Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Morgunblaðið/RAX

MIKIL ógn hefur steðjað að hinum nýju íbú-

um Kringlunnar 1, tjaldsungunum Kringlu,

Móa og Stræti, þar sem nokkrir mávar hafa

sveimað yfir hreiðri þeirra með hungurssvip.

Foreldrar þeirra hafa varið hreiður þeirra af

mikilli hörku og hafa þeir meðal annars fært

það um stað og gefa mávunum ekkert eftir í

gargi, enda baráttan um börnin hörð. 

Reykjavíkurborg áformar að fara í átak

gegn mávum í borginni og er ljóst að Styrmir

og frú munu taka því átaki með feginshendi,

enda mjög í mun að koma ungunum sínum á

legg. 

Styrmir og frú marseruðu á Morgunblaðshúsinu sem aldrei fyrr í kringum ungana og vörðust ágangi mávanna. 

Lífi tjaldsunganna ógnað

Hungrið skein af mávinum þegar hann sveimaði yfir tjaldana. 

NOKKRIR starfsmenn Morg-

unblaðsins láta af störfum nú þeg-

ar starfsemi blaðsins flyst úr

Kringlunni 1 að Hádegismóum 2.

Þau eiga flest áratuga löng störf

að baki á ólíkum sviðum útgáfu

blaðsins.

Lengstan starfsaldur á Karl

Pétur Hauksson prentsmiður sem

hóf störf 13. desember 1958. Und-

anfarin ár hefur Karl Pétur annast

prófarkalestur í auglýsingadeild. 

Guðmundur Einarsson prent-

smiður kom fyrst til starfa hjá

Morgunblaðinu 7. júní 1961. Und-

anfarin ár hefur hann unnið við

umbrot og uppsetningu blaðsins.

Baldur Garðarsson prentsmiður

hóf störf hjá Morgunblaðinu 2.

janúar 1964. Hann hefur að und-

anförnu unnið á skannadeild við

myndvinnslu.

Magnús Finnsson, fulltrúi rit-

stjóra, var fastráðinn blaðamaður

1. júní 1964. Hann var um árabil

fréttastjóri og einnig starfs-

mannastjóri ritstjórnar um tíma.

Undanfarin ár hefur hann m.a.

annast móttöku aðsendra greina.

Magnús Sigurðsson hóf störf

haustið 1964 sem þingfréttaritari

og vann síðan sem fastráðinn

blaðamaður í nokkur ár. Hann

starfaði við lögmannsstörf í sjö ár

en sneri sér aftur að blaða-

mennsku á Morgunblaðinu

snemma á 9. áratug 20. aldar.

Magnús hefur verið umsjón-

armaður Fasteignablaðsins frá því

það fór að koma út. Hann er nú í

veikindaleyfi en lætur af störfum á

árinu.

Kristín Magnúsdóttir matráðs-

kona hóf störf í október 1977. Síð-

an hefur hún unnið óslitið við

mötuneyti Morgunblaðsins.

Jóhann Hjálmarsson rithöf-

undur hóf að rita greinar og gagn-

rýni fyrir Morgunblaðið rúmlega

tvítugur að aldri. Hann varð fast-

ráðinn blaðamaður 1. janúar 1990

og skrifaði einkum um listir og

menningu, auk bókmennta-

gagnrýni.

Morgunblaðið færir öllum þess-

um starfsmönnum bestu þakkir

fyrir dygga þjónustu og árnar

þeim heilla og velfarnaðar.

Hætta eftir áratuga störf

á Morgunblaðinu

Morgunblaðið/Eggert

F.v.: Magnús Finnsson, Baldur Garðarsson, Guðmundur Einarsson

(fremst), Kristín Magnúsdóttir og Karl Pétur Hauksson.

