Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 11

FRÉTTIR

?ÞAÐ eru mjög miklar skemmdir.

Það eru mörg hús illa farin eftir fok

og einnig bílar. Rúður eru brotnar

og þakplötur hafa losnað. Það eru

líka skemmdir á húsunum sjálfum,

klæðningar og annað ónýtt,? segir

Ívar Kristjánsson formaður björg-

unarsveitarinnar Sæbjargar á Flat-

eyri en skemmdirnar urðu aðallega

af völdum húss sem fauk í veðrinu.

?Það er enn fokhætta af húsinu

eins og það er í augnablikinu,? seg-

ir Ívar sem var ásamt fjölda björg-

unarsveitarmanna að kanna

skemmdir og taka til eftir óveðrið í

gærkvöldi. Ívar segir að ekki sé vit-

að til þess að neinn hafi slasast.

Hann segir fólki mjög brugðið og

að aðstæður séu líkar því að felli-

bylur hafi farið yfir svæðið. ?Manni

brá bara sjálfum,? viðurkennir Ívar

og segir engan hafa átt von á því-

líku veðri. 

Björgunarsveitin Sæbjörg naut

aðstoðar fjölda íbúa í bænum í gær

við hreinsunarstarf og fyrirbyggj-

andi aðgerðir. Þá fékk hún einnig

liðsinni frá björgunarsveitinni á

Suðureyri og samtals voru um 20-

30 manns að störfum. ?Allir þeir

sem vettlingi gátu valdið komu að

hjálpa,? segir Ívar. Hann segir mik-

ið verk óunnið. ?Það stendur yfir

eiginlega allsherjarhreinsun á öll-

um bænum. Það er spýtnabrak og

þakplötur út um allan bæ. Það er

mikil slóð eftir [brak úr skemm-

unni] um allan bæ.?

Spáð var þokkalegu veðri í nótt á

Flateyri en von er á stormi aftur á

morgun, sunnudag. 

Slóð eftir

brakið um

allan bæ

?ÉG var úti þegar veðrið var og

þetta var rosalegt. Rosalegar hvið-

ur. Það fuku meira að segja bílar og

ljósastaur svignaði þannig að hann

smurðist ofan í jörðina,? segir Ön-

undur Hafsteinn Pálsson, íbúi á

Flateyri og meðlimur í björg-

unarsveitinni Sæbjörg á Flateyri,

um ástandið þegar mesta veðrið

gekk yfir bæinn í gærkvöldi. ?Það

var varla stætt úti. Ég rétt komst út

í bíl til að fara í útkallið,? segir Ön-

undur sem var á vettvangi að fergja

það sem eftir var af skemmunni

sem fauk til að fyrirbyggja frekari

skemmdir á nærliggjandi húsum og

bifreiðum þegar Morgunblaðið náði

tali af honum. ?Þetta gerðist á skot-

stundu því húsið fer í heilu lagi.

Fýkur yfir götuna, lendir á húsum

og klippti í sundur ljósastaura.?

Öndundur segir að veðurofsinn

einn og sér hafi þó nægt til að færa

bíla hátt í tvo metra úr stað. 

?Einn ljósastaur fór alveg og

smurðist hreinlega ofan í jörðina.?

Þá hafi um 60?70 fiskikör fokið

og dreifst um bæinn.

Önundur segir að bæjarbúar hafi

ekki átt von á veðri sem þessu í

gær. Enginn virðist sem betur fer

hafa verið utandyra þegar mestu

hviðurnar gengu yfir. ?Við byrj-

uðum á því að fara um allan bæinn

og könnuðum hvort það væri ekki í

lagi með alla,? segir Önundur um

störf björgunarsveitarinnar í gær-

kvöldi. ?Það voru tveir gluggar

farnir en það var í lagi með alla.

Þannig að við erum að negla niður

lausar [þak]plötur og fyrirbyggja

frekara fok. Það kemur nú fyrir hjá

okkur svona einu sinni á ári að það

fjúki þakplötur en ekki svona mik-

ið.?

?Þetta var

rosalegt?

