Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						18 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ

ERLENT

ÁRLEGA velur dómnefnd á vegum

World Press Photo-samtakanna

fréttamynd ársins. Í gær var til-

kynnt hvaða mynd varð fyrir valinu

fyrir árið 2005. Kanadíski ljós-

myndarinn Finbarr O?Reilly, starfs-

maður Reuters-fréttastofunnar, tók

myndina sem sýnir magran fingur

ungbarns teygja sig í munn móður

sinnar. Var myndin tekin í Tahoua í

Afríkulandinu Níger í ágúst í fyrra,

en þar geisaði mikil hungursneyð.

James Colton, formaður dóm-

nefndarinnar, sagði myndina hafa

sótt á sig frá því hann sá hana fyrst.

?Þessi mynd hefur allt ? fegurð,

hrylling og örvæntingu. Hún er ein-

föld, fáguð og hreyfir við manni.? 

Reuters

Fréttamynd ársins valin

NOKKUÐ virðist hafa dregið úr

heift múslíma í Vestur-Evrópu

vegna skopteikninganna af Múham-

eð spámanni sem birtust í danska

blaðinu Jyllands-Posten og síðar í

fleiri miðlum. Enn voru þó mót-

mælagöngur í allmörgum löndum í

gær, víðast hvar friðsamlegar, en í

Egyptalandi og Tyrklandi voru

danskir fánar brenndir, einnig

brúður í líki Anders Fogh Rasm-

ussen, forsætisráðherra Danmerk-

ur.

Mörg þúsund manns söfnuðust

saman við sendiráð Dana í Kuala

Lumpur, höfuðborg Malasíu, eftir

föstudagsbænir og dreifðu samtök

heittrúarmanna út miðum þar sem

hvatt var til þess að danskar vörur

yrðu sniðgengnar.

Vebjørn Selbekk, ritstjóri norska

tímaritsins Magazinet, sem endur-

birti myndirnar úr Jyllands-Posten,

sneri í gær við blaðinu og baðst af-

sökunar á því að hafa af gáleysi

sært tilfinningar múslíma með

myndunum. Hann gekk þó ekki svo

langt að harma að hafa birt 

myndirnar. Selbekk hefur fengið

fjölda morðhótana vegna mynd-

anna. Ráð norskra múslíma sagðist

taka afsökun Selbekk til greina.

?Selbekk á börn á sama aldri og

ég. Ég vil að börnin hans og börnin

mín geti alist upp saman, lifað sam-

an í friði og orðið vinir,? sagði leið-

togi ráðsins, Mohammad Hamdam. 

Sænskur flokkur fjarlægir

myndirnar af vefsíðu

Könnun í Noregi gefur til kynna

að 57% landsmanna álíti að fjöl-

miðlar hefðu átt að sleppa því að

birta myndirnar. Hægrisinnaður

stjórnmálaflokkur í Svíþjóð fjar-

lægði í gær teikningarnar af vef-

síðu sinni og lagði á hilluna hug-

myndir um samkeppni um

Múhameðsmyndir. Sænskir fjöl-

miðlar hafa ekki birt myndirnar

umtöluðu.

Talsmaður Venstre, stærri

stjórnarflokksins í Danmörku, var-

aði í gær menn við að halda að

vandamálið yrði senn úr sögunni.

?Margt getur enn gerst. Mikilvægt

er að menn tali varlega. Við viljum

að allt sé gert til að hindra að um-

ræðurnar fari út af sporinu,? sagði

talsmaðurinn, Jens Rohde, að sögn

Jyllands-Posten. Könnun í Dan-

mörku gefur til kynna að meirihluti

Dana telji þarlenda múslímaklerka

hafa átt mestan þátt í að teikninga-

málið varð jafn ofbeldisfullt og

reyndin er orðin.

Abu Laban, ímam í Kaupmanna-

höfn, vísaði í gær á bug ásökunum

þess efnis að danskir múslím-

aklerkar hefðu ýtt undir deilur og

átök vegna teikninganna í löndum

íslams. ?Við höfum ekki hellt olíu á

eldinn,? sagði Laban. Í ljós hefur

komið að lítt þekkt egypskt blað,

El Fagr, birti sex af teikningunum

12 þegar í október í fyrra, en þær

voru fyrst birtar í Jyllands-Posten í

september. Myndirnar í El Fagr

vöktu litla athygli, það var ekki

fyrr en í janúar að mótmæli hófust

víða í múslímaríkjum. 

Beðist afsök-

unar á teikn-

ingum í Noregi

Danskir fánar á ný brenndir í mót-

mælagöngum í múslímalöndum

Eftir Kristján Jónsson

kjon@mbl.is

London. AP. | Verkamannaflokkur

stjórnar Tony Blairs í Bretlandi

beið mikinn ósigur í aukakosning-

um um þingsæti í skosku kjör-

dæmi, Dunfermline og Fife West, í

gær. Frjálslyndi demókratinn Wil-

lie Rennie var með um 1.800 at-

kvæði fram yfir þingmannsefni

Verkmannaflokksins, Catherine

Stihler.

Kjósa þurfti aftur vegna þess að

Rachel Squire, þingmaður Verka-

mannaflokksins, er látin en hún

hlaut liðlega tvo þriðju atkvæða í

kosningunum í fyrra. Kjörsókn var

lítil að þessu sinni, aðeins um 49%.

George Brown fjármálaráðherra,

sem nær öruggt má telja að taki við

af Blair fyrir næstu kosningar, býr

í umræddu kjördæmi. Lagði hann

sig fram um að tryggja Stihler sig-

ur og kom fjórum sinnum fram á

fundum í kjördæminu. Niðurstaðan

þykir því vera áfall fyrir Brown.

