Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Grundarfjörður | Það er orðin

hefð við Leikskólann Sólvelli í

Grundarfirði að halda þorrablót

fyrir leikskólanema og er þá for-

eldrum boðið til blótsins með

börnunum. 

Áður en borðhald hefst flytja

nemendur Leikskólans

skemmtiatriði en að þeim lokn-

um gæða allir viðstaddir sér á

þorramatnum. Það var þröng á

þingi í Leikskólanum sl. mið-

vikudag þegar boðið var til hins

árlega þorrablóts. Börnin biðu

spennt eftir að byrja á matnum

og sumir hökkuðu í sig hákarl-

inn meðan aðrir létu rófu-

stöppuna nægja.

Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson

Rófustappan smakkast vel

Leikskólinn

Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið

Minnstaður

Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi

Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-

dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. 

Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-

dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-

@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.

Mínstund frett@mbl.is

Sólin er nú aftur farin að sjást í fjalla-

skörðum eftir að hafa verið ósýnileg íbúum

Grundarfjarðar frá því í nóvembermánuði.

Það er því fleira en vindar sem hinn tign-

arlegi fjallahringur hefur áhrif á þegar bú-

setuskilyrði eru skoðuð. Ef horft er á ljósu

punktana í því að sjá ekki sólina meðan hún

er lægst á lofti má nefna að ökumenn geta

verið vissir um að sólin muni ekki blinda þá

í innanbæjarakstri í Grundarfirði. Þá gefur

endurkoma sólarinnar eldhústæknum kost

á því að slá í pönnukökudeig og bjóða ætt-

ingjum og vinum í sólarkaffi og stuðla

þannig að fleiri samverustundum. Sól-

arskorturinn lengir einnig tíma jólaljós-

anna því margir hafa fyrir sið að slökkva

ekki á útiseríum fyrr en sólin er farin að

sjást. 

L50098L50098L50098

Rigning og rok hafa verið einkenni tíða-

farsins frá því í byrjun Þorra eða eftir að

ákveðið var að opna skíðalyftuna í kjölfar

nokkurs snjóakafla. Í slíku tíðafari er gott

að geta létt á sálinni með þátttöku í þorra-

blóti sem að vanda var haldið í upphafi

febrúarmánaðar. Það hvílir ávallt mikil

leynd yfir undirbúningi og er því spenn-

ingur mikill hjá fólki að komast á blótið til

að sjá hvert muni vera þema kvöldsins sem

og til að heyra hverjir lendi á milli tann-

anna á þorrablótsnefndinni. Og sem fyrr

urðu menn ekki fyrir vonbrigðum nema þá

helst þeir sem ekkert skot fengu á sig.

Skreytingarnar vöktu enn á ný athygli en

að þessu sinni voru það tengsl margra

Grundfirðinga við hinn vinsæla spæjara

James Bond, eða öllu heldur fyrirmynd

hans sem ættuð var úr Laxárdal, sem urðu

kveikjan að skreytingum hússins.

L50098L50098L50098

Á fleygiferð inn í framtíðina var yfirskrift

ráðstefnu sem haldin var um framtíð Vest-

urlands fyrir skömmu en þar kom m.a.

fram að vænta megi mikils uppgangs á

Vesturlandi í nánustu framtíð. Segja má að

margt sé nú þegar á fleygiferð í Grund-

arfirði, útboð á ýmsum framkvæmdum á

vegum sveitarfélagsins eru auglýst á færi-

bandi. Boðnar eru út framkvæmdir við nýja

gámastöð í Grundarfirði, grjótvörn og land-

fylling á umráðasvæði hafnarinnar, og setja

á niður nýjan íbúðarbotnlanga í bænum,

svo eitthvað sé nefnt, en það er sammerkt

með öllum framkvæmdunum að þeim þarf

að ljúka eigi síðan en fyrir vorið. 

Úr 

bæjarlífinu

GRUNDARFJÖRÐUR

EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON 

T

indaborgir munu

byggja tuttugu og

tvær íbúðir í rað-

og parhúsum á Borg í

Grímsnesi. Gengið hefur

verið frá samningum milli

sveitarfélagsins og fyr-

irtækisins um úthlutun

lóða vegna fram-

kvæmdanna. Margrét Sig-

urðardóttir sveitarstjóri

og Valdimar Árnason,

stjórnarformaður Tinda-

borga, gengu frá samn-

ingunum.

Sveitarstjórn Gríms-

ness- og Grafningshrepps

hefur látið skipuleggja

þéttbýliskjarna í hlíðinni

við Borg. Á staðnum er

leikskóli og nýr grunn-

skóli. Þá er verið að

byggja þar nýja sundhöll. 

Fram kemur í frétta-

tilkynningu frá Tinda-

borgum að lóðirnar séu af-

hentar á hagstæðu verði

og því sé lögð áhersla á að

byggja ódýrar íbúðir.

Tindaborgir byggja upp í

nýju íbúðahverfi á Borg

Á

þorrablóti Iðunn-

ar um liðna helgi

orti Sigrún Har-

aldsdóttir: 

Illri flensu fylgir kvef 

og feikilegur hnerri,

strangur hósti, stíflað nef,

stöðug pína, hor og slef,

lundin slæm og líðan ennþá

verri.

