Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 C FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT „ÞETTA var hörkuleikur hjá stúlk- unum og sigurinn hefði getað fallið þeirra megin eins og hjá Hollend- ingum,“ sagði Þór Ottesen, liðs- stjóri íslenska landsliðsins í hand- knattleik kvenna, eftir tveggja marka tap Íslands fyrir Hollandi, 24:22, á æfingamóti í Tékklandi síð- degis í gær. Hollenska liðið, sem hafnaði í 5. sæti á heimsmeistaramótinu í hand- knattleik í Rússlandi í desember sl., var með tveggja marka forskot í hálfleik, 14:12. Þór sagði hollenska liðið hafa haft frumkvæðið allan fyrri hálf- leikinn en í þeim síðari hefði verið meira jafnræði með liðunum. „Ís- lenska liðið náði í tvígang forystu, en annars var leikurinn lengst af jafn – í járnum,“ sagði Þór sem var ánægður með leik íslenska liðsins að þessu sinni. „Leikmenn stóðu sig virkilega vel og það var allt annað að sjá til þeirra en gegn Slóvökum í gær [fyrradag], þótt ekki megi gleyma því að Slóvakar eru með hörkulið sem engin skömm er að tapa fyrir,“ sagði Þór. Þrjár skoruðu mest Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir og Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoruðu flest mörk íslensku leikmannanna, fjögur hver. Í dag mætir íslenska liðið Tyrkj- um og síðan verður leikið um sæti á morgun. Tveggja marka tap fyrir Hollandi í Tékklandi ANNAR leikur Skautafélags Ak- ureyrar og Skautafélags Reykja- víkur í úrslitakeppninni um Ís- landsmeistaratitilinn í íshokkíi fór fram á Akureyri í gær og var hann lengst af jafn og spennandi. Gest- irnir frá Reykjavík voru hins vegar sterkari í síðasta leikhlutanum og unnu leikinn 7:4. Þar með er SR komið tvo sigra og getur með þriðja sigrinum á sunnudag landað titlinum. Heldur var fámennt í Skauta- höllinni á Akureyri og ljóst að veldi SA hefur látið á sjá. Leikurinn var þó skemmtilegur og heimamenn bitu vel frá sér. SR var sterkara í fyrsta hlutanum og leiddi 2:1. Ak- ureyringar jöfnuðu og pressuðu stíft í öðrum leikhluta en Reykvík- ingar komust aftur yfir og leiddu 4:3. Síðasti leikhlutinn var að mestu eign SR en þá var lið SA oft þunnskipað og leikurinn leystist nánast upp í lokin. SR skoraði þrjú mörk í röð en SA minnkaði muninn aðeins og lokatölur urðu 7:4. Jón Ingi Hallgrímsson, leikmað- ur SA, fékk allnokkra hálsáverka undir lokin þegar Birgir Örn Sveinsson, markvörður SR, braut illa á honum og fer Birgir í leik- bann en hann hafði staðið sig mjög vel í leiknum. Jón Ingi sagði að þetta væri ekki búið, SA myndi klóra í bakkann í þriðja leiknum og fá annan heimaleik. Ingvar Þór Jónsson hjá SR var á öðru máli og taldi nokkuð víst að SR myndi hampa Íslandsmeistara- titlinum á heimavelli í Laugardaln- um í Reykjavík á sunnudag. „Já, við ætlum að taka þetta heima. Þetta var mun betri leikur en sá fyrsti og spennandi lengi vel. Reyndar fór þetta út í hálfgerða vitleysu í lokin og það er slæmt að missa Birgi út en það kemur mað- ur í manns stað,“ sagði Ingvar, sem á árum áður varð meistari með SA. SR nálgast meistaratitilinn Stefán Þór Sæmundsson skrifar PÉTUR Már Sigurðsson, leikmaður