Magnús 

Sigurðsson

Jóhann 

Hjálmarsson

4 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ

FRÉTTIR

HEIMSSÝN, hreyfing sjálfstæð-

issinna í Evrópumálum, stendur fyr-

ir norrænni ráðstefnu á Nesjavöllum

og Laugarvatni dagana 28.?30. júlí

nk. í samvinnu við norrænu sam-

tökin Frit Norden. Ráðstefnan, Nor-

rænn þjóðfundur 2006 (Nordisk

Folkriksdag 2006), fer nú fram í

fyrsta sinn hér á landi, en hefur áður

verið haldin til skiptis í Svíþjóð, Nor-

egi og Danmörku árlega síðan 1990.

Þegar hafa yfir 50 manns á öllum

aldri frá hinum Norðurlöndunum

skráð sig til þátttöku auk Íslend-

inga, en gert er ráð fyrir að heild-

arfjöldi þátttakenda á ráðstefnunni

verði um 70?80 manns.

Viðfangsefni ráðstefnunnar verða

m.a. staða Norðurlandanna í heim-

inum, sérstaða Íslands, Noregs,

Grænlands og Færeyja utan Evrópu-

sambandsins, aukin norræn sam-

vinna sem annar valkostur við aðild

að sambandinu og íslensk/norræn

saga og menning. Meðal framsögu-

manna á ráðstefnunni verða frú Vig-

dís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Ís-

lands, Einar K. Guðfinnsson

sjávarútvegsráðherra, Laila Frei-

valds, fyrrv. utanríkisráðherra Svía,

Mininnguaq Kleist frá Grænlandi,

Steingrímur Hermannsson, fyrrv.

forsætisráðherra, og Ragnar Arn-

alds, fyrrv. fjármálaráðherra.

Aðgangseyrir að ráðstefnunni er

enginn, en þar sem húsrými er tak-

markað eru áhugasamir hvattir til

þess að skrá sig til þátttöku sem

fyrst.

Norrænn þjóð-

fundur á Íslandi

UNDIRBÚNINGUR Vaðlaheið-

arganga gengur vel og er stefnt að

því að opna göngin í desember árið

2010, að því er fram kom á aðal-

fundi Greiðrar leiðar ehf., fram-

kvæmdarfélags um gerð ganganna,

í fyrradag. 

Hlutafé í fyrirtækinu er nú 75,5

milljónir króna en heimild er til að

auka það upp í allt að 100 milljónir.

Til að fá gleggri mynd af jarðlögum

á gangaleiðinni hófust rafseg-

ulmælingar nú í vor og verður þeim

haldið áfram í sumar. Unnið er að

skoðun á lausum jarðlögum við

eystri gangamunnann skammt frá

Skógum í Fnjóskadal og eru fyrstu

niðurstöður þeirra athugana já-

kvæðar. Þá er einnig unnið að því

að skoða mögulegar fornleifar í og

við gangamunnann.

Fram kom í máli Péturs Þórs

Jónassonar, stjórnarformanns

Greiðrar leiðar, að félagið biði nú

afstöðu Skipulagsstofnunar varð-

andi kynningarskýrslu um fram-

kvæmdina. Þá yrði að sækja um

framkvæmdarleyfi til þeirra sveit-

arfélaga sem göngin liggja um.

Stefna á að opna

Vaðlaheiðargöng í

desember 2010

STUÐNINGUR við ríkisstjórnina

hefur aukist um átta prósentustig

milli mánaða, að því er fram kemur í

nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. 

Mælist stuðningur við stjórnina

56% í júní en var 48% í maí. Þá eykur

Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt um

þrjú prósentustig, fengi 43% nú en

stuðningur við flokkinn mældist 40%

í maí. 

Samfylkingin tapar nokkru fylgi,

fengi 25% nú en var með 29% í maí.

Vinstri grænir fengju 19% en voru

með 17% í maí, Framsókn missir eitt

prósentustig milli mánaða og mælist

með 10% fylgi nú en 9% í maí. Þá

standa Frjálslyndir í stað með 4%

fylgi. 

Könnunin var unnin dagana 27.

maí til 28. júní og var úrtakið 3853 en

svarhlutfall 61%. 

Fylgi smærri flokkanna eykst

Samkvæmt skoðanakönnun

Fréttablaðsins, sem birt var í gær,

sækja litlu flokkarnir þrír í sig veðrið

en þeir stærri hafa tapað fylgi. 