AFTAKAVEÐUR gerði á Flateyri í

gærkvöldi með þeim afleiðingum að

gamalt trésmíðaverkstæði, áfast við

slökkvistöð bæjarins, við Túngötu,

neðarlega á eyrinni, hreinlega

splundraðist, en vindur fór upp í 43,9

m/s í kröftugustu hviðunum.

Að sögn Páls Önundarsonar bíl-

stjóra stóð veðrið stutt og var

snarpt, en það gekk yfir á tæpum

hálfum öðrum klukkutíma í kringum

kvöldmatarleytið í gær. Segir hann

guðsmildi að ekki hafi verið neinn

nálægur þegar verkstæðið splundr-

aðist, því brakinu rigndi yfir nær-

liggjandi bíla og hús með þeim af-

leiðingum m.a. að rúður brotnuðu og

húsklæðningar skemmdust. 

?Mér skildist á þeim sem búa í ná-

grenni verkstæðisins að skyndilega

hefði heyrst mikill hvellur, síðan fór

rafmagnið og svo dundu ósköpin yf-

ir,? segir Páll og tekur fram að í

svona aðstæðum sé maður minntur á

hversu mannskepnan er lítils megn-

ug gagnvart náttúrunni. ?Ég get

sagt þér að aðkoman að verkstæðinu

minnti mann óþyrmilega á aðkom-

una eftir snjóflóðið. Það er hreinlega

ekkert eftir af húsinu sem sprakk í

loft upp, en brakið úr því dreifðist yf-

ir stórt svæði og allt handónýtt,?

segir Páll og nefnir sem dæmi að

splunkunýr Explorer-jeppi sem stóð

rétt hjá verkstæðinu sé ?eins og

hann hafi lent í hakkavél út af

spýtnabrakinu sem rigndi yfir bíl-

inn?. Áætlar Páll að tjónið af völdum

veðursins skipti milljónum króna.

?Væntanlega kemur endanlegt tjón

þó ekki í ljós fyrr en í fyrramálið

þegar birtir.? Að sögn Páls var verk-

stæðið yfirgefið þar sem síðustu

mánuði hafi staðið yfir endurbætur á

húsinu, en verkstæðið er í eigu bróð-

ur Páls. 

Að sögn Eiríks Finns Greipsson-

ar, aðstoðarsparisjóðsstjóra á Flat-

eyri, nefnist veður á borð við það

sem gerði á Flateyri í gærkvöldi

Grundarendaveður. ?Þá kemur vind-

urinn frá Hjarðardalsnaustum í átt-

ina að eyrinni og koma hnútar sem

skella á byggðinni,? segir Eiríkur og

segir umrædda hnúta í raun geta

skollið hvar sem er á húsum. Spurð-

ur hvort slík veður séu algeng á

Flateyri svarar Eiríkur því neitandi

og segist síðast muna eftir svona

veðri og sterkum hviðum 3. febrúar

árið 1991. ?En þá fór þakið af beina-

verksmiðjunni neðst á eyrinni og

fauk yfir byggðina, auk þess sem

hnútar skullu á kirkjuna og hús ofar

á eyrinni þar sem fjöldi þaka

splundraðist. Mér sýnist samskonar

veðurhnútar hafa myndast nú og

þá.?

Brakið dreifðist í yfir 

100 metra radíus

Eiríkur býr í þarnæsta húsi við

trésmíðaverkstæðið, en sagðist ekki

vita hvort hús sitt hefði orðið fyrir

miklu tjóni, en Eiríkur var staddur í

höfuðborginni þegar blaðamaður

náði tali af honum. Segir hann jarð-

vinnuverktaka hafa verið að endur-

byggja húsið í allan vetur. ?Síðast

þegar ég heyrði í honum voru end-

urbætur vel á veg komnar. Þegar ég

heyrði í eigandanum fyrir viku átti

hann aðeins eftir að endurbyggja

gaflinn á húsinu, sem virðist hafa

gefið sig í veðrinu og splundrað hús-

inu.?