Skalla- gríms, var í miklum ham gegn Íslandsmeist- araliði Keflavíkur í gær en hann skoraði þrjá stiga körfur í öðrum leikhluta eftir að hafa k ið inná sem varamaður en Pétur Már er með hlutverk sitt á hreinu. Að skjóta þegar færin gefast en hann skoraði alls 21 stig í leiknum. „Ég breytti engu á milli leikja nema að hug arfarið var allt annað. Mér leið vel og ég var slappaður. Strákarnir sáu að ég var að hitna ég fékk því góðar sendingar og nýtti færin ve Við lögðum upp með það fyrir leikinn að njót þess að spila og gera það sem við gerum vel. Ekki hafa áhyggjur af einu né neinu og það v allt annað að sjá til okkar miðað við 50 stiga t ið í þriðja leiknum. Það er góður andi í liðinu við byggjum mikið á því og kannski var of m pressa á Keflvíkingum í þessari stöðu.“ Pétur bætti því við að Skallagrímsliðið væ með marga góða leikmenn og framhaldið gæ því allt eins endað með Íslandsmeistaratitli. „ held að við getum alveg haldið áfram á sömu braut. Við þekkjum vel styrkleika okkar og veikleika. Það verður sama uppi á teningnum gegn Njarðvík. Í þeim leikjum búast allir við Njarðvík vinni. Það er í góðu lagi. Við trúum okkar styrk og allt getur gerst í framhaldinu sagði Pétur Már Sigurðsson. „Nutum þess að spila“ KÖRFUKNATTLEIKUR Keflavík – Skallagrímur 80:84 Íþróttahúsið í Keflavík, Úrvalsdeild karla, Iceland Express-deildin, undanúrslit – fimmta viðureign, oddaleikur, fimmtudagur 6. apríl 2006. Gangur leiksins: 2:0, 4:3, 6:18, 13:22, 15:25, 23:32, 28:42, 33:47, 42:52, 53:57, 60:61, 62:63, 64:68, 71:72, 78:78, 80:84. Stig Keflavíkur: AJ Moey 33, Magnús Gunnarsson 13, Arnar Freyr Jónsson 12, Jón N. Hafsteinsson 8, Sverrir Þór Sverr- isson 8, Vlad Boer 7. Fráköst: 23 í vörn – 14 í sókn. Stig Skallagríms: Hafþór Ingi Gunnarsson 22, Pétur Már Sigurðsson 21, George Byrd 15, Jovan Zdravevski 12, Dimitar Kara- dovski 6, Axel Kárason 5, Pálmi Sævarsson 2. Fráköst: 27 í vörn – 11 í sókn. Villur: Keflavík 26 – Skallagrímur 21. Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Sig- mundur Már Herbertsson, dæmdu vel. Áhorfendur: Rúmlega 1000. Gríðarleg stemning.  Skallagrímur vann, 3:2, og mætir Njarð- víkingum í úrslitabaráttunni um Íslands- meistaratitilinn sem hefst á sunnudag. NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Chicago – Philadelphia ...........................99:92 Milwaukee – Orlando ..........................105:108 Minnesota – Atlanta..............................99:101 Toronto – Indiana................................103:111 Washington – Boston ............................108:91 Cleveland – New York ............................94:96 Golden State – New Orleans ..............109:114  Eftir framlengdan leik. Sacramento – San Antonio .....................97:87 Houston – Portland .................................75:76 LA Clippers – Phoenix........................119:105 HANDKNATTLEIKUR DHL-deild karla Valur – Selfoss 26:21 Staðan: Fram 23 17 3 3 671:605 37 Haukar 23 18 1 4 704:633 37 Valur 24 16 2 6 718:657 34 Fylkir 23 14 2 7 637:573 30 Stjarnan 23 13 4 6 668:633 30 HK 23 11 2 10 662:644 24 ÍR 23 9 4 10 726:706 22 FH 23 9 3 