Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						60 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ

MINNINGAR

?

Ólína Rebekka

Eiríksdóttir

fæddist í Vík í

Skagafirði 12. sept-

ember 1918. Hún

lést á Landspítalan-

um við Hringbraut

31. janúar síðastlið-

inn. Foreldrar

hennar voru Eirík-

ur Sigurgeirsson, f.

24. september 1891,

d. 13. maí 1974, og

Kristín Vermunds-

dóttir, f. 20. júlí

1898, d. 11. nóvem-

ber 1973. Ólína var næstelst

þrettán systkina.

Ólína giftist Hjalta Jónssyni

30.3. 1940. Þau bjuggu fyrstu

fjögur árin í Valadal í Skaga-

firði, fluttu þá til Reykjavíkur,

þar sem þau bjuggu í nokkur ár,

en fluttu þá að Víðiholti í Seylu-

hreppi og þar bjuggu þau þar til

Hjalti lést 1984. Ólína átti heima

á Hrafnistu í Reykjavík undan-

farin ár. Ólína og Hjalti eignuð-

ust níu börn. Þau eru: 1) Þrúður,

gift Pálma Guðmundssyni, þau

slitu samvistir. Þrúður og Pálmi

eiga tvær dætur. 2) Kristín, gift

Ásmundi S. Guðmundssyni, þau

eiga þrjú börn. 3)

Hörður, kvæntur

Ásu Sigurlaugu

Halldórsdóttur,

hún á einn son og

gekk Hörður hon-

um í föðurstað.

Hörður og Ása slitu

samvistir. 4) Eirík-

ur, kvæntur Jó-

hönnu Sigmunds-

dóttur, þau

eignuðust þrjá syni

og er einn þeirra

látinn. 5) Árný, gift

Guðmundi Pálma-

syni, þau slitu samvistir. Seinni

maður hennar var Lionel

Levesque (látinn), þau eiga eina

dóttur. 6) Guðbjörg, gift Haraldi

Óskarssyni. Hún á einn son.7)

Eygló, gift Halldóri Ólafssyni

(látinn), þau eiga þrjú börn. 8)

Auður, gift Jóni Þór Guðjóns-

syni, þau slitu samvistir, þau eiga

tvær dætur. Hlífar, kvæntur Sig-

ríði Helgadóttur, þau eignuðust

fimm börn, eitt þeirra er látið.

Barnabörnin eru 20, þar af tvö

látin. Barnabarnabörnin eru 16.

Ólína verður jarðsungin frá

Víðimýrarkirkju í dag og hefst

athöfnin klukkan 14.

Elsku amma, nú er komið að

kveðjustund og nú svífur þú um í

grænum lundi létt á fæti. Minning-

arnar á ég eftir úr sveitinni þinni

kæru þar sem ég dvaldist öll þau

sumur sem í barnsminningunni

geymast. Þar var oft líf og fjör enda

stór barnaskarinn sem dvaldist hjá

þér. Þrátt fyrir að vera oft eina

barnabarnið þar hafði ég ekki nein

forréttindi fram yfir hin börnin. Það

lýsir þér svo vel. Þú hugsaðir um

börnin öll eins og þín eigin væru, þau

voru líf þitt og yndi. Aldrei man ég

eftir því í barnsminningunni að þú

svæfir nokkurn tímann enda alltaf

fyrst manna á fætur og síðust í rúm-

ið. Það var ljúft að fá að tipla í móun-

um þínum og gera sér bú úr beinum

sem þú hafðir safnað saman. Þér

tókst einnig einstaklega vel að út-

hluta pökkunum sem við fengum og

passaðir vel að enginn væri útundan.

Allir skyldu jafnir hvaðan sem þeir

komu.

Á unglingsárunum fékk ég tæki-

færi til að dvelja hjá þér og afa um

lengri tíma og er sá tími afar dýr-

mætur í huga mér. Alltaf var ég vel-

komin í Víðiholt. Mörg voru jólin þar

og ætíð var ég eftirvæntingarfull að

komast, það var svo gaman að dvelja

hjá ykkur afa við umhyggju og gleði.

Á þessum tímum var lífið dálítið erf-

itt á stundum en ég og hún litla syst-

ir mín áttum öruggt skjól hjá þér. Er

það ómetanlegt, lýsir vel gæsku

þinni og hversu vel þú vaktir yfir vel-

ferð okkar. Hafðu ávallt þökk fyrir

að taka á móti okkur með opnum og

hlýjum örmum.

