Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 B 13 bílar ALVÖRU HÚSBÍLL TIL SÖLU!! FORD ECONOLINE 250 XL 4X4 árg. '86 (innfluttur 1987). 38” breyttur. Er á nýjum 36” dekkjum. 351 V-8 mótor og C6 sjálf- skipting (upptekin A4OD skipting fylgir). Nýlegur hátoppur. Loftdæla. Ný Markísa. Ný gasmiðstöð. Nýlegt 3” pústkerfi. Ný- lega ryðvarinn (ekki tektíll). Nýlega vélar- stilltur (Performance loftsía, kerti, smurn- ing o.fl.). Rafmagnstrappa. Topplúga með flugnaneti. Captain stólar að framan (með snúningi). Mikið og gott skápapláss. Svefnpláss fyrir 2-4. Nýr gasísskápur. Eldavél. Vaskur/vatnstankur. CB talstöð. Sjónvarp/vídeó (sjónvarpsloftnet). Geisla- spilari m.fjarstýringu. Nýir rafgeymar. Það eru aðeins tveir eigendur frá upphafi og hefur ætíð verið stjanað við þennan bíl. Hann er í toppstandi og lítur gríðar- lega vel út. Sannkallaður gullmoli. Verð- hugmynd: 1.890 þús. (skoða skipti á e-u seljanlegu). Uppl: Sigurður, s. 557 3595/ 892 9027. Húsbílar TIL SÖLU Tilboð óskast í Mercedes Benz L 408 DG húsbíl árgerð 1971, fluttur inn frá Þýska- landi 1996, tveir olíugeymar og hægt að tengja við 220 volt, ísskápur fyrir 220v, 12 v og gas. Mikið endurnýjaður. Nýbúið að yfirfara bremsur og rafkerfi, nýr öflugur rafall og rafgeymar (100.000 kr), nýr vaskur og gaseldavél (50.000 kr). Ný Trumatic 4000 gashitari með termo- stat (100.000 kr.). Tilboð óskast eða skipti á góðu fellihýsi. Upplýsingar í síma 862 8670/664 5868 (Sveinn) og 896 6181 (Hannes). Bílasmáauglýsingar S amgöngur ættu í raun og veru að vera fæstum mjög ofar- lega í huga í Reykjavík. Óvíða á byggðu bóli er bíla- eign meiri og iðulega einungis ein sála í hverjum fimm sæta bíl – jafn- vel sterkbyggðum og níðþungum jeppum með drifi á öllum hjólum og meira að segja millikassa og sjálf- stæðri grind. Eða þá sendiferðabíl- um sem margir kalla líka fjölnota- bíla. Langsamlega oftast einungis einn í hverju tæki og þá skiljanlega undir stýri. Umferðartafir eru líka stórlega orðum auknar. Fjarlægðir eru smávægilegar, það er að segja í samanburði við evrópskar borgir. Sjaldnast snjór á götum höfuðborg- arinnar, ekki frekar en í Barcelónu. Bréfritari er í Barcelónu í sex vik- ur í því skyni að nema tungumálið. Búsettur í austasta hluta í Familia Sagrada-hverfinu, á Carrer de la Indústría, Iðnaðarbrautinni miklu. Hljómar spennó. En skólinn er á Gran Vía de les Corts Catalanes, ógnvænlegri breiðgötu með um það bil tólf akreinum, sex í hvora átt, þar sem ótrúlegt umferðarflæði er dag og nótt. Um það bil, því mörk ak- reina eru iðulega æði óljós og hver akrein líklega ekki nema helmingur af íslenskri akrein, sem þó hefur ekki hingað til þótt tiltakanlega rausnar- leg í málum. Það tæki hálfa aðra klukkustund að ganga þangað frá Carrer Industría. 25 mínútur með neðanjarðarlest, 35 mínútur með strætó, 4 mínútur með þyrlu, gæti ég trúað, en þó ekki nema um 15 mín- útur á vespu. Dautt loft eða koltvísýringur Og þess vegna, og líka vegna þess að fátt stressar ykkar einlægan meira en að ferðast neðanjarðar, þar sem menn anda að sér dauðu lofti og andlit samferðamanna eru eins og greypt úr íberísku graníti, leigði ég mér vespu; leigutími fjórar vikur. „Betra að anda að sér koltvísýringi en dauðu lofti,“ bærðist líka í hug- anum á stundu ákvörðunartökunnar. (Ég tók metróið fyrsta daginn í Barcelónu og varð það á að ávarpa samferðarmann á svipuðu reki en af öðru bergi brotinn og spyrja hann hvort ég væri ekki örugglega í lest á leið á Diagonal-stöðina. Maðurinn horfði á mig eins og hann hefði andað að sér alltof miklu af dauðu lofti. Síð- an sneri hann sér undan án þess að svara nokkru. Kannski bara tungu- málaörðugleikar. Það hafði verið ámálgað í tölvu- póstum við Ivo – vespuleigueigand- ann ísraelska, sem hefur núna búið í Barcelónu í sex ár – að ég hefði áhuga á að leigja af honum Honda 100cc Lead í fjórar vikur, ef um það semdist. Samningar tókust og við hittumst á öðrum degi mínum í Barcelónu á Plaza Cathedral, þar sem hann geymir nokkur stykki. Smávegis skriffinnska og síðan fékk ég lyklana í hendur og brunaði út í barcelónska umferð. „¡Qué libertad!