11 636:643 21 KA 23 9 3 11 639:647 21 Afturelding 23 8 4 11 587:604 20 ÍBV 23 7 2 14 653:712 16 Þór Ak. 23 4 5 14 643:697 13 Vík/Fjöl 23 5 1 17 629:705 11 Selfoss 24 3 2 19 639:753 8 Mót í Tékklandi Kvennalandsliðið tekur þátt í sex þjóða móti í Tékklandi. B-RIÐILL: Ísland – Holland......................................22:24 Mörk Íslands: Anna Úrsúla Guðmundsdótt- ir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 4, Jóna Mar- grét Ragnarsdóttir 4/3, Drífa Skúladóttir 2/1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Ragnhild- ur Guðmundsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærne- sted 2, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1, Harpa Eyjólfsdóttir 1. Staðan: Slóvakía 2 stig, Holland 2, Ísland 0. KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla A-deild, 2. riðill Valur – Víkingur R.....................................1:1 Matthías Guðmundsson 85. – Viktor Bjarki Arnarson 13. Rautt spjald: Viktor Bjarki Arnarson (Víkingi) 34. mín. Staðan: Keflavík 5 4 1 0 10:4 13 ÍA 6 3 2 1 15:9 11 Víkingur R. 5 3 1 1 10:9 10 Valur 6 2 2 2 14:6 8 Þór 5 2 2 1 6:8 8 KR 5 2 0 3 14:10 6 Fram 4 0 2 2 5:7 2 KA 6 0 0 6 6:27 0 UEFA–keppnin 8 liða úrslit, seinni leikir: Zenit St. Pétursborg – Sevilla ..................1:1 Young–Min Hyun 50. – Kepa 63.  Sevilla vann samanlagt 5:2. Steaua – Rapid Búkarest...........................0:0  Fyrri leikurinn endaði 1:1 og komst Steaua áfram á marki á útivelli. Schalke – Levski Sofía ...............................1:1 Lincoln 58. – Stanislav Angelov 24.  Schalke vann samanlagt 4:2. Middlesbrough – Basel ..............................4:1 Mark Viduka 33., 57., Jimmy Floyd Has- selbaink 79. Massimo Maccarone 90. – Edu- ardo Da Silva 23.  Middlesbrough vann samanlagt 4:3.  Í undandúrslitum mætast Schalke og Se- villa annarsvegar og Middlesbrough og Steaua hinsvegar. Skandinavíudeildin Úrslitaleikur: FC København – Lilleström ......................1:0 BLAK Úrslitakeppni karla, annar leikur HK – Stjarnan..............................................2:3 25:14, 25:20, 22:25, 24:26, 10:15.  Stjarnan er Íslandsmeistari. ÍSHOKKÍ Úrslitakeppni karla, annar leikur SA – SR.........................................................4:7 (1:2, 2:2, 1:3) Mörk/stoðsendingar SA: Jón Gíslason 2/0, Steinar Grettisson 1/0, Jan Kobeza 1/0, Clark McCormick 0/1, Marian Melus 0/1, Lubomir Bobic 0/1. Mörk stoðsendingar SR: Mirek Krivanek 3/2, Zdenek Prochazha 2/2, Steinar Páll Veigarsson 0/1, Andy Luhovy 0/1, Stefán Hrafnsson 0/2.  Staðan er 2:0 fyrir SR, sem getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í næsta leik – á sunnudaginn kl. 20 í Laugardal. GOLF US Master Besta skor eftir fyrsta keppnisdag: 67 Vijay Singh. 68 Rocco Mediate. Arron Oberholser. 70 Tim Clark, Retief Goosen, Geoff Ogilvy, Phil Mickelson. 71 Ben Crenshaw, Rich Beem, David Ho- well, Mike Weir, Fred Couples, Nick O’Hern, Ben Curtis, Billy Mayfair, Stuart Appleby, Chad Campbell, Ernie Els. 72 Rod Pampling, Miguel Angel Jimenez, David Toms, Tiger Woods, Brandt Jobe, Ted Purdy, Carl Pettersson, Darren Clarke, Stewart Cink, Sergio Garcia, Adam Scott. 