Ljóð voru líf þitt og yndi. Löngum

sast þú á efri árum og ortir m.a. um

lundinn sem var þér svo kær. Hér

áður hafðir þú engan tíma til að

yrkja þar sem allur þinn tími fór í að

hugsa um aðra. Þig langaði að gefa

út ljóðin þín, sá draumur varð þó

ekki að veruleika frekar en margir

aðrir draumar. Síðustu kvöldstund

þína fórum við yfir hluta ljóðanna og

ég vildi að við hefðum getað farið yfir

þau öll en sá tími gafst því miður

ekki. 

Það ótrúlega var, að þú mundir öll

ljóðin þótt þrek og kraftur væri

þorrinn sem segir mér hversu kær

þau voru þér. Endurspegla þau að

allt í lífinu er svo bjart og hlýtt,

hvernig við hugum að lífinu er það

sem skiptir máli eins kemur fram í

ljóðinu þínu Birtan og ylurinn:

Breiddu nú yfir þig birtu og yl,

brosandi vertu, því gleðin er til,

geymdu þitt yndi og æskunnar þrá

geisla og gleði sem vernda þig þá.

Látt?ana lyfta þér, ljúfurinn, kátt,

leidd?ana með þér, þú gleðina átt,

breiddu á veg hennar, blómið svo blátt,

berð?ana á örmum þér, svo lífið sé kátt.

Vil ég nú kveðja þig amma mín

með ljóðlínum eftir Davíð Stefáns-

son sem lýsir svo vel lífshlaupi þínu.

Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku

amma.

Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna

og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.

Þú vaktir yfir velferð barna þinna.

Þú vildir rækta þeirra ættarjörð.

Frá æsku varstu gædd þeim góða anda,

sem gefur þjóðum ást til sinna landa

og eykur þeirra afl og trú.

En það er eðli mjúkra móðurhanda

að miðla gjöfum ? eins og þú.

Þín dótturdóttir 

Fríða Pálmadóttir.

Elsku amma mín er dáin.

Hún mamma mín hringdi í mig á

laugardegi og sagði mér að hún

amma hefði fengið hjartaáfall, væri á

sjúkrahúsi og lítið hægt að gera. Á

einhvern skringilegan hátt kom það

mér á óvart þrátt fyrir að hún amma

væri komin vel á veg að verða níræð.

Alltaf þegar ég hafði farið í sveitina

til hennar sem barn og unglingur leit

hún eins út. Í huganum var hún enn

sú amma, sem aldrei eldist.

Dagana áður en amma dó rann

margt í gegnum huga minn. Allar

minningarnar úr sveitinni. Ég, sem

og flest frændsystkini mín, fórum í

sveitina til ömmu þegar við vorum

krakkar. Þar bardúsuðum við margt

og eru margar bestu minningar mín-

ar sem barn úr sveitinni. Hún amma

mín, sem var fyrir mér lítil, krúttleg,

krullhærð kona, tók á móti manni

með faðmlagi og brosi. Hún átti allt-

af eitthvert bakkelsi handa manni og

fórum við krakkarnir oft upp í kaffi

til hennar. Afi minn hafði dáið þegar

ég var ung og bjó amma því ein á efri

hæðinni í sveitinni. Ég man svo vel

eftir að koma upp til hennar og hún

sat inn í herbergi við handavinnu og

raulaði lög eða átti jafnvel í hörku-

samræðum. Við hvern komst ég

aldrei að, en var alltaf mjög forvitin

hvern hún amma væri nú alltaf að

tala við.

Amma mín eignaðist fleiri börn en

ég held að nokkur nútímakona

myndi gera í dag. Við barnabörnin

erum um 20 og nokkur stykki eru

barnabarnabörnin. Hún hefur því

haft nógu að sinna um ævina. Hún

vann hörðum höndum fyrir sínu og

dáist ég að henni fyrir það.

Elsku amma mín, ég vona að guð

og englar séu með þér nú.

Þín dótturdóttir 

Sandra Sif.