Bjargey Arnórsdóttir

orti um þorra: 

Þú ert kominn þorri minn

þunnan kvið að fylla,

það má enginn þrasarinn

þeirri gleði spilla.

Lagður var fyrir

fyrripartur Helga Zim-

sens: 

Það er ekki sjón að sjá

svona fyrriparta,

Jón Ingvar Jónsson

botnaði: 

líkt og kvenmannskroppinn á

kæmi haus með barta.

Flensa á þorra 

pebl@mbl.is

Garður | Verktakar undirbúa byggingu

svokallaðra herragarða, meðfram sjón-

um við innkeyrsluna í Garð. Bæjarráð

Garðs hefur samþykkt yfirlýsingu um

úthlutun lóða fyrir þetta verkefni.

Fyrirtækið J.G. Herragarðar ehf. er

með áform um byggingu tólf stórra ein-

býlishúsa á svæðinu. Gert er ráð fyrir að

lóðirnar verði um hektari að stæð og þar

er jafnframt gert ráð fyrir hesthúsum. 

Lóðirnar verða í landi Rafnkelsstaða

og eyðibýlisins Gufuskála, sjávarmegin

við Garðveg, á milli golfvallarins í Leiru

og bæjarins.

Sigurður Jónsson bæjarstjóri segir að

miðað sé við að framkvæmdir hefjist í

ágúst í sumar og að svæðið verði full-

byggt innan tveggja ára. Bærinn mun

leggja götur að húsunum þegar fram-

kvæmdir komast af stað. Sigurður bind-

ur vonir við að þetta geti orðið jákvætt

fyrir bæjarfélagið. Fasteignagjöld fáist

af þessum stóru húsum og svo séu líkur

á að vel stætt fólk og þar með góðir út-

svarsgjaldendur hafi áhuga á þessum

húsum.

Skipuleggja

herragarðs-

byggð í

Leirunni

Ísafjörður | Prófkjör sjálfstæðismanna

vegna komandi sveitarstjórnarkosninga í

Ísafjarðarbæ er haldið í dag. Tólf bjóða sig

fram í prófkjörinu. Þar af sækjast þrír eft-

ir efsta sætinu, Gísli Halldór Halldórsson,

Halldór Halldórsson og Úlfar Ágústsson.

Þeir sem bjóða sig fram eru Úlfar

Ágústsson, 1.?4. sæti, Guðný Stefanía

Stefánsdóttir, 5. sæti, Níels R. Björnsson,

4. sætið, Ingólfur Þorleifsson, 5. sæti,

Ragnheiður Hákonardóttir, 2.?3. sæti,

Halldór Halldórsson, 1. sæti, Hafdís Gunn-

arsdóttir, 4.?5. sæti, Ingi Þór Ágústsson,

2.?3. sæti, Gísli Halldór Halldórsson, 1.?2.

sæti, Birna Lárusdóttir, 2. sæti og Stefán

Torfi Sigurðsson sem sækist eftir 4.?5.

sætinu.

Atkvæði eru greidd í húsnæði sjálfstæð-

isfélaganna á Ísafirði kl. 10 til 18 í dag og á

Þingeyri og Flateyri milli kl. 10 og 14.

Stefnt er að því að úrslit úr prófkjörinu

verði kynnt í Faktorshúsinu í Hæstakaup-

stað klukkan 20 í kvöld. Fram kemur á

vefnum bb.is að búist er við að allir fram-

bjóðendurnir verði þar staddir.

Þrír 

sækjast eftir

forystusæti

???

Árnes | Nemendur 5. bekkjar í

Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúp-

verjahreppi fóru nýlega í heimsókn

til nemenda í viðskipta og hag-

fræðiskor Háskóla Íslands sem eru

á námskeiðinu Nýsköpun og

vöruþróun. 

Nemendur 5. bekkjar voru í fylgd

Svanborgar R. Jónsdóttur nýsköp-

unarkennara sem einnig var með

fyrirlestur fyrir allan hópinn um

hugmyndasköpun, hugarflugsfundi

og nýsköpunarmennt. Nemendur 5.

bekkjar unnu svo í litlum hópum

með viðskipta- og hagfræðinem-

unum þar sem þau eru að vinna að

viðskiptaáætlunum og nutu þau

yngri visku og reynslu þeirra eldri

en þau yngri færðu óþvingaða hug-

myndauðgi, ferskleika og skapandi

hugsun inn í samvinnuna. 

Hugmynd að þessu samstarfi kom

frá nýsköpunarmenntafrumkvöðl-

inum Guðrúnu Þórsdóttur. Áfram-

haldandi samstarf verður milli þess-

ara nemendahópa og er hver

nemandi í 5. bekk núna fóstri eða

fóstra þess hóps sem þau unnu með.

Viðskiptafræðinemar koma síðar í

heimsókn í Þjórsárskóla.

Ljósmynd/Svanborg R. Jónsdóttir

Í háskóla Jón Karl úr 5. bekk Þjórsárskóla ræðir við háskólanema á ensku.

Grunnskóla- og háskóla-

nemar vinna saman

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84