73 Lucas Glover, Robert Allenby, Jim Fu- ryk, Jason Bohn, Thomas Björn, Angel Ca- brera, Padraig Harrington. KÖRFUKNATTLEIKUR Íslandsmót kvenna, Iceland Express- deildin, úrslitarimma, þriðji leikur: Ásvellir: Haukar - Keflavík ..................19.16  Haukar verða Íslandsmeistarar með sigri. HANDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla, DHL-deildin: Fylkishöll: Fylkir - Þór A. ....................19.15 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla B-deild, 4. riðill: Boginn: Magni - KS/Leiftur .................20.15 Deildabikarkeppni kvenna A-deild: Egilshöll: KR - Stjarnan............................21 Í KVÖLD Dómararnir voru smámunasamirundir lokin þegar þeir dæmdu tæknivillu á Arnar Frey Jónsson fyrir það eitt að segja: „Ertu ekki að grín- ast?“ Það hefur margt annað og meira verið látið flakka í slíkum leikjum án þess að dæmt sé tæknivilla. Við get- um hinsvegar kennt okkur sjálfum um hvernig fór,“ sagði Gunnar enn- fremur. Gunnar hann náði ekki að skora í leiknum og það vekur athygli að að- eins sex leikmenn liðsins náðu að komast á blað við stigaskorun að þessu sinni. „Þessi vetur er gríðarleg vonbrigði, deildarmeistaratitilinn er það eina sem við náðum í hús. Slæmt gengi í Evrópukeppninni, tap í bikarúrslitum og undanúrslitum Íslandsmótsins er eitthvað sem styrkir okkur bara fyrir næsta vetur. Við erum allir í þessu til þess að vinna. Sumarið verður vel nýtt til æfinga og við mætum betri til leiks að ári. Það vill enginn hætta að spila fyrir Keflavík eftir svona tíma- bil,“ sagði Gunnar. Ekki rétt hugarfar Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, sagði að allt of margir leikmenn liðsins hefðu verið með hug- ann við eitthvað allt annað en odda- leikinn þegar mest á reyndi. „Við vor- um einfaldlega lélegir og of margir leikmenn í okkar liði mættu ekki til leiks með rétt hugarfar. Það var mik- ið rætt og ritað fyrir þessa viðureign að Keflavík væri mun sigurstrang- legra og sérstaklega í ljósi þess að við unnum síðasta leik á heimavelli með 50 stiga mun. Það telur hinsvegar ekki neitt í svona viðureign,“ sagði þjálfarinn. Sigurður bætti því við að deildarmeistaratitilinn væri vissulega sárabót eftir tap í bikarúrslitaleiknum og nú í undanúrslitum. „Getum sjálfum okkur um kennt“ „VIÐ höfum verið í lægð frá því í tapleiknum gegn Skallagrími í Borgarnesi í fjórða leiknum og við náðum okkur ekki upp úr henni þegar mest á reyndi,“ sagði Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, eftir tapið fyrir Skallagrími í Keflavík í gær, 84:80. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is LENGJAN LEIKIR DAGSINS Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is Bochum - Siegen 1,20 3,85 6,40 Braunschweig - Aachen 2,55 2,65 2,10 Offenbach - Erzgebirge Aue 2,10 2,65 2,55 Charleroi - Anderlecht 3,50 2,95 1,60 Club Brügge - Zulte-Waregem 1,35 3,35 4,75 Heerenveen - Feyenoord 2,65 2,70 2,00 St.Patricks Atletic - Drogheda 2,35 2,60 2,30 Leicester - Crystal Palace 2,45 2,60 2,20 George Byrd, leikmaður Skalla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.