Elsku amma mín. Ég bjóst ekki

við því að ég ætti eftir að eiga svona

erfitt með að sætta mig við að þú

færir. Síðustu árin varst þú orðin

þreytt og við ræddum dauðann og ég

veit að þú ert sátt. Þú talaðir um að

þegar að því kæmi værir þú tilbúin,

en fyrir mér var það svo óraunveru-

legt að amma mín sem alltaf var til

staðar, og ég átti svo margar góðar

stundir með, yrði það ekki lengur.

Þú og afi tókuð mér opnum örmum

þegar mamma veiktist og allar mín-

ar bestu bernskuminningar tengjast

ykkur í Víðiholti. Afi dundaði sér

endalaust við að kenna mér og

Hjalta að lesa, skrifa og reikna og

þökk sé ykkur las ég Þjóðsögur Jóns

Árnasonar reiprennandi 6 ára og

kunni margföldunartöfluna upp í 10.

Enda segir Systa að ég HAFI verið

ÓLÍNA REBEKKA 

EIRÍKSDÓTTIR 

Elsku amma Lína 

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum.)

Kveðja 

Daði, Hörður og Eva Rún.

HINSTA KVEÐJA

Þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð

og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns

míns, föður okkar, tengdaföður og afa,

SKÚLA Ö. KRISTJÓNSSONAR

frá Svignaskarði.

Rósa Guðmundsdóttir,

Guðbjörg Skúladóttir, Jón Ívarsson,

Guðmundur Skúlason, Oddný M. Jónsdóttir,

Sigríður H. Skúladóttir, Guðm. Kjartan Jónasson

og barnabörn.

Hjartans þakkir fyrir alla samúð, hlýhug og aðstoð

við andlát og útför bróður míns, mágs, frænda og

vinar,

STEFÁNS BENEDIKTSSONAR,

Minni Brekku.

Guð blessi ykkur öll.

Fyrir hönd ættingja og vina,

Jóna Benediktsdóttir.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-

faðir og afi,

SÓLMUNDUR AÐALSTEINN JÓHANNSSON,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja aðfaranótt

mánudagsins 23. janúar.

Útför hefur farið fram í kyrrþey.

Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.

Hulda Sigurðardóttir,

Ólafur Jóhannes Sólmundsson, Helga Magnea Birkisdóttir,

Sigfríður Hafdís Sólmundardóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson,

Jóhanna Guðveig Sólmundardóttir, Páll Björnsson,

Sigurður Óskar Sólmundsson, Vilborg Rós Eckard,

Rósmarý Dröfn Sólmundardóttir, Björgólfur Jónsson

og barnabörn.

Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug

vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar,

stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa,

EYJÓLFS GUÐMUNDAR ÓLAFSSONAR,

Hlíðarvegi 45,

Ísafirði.

Börn, tengdabörn,

barnabörn og barnabarnabörn.

Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu

okkur samúð og vinarhug við andlát og útför 

eiginmanns míns,

KARLS INGIMARSSONAR,

Engihjalla 19,

Kópavogi.

Þökkum starfsfólki Landspítalans Fossvogi á

bráðamóttöku, deild A2 og deild A6.

Sérstakar þakkir til allra á líknardeild Landspítala Landakoti fyrir frábæra

umönnun.

Stella Stefánsdóttir og fjölskylda.

Elskuleg móðir okkar,

ÓSK GUÐJÓNSDÓTTIR

frá Oddsstöðum,

Vestmannaeyjum, 

lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn

1. febrúar.

Sérstakar þakkir  til starfsfólks á deild 3G fyrir

góða umönnun og gott viðmót.

Útförin hefur farið fram.

Guðrún Jóhannsdóttir, Heiðmundur Sigurmundsson,

Ragnhildur Jóhannsdóttir,

Steinar Jóhannsson, Ingigerður Axelsdóttir,

Herjólfur Jóhansson, Dagný Másdóttir,

ömmu- og langömmubörn.

Ástkær eiginmaður minn,

ATLI MÁR ÁRNASON

listmálari,

lést á Landpítalanum Landakoti fimmtudaginn

9. febrúar síðastliðinn.

Ólafía Kristín Gísladóttir.

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,

SVAVAR SIGURÐUR SÆBJÖRNSSON,

Tjarnargötu 10,

Sandgerði,

andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fimmtudaginn 9. febrúar.

Jarðarförin verður auglýst síðar.

Guðbjörg Svala Guðnadóttir,

börn, tengdabörn, barnabörn og systkini.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84