“ Farið eftir umferðarreglum Nú hefur myndast innilegt sam- band milli mín og Hondunnar. Á hverjum morgni set ég á mig hjálm- inn og sest hróðugur upp á fákinn og starta honum með rafmagnsstuði. Svo bara sný ég hægra handfangi og hann tekur á skeið. Fyrstu dagana var ykkar einlægur reyndar með hjartað í buxunum og heilinn sömu- leiðis gekk nánast laus. Umferðin er þung og þegar grænt ljós kviknar gefa allir í botn eins og þeir séu Alonso á ráspól. Umferðarhraðinn er þó ekki tiltakanlega mikill – þetta á milli 60 og 80 km á klst. Vespurnar þræða sig jafnan fremst á umferð- arljósum og eru því í fylkingarbrjósti fram eftir breiðgötum. Í fyrstu þótti mér vart þorandi að slá af hraðanum þegar nauðsynlegt var að rýna á götuheitin á veggjum húsanna. Ein- hvern veginn tókst mér þó að rambla á réttu staðina, sem fyrstu dagana voru einmitt aðallega Ramblan og fyrrnefndir Gran Vía og Industría. Núna er ég farinn að vekja syfjulega bílstjóra með stuttu flauti þegar þeir gleyma ljósunum. Annað sem íslenskur ökumaður upplifir sterkt í Barcelónu er að þar er farið nákvæmlega eftir umferðar- reglum. Það er stoppað þegar gult ljós kviknar og ekki tekið af stað fyrr en á gulu. Það er ekki heldur stöðugt verið að skipta um akreinar í full- komnu tilgangsleysi, eins og tíðkast svo mjög í Reykjavík. Þar er líka tek- ið fullt tillit til vespukarla og -kvenna og þeim leyfist jafnvel ýmislegt sem bílafólkinu leyfist ekki. Á rauðu ljós- unum slær vespufólk gjarnan upp stuttum samræðum og bréfritari hefur nokkrum sinnum nýtt þessa dauðu stund til þess að spyrja til veg- ar. Á rauðu ljósunum má sjá ung- menni á leið á ströndina, jakkafata- klædda skrifstofumenn á blankskóm á leið til vinnu og fínar frúr á pinna- hælum og pilsum. Allir eru með hjálma en annar viðbúnaður er ekki sjáanlegur. Sumir draga upp sam- loku til að narta í á ljósunum og aðrir kveikja sér í jafnvel vindlingi. Núna, að tveimur viknum liðnum, hefur mér tekist að upplifa Barce- lónu á allt annan og nánari hátt en mögulegt væri í strætó eða metró. Leigubíll er valkostur en dæmigert far af styttra tagi kostar nálægt 6–7 evrum. Einu sinni hefur reynst nauð- synlegt að kaupa bensín á Honduna og áfyllingin kostaði 4,20 evrur. Rekstrarkostnaður er því í lágmarki en langstærsti kosturinn er hið ótak- markaða samgöngufrelsi sem þessi snilldarlega uppfinning felur í sér. Og þegar öllu er á botninn hvolft upplifi ég mig öruggari á vespu í milljónaborginni Barcelónu en í Reykjavík. Bréf frá Barcelona Fullkomið frelsi á vespu Fljótlegasta aðferðin til að komast leiðar sinnar í umferðaröngþveitinu sem getur skapast á götum Barcelona-borgar er á vespu. Innilegt samband hefur myndast milli greinarhöfundar og vespunnar. Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is TENGLAR .............................................. www.barcelonamoto.com SÍÐUSTU helgi var haldin sýning á vegum tímaritsins Bílar og sport í nýju Laugardalshöllinni, en hana sóttu um fimmtán þúsund manns. Sýningin var haldin á fimm þúsund fermetra sýningarsvæði og hýsti um 170 sýnendur og sýningargripi. Þemað var víðtækt en sýningarhaldarar lögðu áherslu á aukahluti, hljómtæki, sportbíla og ofursportbíla og var verðmæti sýningargripa áætlað um einn milljarður. Hulunni svipt af Koenigsegg CCX Christian Von Koenigsegg sýndi ofursportbíl sem ber nafn hans en bíll- inn er afrakstur margra ára þróunarvinnu. Christian fékk hugmynd að smíði ofursportbíls þegar hann sá norsku leikbrúðumyndina Álfhóll – Kappaksturinn mikli í barnæsku. Leikbrúðumyndin varð Christian það mikil andagift að hann einsetti sér að þróa, hanna og smíða sinn eigin of- ursportbíl sem hann afhjúpaði svo fyrir gesti sýningarinnar Bílar og sport. Á sýningunni var líka boðið upp á Gokart-útisvæði og fyrir framan Laugardalshöllina var uppstilling á jeppum frá ferðaklúbbnum 4x4. Mikill fjöldi glæsilegra bíla, mótorhjóla og annarra tækja prýddi auk þess sýn- inguna og var oftast hópur fólks í kringum nokkra áhugaverðustu gripina, svo sem upphækkaðan Hummer, LandRover Tomcat og Porsche-bílana auk þess sem nýjar sem gamlar gerðir Mustang vöktu talsverða athygli. Mögulegt að sýningin verði árlegur viðburður Þórður F. Sigurðsson hjá Bílar og sport segist vænta þess að tekin verði ákvörðun um hvort sýningin verði árlegur viðburður á næstu dögum en örlítill rekstrahalli hafi verið af sýningunni. Það sé þó ásættanlegur fórnarkostnaður miðað við þá kynningu sem fékkst. Margt um manninn á sýningunni Bílar og sport Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Verklegur Hummer vakti talsverða athygli meðal gesta. ÞÖK Hulunni svipt af Koenigsegg á sýningunni í Laugardalshöllinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.