Fylgi Samfylkingarinnar mældist

aðeins 24,2% sem er rúmum fjórum

prósentustigum minna en í síðustu

könnun. Miðað við þessa mælingu

myndi Samfylkingin því missa 4?5

þingmenn af 20. 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar

einnig lítillega frá síðustu mælingu

og mælist hann nú með 42,5%.

Vinstri græn mælast með tæp 15%

sem er næstum fimm prósentustig-

um meira en í síðustu könnun.

Frjálslyndir hafa aukið fylgi sitt um

næstum helming og mælast nú með

6,2% og Framsóknarflokkurinn er

með 10,6% sem er rúmum fjórum

prósentustigum meira en í síðustu

könnun. 

Fylgi ríkisstjórnarinnar eykst 

EINAR K. Guðfinnsson sjáv-

arútvegsráðherra hefur lýst yfir

stuðningi við aðgerðir Norðmanna

gegn skipinu Joana, en fyrr í vik-

unni ákvað norska strandgæslan að

færa til hafnar í Noregi skipið

Joana sem var að veiðum á al-

þjóðlegu hafsvæði norður af Nor-

egi. Samkvæmt upplýsingum frá

norska sjávarútvegsráðuneytinu er

skipið þjóðernislaust, það siglir

ekki undir fána neins ríkis og á því

eru engar merkingar um heima-

höfn eða skráningarnúmer.

Sjávarútvegsráðherra hefur

komið þeim skilaboðum til hins

norska starfsbróður síns að hann

hafi fullan skilning á aðgerðum

Norðmanna gegn skipinu Joana og

styðji þær heils hugar. Leggur

hann áherslu á að nauðsynlegt sé

að grípa til harðra aðgerða gegn

ólöglegum og óábyrgum fisk-

veiðum.

Sjávarútvegs-

ráðherra styður

aðgerðir

Norðmanna

NÝ lög um atvinnuleysistryggingar

og vinnumarkaðsaðgerðir taka gildi í

dag. Í lögunum felast margháttaðar

réttarbætur fyrir fólk sem er at-

vinnulaust og í atvinnuleit, að því er

fram kemur í fréttatilkynningu frá

Vinnumálastofnun, sem annast

framkvæmd atvinnuleysistrygginga-

kerfisins. Þannig má sem dæmi

nefna að nú geta einstaklingar sótt

um tekjutengdar atvinnuleysisbæt-

ur fyrstu þrjá mánuðina í atvinnu-

leysi sem munu nema 70% af heild-

arlaunum á ákveðnu

viðmiðunartímabili, en þó aldrei

meira en 185.400 krónum á mánuði. 

Af öðrum breytingum má nefna að

svokallaðri stimplun verður hætt en í

staðinn koma regluleg samskipti við

ráðgjafa hjá þjónustuskrifstofum

Vinnumálastofnunar. Bótatímabil

mun styttast úr fimm árum í þrjú og

atvinnuleysisbætur verða greiddar

út einu sinni í mánuði í stað hálfs-

mánaðarlega. 

Með lögunum verða gerðar meiri

kröfur til þeirra sem fá greiddar at-

vinnuleysisbætur um virkni í at-

vinnuleit og öll skilvirkni atvinnu-

leysistryggingakerfisins á að vera

bætt með lögunum. 

Ný lög um greiðslur til 

foreldra langveikra barna

Í dag taka einnig gildi ný lög um

greiðslur til foreldra langveikra eða

alvarlega fatlaðra barna. Þar er

kveðið á um rétt foreldra sem eru

launamenn eða sjálfstætt starfandi

einstaklingar á innlendum vinnu-

markaði til greiðslna er börn þeirra

greinast með alvarlegan og lang-

vinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun.

Gert er ráð fyrir að foreldrar geti

sameiginlega átt rétt á greiðslum í

allt að þrjá mánuði með hinu foreldri

barnsins að uppfylltum tilteknum

skilyrðum.

Réttarbæt-

ur fyrir at-

vinnulausa

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56