Að sögn Péturs Björnssonar,

varðstjóra lögreglunnar á Ísafirði,

höfðu fjölmargar tilkynningar um

tjón af völdum veðursins borist í

gær. Sagði hann vitað um a.m.k.

fjóra bíla sem orðið hefðu fyrir tölu-

verðum skemmdum, auk þess sem

brak frá trésmíðaverkstæðinu hefði

brotið rúður í húsum, skemmt

klæðningar húsa og eyðilagt þök, en

Pétur sagði sennilegt að brakið hefði

dreifst yfir nærliggjandi svæði í alla-

vega 100 metra radíus. Var veður að

mestu leyti gengið niður þegar

blaðamaður náði tali af honum á tí-

unda tímanum í gær. Björgunar-

sveitin á staðnum var þegar kölluð

út er veðrið skall á og einnig var kall-

að eftir aðstoð frá Ísafirði og Suður-

eyri til þess að ganga frá svæðinu og

að fyrirbyggja meiri skemmdir. 

?Verkstæðið hreinlega

sprakk í loft upp?

Eftir Silju Björk Huldudóttur

og Sunnu Ósk Logadóttur

Ljósmynd/Eiríkur Finnur Greipsson

Svona leit verkstæðið út fyrir skemmstu en búið er að eiga töluvert við það

að undanförnu, styrkja þak og burðarvirki og til stóð að endurnýja það allt.

Ljósmynd/Páll Önundarson

Svo virðist sem byggingin hafi hreinlega sprungið í loft upp og fokið nánast í heilu lagi. Björgunarsveitarmenn unnu við hreinsunarstarf í gærkvöldi.

Ljósmynd/Páll Önundarson

Gríðarlegar skemmdir urðu vegna braks sem fauk á nærliggjandi hús.

NÝLEGUR jeppi hjónanna Guðjóns Guðmunds-

sonar og Bjarnheiðar Ívarsdóttur eyðilagðist í

ofsaveðrinu á Flateyri í gær þegar brak úr ná-

lægri skemmu fauk á hann þar sem hann stóð í

innkeyrslunni á Grundarstíg 5. 

?Húsið fór eiginlega allt, það er bara hug-

mynd af því eftir,? lýsir Guðjón aðstæðum en

aðeins er eitt hús á milli skemmunnar og íbúð-

arhúss Guðjóns. ?Húsið fer allt í einu lagi, bæði

þak og veggir og fer yfir hornið á húsinu hjá

mér, á bílinn og yfir á hús neðar í götunni. 

Bílinn er handónýtur. Það voru mikil læti og

drundi hér í öllu húsinu á meðan þetta var að

gerast.?

Guðjón segir að sem betur fer hafi allir fjöl-

skyldumeðlimir verið innandyra og beðið þess

að veðrið gengi yfir. ?Ég var búinn að vera að

hlaupa á eftir ruslatunnum og svona drasli, var

svo til nýkominn inn þegar þetta gerðist.?

Guðjón segir að veðrið hafi óvænt rokið upp.

Brak hafi farið á rafmagnskassa í götunni og

því var rafmagnslaust hjá Guðjóni á Grund-

arstígnum þegar Morgunblaðið ræddi við hann

í gærkvöldi. Þá reif brakið ofan af tveimur

ljósastaurum í götunni að sögn Guðjóns og

skemmdir urðu á kvisti á íbúðarhúsinu.

?Ég keypti bílinn núna í desember,? segir

Guðjón um jeppann. Hann þarf því að fara aft-

ur á stúfana og kaupa nýjan bíl fljótlega. Í

millitíðinni ætlar hann að nota annan bíl sem

hann á en sá skemmdist aðeins lítillega í veð-

urofsanum í gær.

Guðjón segir að eftir eigi að meta skemmdir

af völdum veðursins að fullu en augljóst sé að

skemmdir hafi orðið á húsum í næsta nágrenni,

rúður brotnað og þakplötur losnað. ?Við eitt

húsið eru stór grenitré. Eitt hefur brotnað og

leggst inn um gluggann á húsinu. Ætli bolurinn

á því sé ekki um 20 sentimetrar, svo þetta er

alvörutré.?

Nýi jeppinn gjörónýtur 

Ljósmynd/Páll Önundarson

Jeppinn gjöreyðilagðist í veðurofsanum þegar

brak úr nálægri skemmu lenti á honum. 

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84