Samkeppnis-

stofnun lagst gegn samþykkt lag-

anna, enda fari ákvæði laga um

leigubifreiðar, svo sem vegna að-

gangstakmarkana, gegn markmiði

samkeppnislaga, en miðstýrð verð-

lagning feli ávallt í sér takmörkun

á samkeppni.

Tryggir hagsmuni neytenda

Með vísan til alls þessa og ný-

gerðra breytinga á atvinnu- og

gjaldsvæði leigubifreiða þegar höf-

uðborgarsvæðið og Suðurnes voru

sameinuð í eitt svæði muni Sam-

keppnieftirlitið hætta afskiptum af

ökutöxtum leigubifreiða. Er gefinn

aðlögunarfrestur til 1. maí þegar

hámarkstaxtinn fellur úr gildi. ?Að

mati Samkeppniseftirlitsins er

aukin samkeppni til þess fallin að

tryggja hagsmuni neytenda á

markaði fyrir þjónustu leigubif-

reiða,? segir síðan. Er jafnframt á

það bent að af framangreindu leiði

?að þeim sem reka leigubifreiðar

og leigubifreiðastöðvum verður

samkvæmt þessari ákvörðun

óheimilt eftir 1. maí nk. að hafa

hvers kyns samráð eða samvinnu

um verð og viðskiptakjör þegar

beinum afskiptum samkeppnisyf-

irvalda af ökutöxtum leigubifreiða

lýkur.?

Frumskógarlögmálið

Hjalti Hafsteinsson, sem sæti á í

stjórn Frama, einu af þremur fé-

lögum leigubifreiðastjóra á höfuð-

borgarsvæðinu, sagðist reikna

með að þessari ákvörðun Sam-

keppniseftirlitsins yrði skotið til

Áfrýjunarnefndar samkeppnis-

mála, fyrst og fremst til að fá end-

anlega úr málinu skorið. ?Eins og

þetta lítur út í fljótu bragði frá

okkar bæjardyrum séð býður

þetta bara einhverjum frumskóg-

arlögmálum heim,? sagði hann

ennfremur.

Hann sagði að ákvörðunin þýddi

það að taxtamyndun leigubifreiða

yrði frjáls og í rauninni væri um að

ræða 560 lítil fyrirtæki sem hvert

um sig gæti ákveðið sitt verð og því

ótal verð verið í gangi á sama tíma.

Aðspurður sagði hann að þetta

gæti til að mynda þýtt það að mis-

munandi taxtar yrðu í gildi á næt-

urnar um helgar eða um miðjan

dag í miðri viku. Í raun gæti þetta

þýtt hvað sem er. Þannig gætu

sumir átt eftir að hækka sig frá því

sem nú væri og aðrir að lækka sig.

?Þú ferð heim til þín í kvöld og það

kostar þúsund kall, en kvöldið eftir

kostar það þrjú þúsund kall.

Frjálsræði er kannski ekki alltaf af

hinu góða,? sagði Hjalti ennfrem-

ur.

Hann sagði að afsláttarkerfi í

leigubifreiðaakstri yrði einnig í

uppnámi vegna þessa. Þetta væri

ekki heppileg niðurstaða. Ef til vill

væri hann að mála myndina of

dökkum litum, en leigubifreiða-

stjórar hefðu virkilegar áhyggjur

af þessum breytingum. Þeir hefðu

líka áhyggjur af því að næsta skref

yrði að afnema leyfisveitingar

vegna leigubifreiðaaksturs. Slíkt

hefði til dæmis verið reynt í Sví-

þjóð með slæmum árangri, því það

hefði haft það í för með sér að allt

hefði fyllst af miður vönduðum

mönnum í að aka fólki. Það hefði

einnig verið fellt í London að fara

þessa leið að afnema taxtastýringu

á svörtu leigubifreiðunum. Annað

gilti um aðrar leigubifreiðir þar í

borg, enda væru svörtu leigubíl-

arnir þeir einu þar sem væru með

sýnilega mæla. Það væri þó að

breytast og taka ætti upp mæla í

þeim á einhverju árabili, sam-

kvæmt þeim upplýsingum sem

hann hefði.