Ekki bætir úr skák að Frjálslyndir

demókratar hafa átt undir högg að

sækja vegna alls kyns vandræða-

mála í kjölfar þess að leiðtogi

flokksins, Charles Kennedy, var

þvingaður til að segja af sér vegna

áfengisvanda. Kemur sigur þeirra

því enn meira á óvart en ella. 

Verka-

manna-

flokkurinn

tapaði 

???

Jerúsalem. AFP, AP. | Embætt-

ismenn í Ísrael fóru í gær

hörðum orðum um þá ákvörð-

un Vladímírs Pútíns Rúss-

landsforseta að bjóða leiðtog-

um Hamas-samtakanna til

fundar í Moskvu. Mennta-

málaráðherrann, Meir Sheet-

rit, sagði ákvörðun Pútíns

?rýting í bak? Ísraela og

spurði hvað forseti Rússlands

myndi segja ef ísraelsk

stjórnvöld byðu tétsenskum

skæruliðum til skrafs og

ráðagerða í Jerúsalem.

?Þetta frumkvæði er sann-

arlega rýtingur í bakið ? því

að það felur í sér að hryðju-

verkasamtökum verði veitt alþjóðleg viðurkenning og við

verðum að mótmæla þessu af öllum kröftum,? sagði

Sheetrit í samtali við ísraelska útvarpsstöð. 

Fleiri ráðherrar og embættismenn tóku í sama streng.

?Þegar Tsjetsjenar standa fyrir árás í Moskvu þá kalla

Rússar það hryðjuverk en þegar árás er gerð í Jerúsalem

þá gera þeir það ekki. Er blóð ísraelskra borgara minna

virði en blóð Rússa?? spurði háttsettur, ónafngreindur

embættismaður AFP-fréttastofuna.

Stjórnvöld í Moskvu hafa ekki skilgreint Hamas-

samtökin, sem unnu stórsigur í palestínsku þingkosning-

unum nýverið, sem hryðjuverkasamtök, ólíkt Evrópusam-

bandinu og Bandaríkjastjórn. Pútín Rússlandsforseti

greindi fréttamönnum frá því á fimmtudag að hann vildi

bjóða Hamas-mönnum til Moskvu til viðræðna, en nú er

þess beðið að leiðtogar Hamas hefji undirbúning að mynd-

un ríkisstjórnar í Palestínu.

Rússar eru aðilar að svokölluðum kvartett sem haft hef-

ur milligöngu í friðarviðleitni Ísraela og Palestínumanna ?

en honum tilheyra, auk Rússa, Bandaríkjamenn, Samein-

uðu þjóðirnar og Evrópusambandið ? og eiga Rússar því

hlut að ályktun kvartettsins sem lýsir Hamas sem ótæk-

um samstarfsaðila í ljósi endurtekinna hryðjuverka sam-

takanna gegn ísraelskum borgurum. Minnti Mark Regev,

talsmaður ísraelska utanríkisráðuneytisins, Rússa á þessa

staðreynd í fyrrakvöld. Fleiri var hvassyrtir.

?Þetta er tilraun til að friðþægjast við múslímaheiminn

á okkar kostnað,? sagði Avigdor Lieberman, leiðtogi

Yisrael Beiteinu, harðlínuflokks rússneskra innflytjenda.

Pútín Rússlandsforseti

hart gagnrýndur í Ísrael

?Rýtingur í bak? Ísraela að hann hyggist bjóða leiðtogum

Hamas til Moskvu til viðræðna

Reuters

Einn af leiðtogum Hamas-samtakanna í Palestínu,

þingmaðurinn Ismail Haniyeh, ræðir við stuðnings-

mann í Egyptalandi. Talið er að áhrifamestu leiðtogar

séu menn í útlegð í Líbanon og Sýrlandi. 

Vladímír Pútín 

Pristina. AFP. | Fulltrúar á þingi

Kosovo völdu sér í gær nýjan for-

seta í stað Ibrahims Rugova, en

hann lést 21. janúar sl. af völdum

lungnakrabbameins. Fyrir valinu

varð Fatmir Sejdiu, hófsamur

fulltrúi flokks Rugova, Lýðræðis-

bandalagsins (LDK).

Sejdiu er 54 ára gamall lagapró-

fessor og hefur verið formaður

LDK frá stofnun flokksins 1989 og

vann hann náið með hinum látna

þjóðhöfðingja Albana í Kosovo, en

Rugova hafði verið helsta sjálf-

stæðishetja Kosovo-Albana síð-

ustu sextán árin. Sejdiu hefur enn-

fremur setið á þinginu í Pristina

frá upphafi, þ.e. frá 2001.

Mikilvægt þótti að fylla skjótt og

vel það pólitíska tómarúm sem

myndaðist með fráfalli Rugova, en

framundan eru viðræður milli

Serba og Albana um framtíðar-

skipan mála í Kosovo. Kosovo er að

forminu til hérað í Serbíu en Alb-

anar, sem eru um 90% íbúanna,

vilja sjálfstæði og hefur þótt senni-

legt að niðurstaða viðræðnanna,

sem Sameinuðu þjóðirnar hafa

milligöngu um, yrði sú að þeir

fengju sjálfstæði að uppfylltum

ákveðnum skilyrðum og að tiltekn-

um tíma liðnum.

Fatmir Sejdiu nýr forseti Kosovo

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84