Fréttaskýring | Samkeppniseftirlitið

Hámarkstaxt-

ar afnumdir

Býður frumskógalögmálinu heim, segir

talsmaður leigubifreiðastjóra

Hámarkstaxtar afnumdir frá 1. maí.

560 leyfi til leigubílaakst-

urs á Suðvesturlandi

L50776 Samtals um 560 leyfi til leigu-

bifreiðaaksturs eru í gildi á höf-

uðborgarsvæðinu og Suð-

urnesjum, samkvæmt gildandi

lögum og reglugerðum settum á

grundvelli þeirra, 520 á höf-

uðborgarsvæðinu og 40 á Suð-

urnesjum. Að jafnaði geta legið

inni um fjörutíu leyfi hverju

sinni, þannig að virk leyfi til

aksturs eru um 520 á svæðinu.

Leyfum hefur heldur fækkað síð-

ustu árin.

Eftir Hjálmar Jónsson

hjalmar@mbl.is

GOLF á Íslandi nefnist sýning sem IceExpo

og Golfsamband Íslands gangast fyrir um

helgina á Hótel Nordica. Þar munu um 30

fyrirtæki sýna búnað fyrir kylfinga, menn

geta reynt sig við að pútta og í golfhermi auk

þess sem ráðstefna verður haldin í tengslum

við sýninguna þar sem kennir ýmissa grasa.

Síðast en ekki síst mun brellumeistarinn

David Edwards sýna listir sínar.

Edwards sýndi blaðamönnum listir sínar í

gær og er óhætt að segja að þar sé á ferðinni

?kylfingur? sem enginn vill missa af. Settið

hans er heldur óvenjulegt, mikið um hinar

furðulegustu kylfur sem hann notar í sýning-

unni. Hann notar kylfur sem eru bognar,

kylfur sem eru þriggja metra langar, fær

áhorfendur til að leggjast niður með tí í

munninum og slær boltann þannig auk þess

sem hann notar sérstakt járn til að slá þrjá

bolta í einu. Einnig notar hann eina trékylfu

til að slá bolta með því að kasta þeim upp í

loftið og slá þá þannig, ekki ósvipað og í kíló í

gamla daga. ?Ég get slegið boltann um 200

metra með þessari aðferð,? sagði hann við

þetta tækifæri.

Vinsæll skemmtikraftur

Aðspurður um hvort venjulegir kylfingar

gætu lært eitthvað af því að fylgjast með

honum slá hin furðulegustu högg sagði hann

svo vera: ?Þetta snýst allt um mýkt og hraða

í sveiflunni, alveg eins og í venjulegu golfi,?

segir hann og ætti að þekkja það því hann

lék á evrópsku mótaröðinni áður en hann

sneri sér að sýningum sem þessari. Hann er

vinsæll skemmtikraftur því á síðasta ári var

hann með 50 sýningar víðs vegar um heim og

sagði hann að allt útlit væri fyrir að meira

yrði að gera hjá honum í ár.

Sýningin, sem ber yfirskriftina Þín íþrótt

? þín sýning, opnar klukkan 11 árdegis í dag

og á morgun og stendur til klukkan 17 báða

dagana. Edwards mun halda tvær sýningar

hvorn dag, klukkan 12.30 og 16.30.

Á ráðstefnunni, sem hefst klukkan 13.15 í

dag, verður fjöldi framsöguerinda í ýmsum

sölum hótelsins og má sem dæmi nefna að

Nick Edmund, framkvæmdastjóri Faldo De-

sign, ræðir möguleika á uppbygginu alþjóða-

golfvallar hér á landi, rætt verður um nám í

golfvallafræðum, um uppbyggingu afreks-

þjálfunar og hvort nóg sé að kaupa dýrustu

græjurnar og láta mæla sveifluna í nýjustu

tækjum til að ná árangri.

Brellumeistari sýnir listir sínar á golfsýningu

Slær þrjá bolta í einu

Eftir Skúla Unnar Sveinsson

skuli@mbl.is

Morgunblaðið/Ásdís

David Edwards mun sýna listir sínar með hinum ýmsu áhöldum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84