Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						24 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ

MINNSTAÐUR

AKUREYRI

Götuleikhús| NOVU 2006 er yf-

irskrift vinabæjamóts sem staðið

hefur yfir á Akureyri undanfarna

daga, en 82 ungmenni hafa unnið að

ýmsum verkefnum. 

Í dag, laugardag, munu leikhópur

og tónlistarhópur sem hafa samein-

ast í götuleikhúshóp, undir stjórn

Bernd Ogrodnik og hjónanna Önnu

Richardsdóttur og Wolfgangs

Frosta Sahr, sýna afurð vikunnar í

Gilinu kl. 16. Verkið ber nafnið

?Stóri ferkantaði heimurinn okkar?.

Hægt er að fylgjast með á vefsíðu

mótsins, www.novu.2006.com.

Bláar myndir | Hallgrímur Ingólfs-

son innanhússarkitekt opnar sýn-

ingu á bláum myndum í Jónas Viðar

Gallery í Listagili, í dag, laugardag-

inn 1. júlí kl. 16.

Þetta er þriðja einkasýning Hall-

gríms en hann hefur tekið þátt í

nokkrum samsýningum bæði hér

heima og erlendis.

Sýningin stendur til 9. júlí

BYKO hf. mun opna nýja verslun við

Óðinsnes á Akureyri í dag, laugar-

daginn 1. júlí kl. 10 en þar verður öll

þjónusta fyrirtækisins undir einu

þaki. 

Fram til þessa var reksturinn á

tveimur stöðum, verslun á Glerár-

torgi og timbursala á Furuvöllum.

Eftir sem áður mun BYKO þjóna í

senn iðnaðarmönnum sem handlögn-

um heimilisfeðrum og mæðrum, sem

kjósa að gera hlutina upp á eigin spýt-

ur. 

Þá verður stór heimilisdeild í versl-

uninni auk heimilistækjadeildar sem

mun bjóða upp á vörur frá ELKO á

hagstæðu verði. Vegleg árstíðadeild

verður í versluninni þar sem vöruúr-

valið kemur til með að fylgja árstíðum

og hátíðum. 

Efnt verður til hátíðar í tilefni af

opnuninni, boðið upp á veitingar og

skemmtun auk þess sem ýmis tilboð

og happdrætti verða í gangi alla

helgina.

Timburverslunin verður byggð upp

sem hlaðbraut þar sem hægt er að aka

bílum inn, fólk sækir vörur sínar og

ekur að því búnu út aftur. Er þetta

með sama sniði og í verslunum BYKO í

Breiddinni og á Selfossi. Þetta fyrir-

komulag hefur gefið góða raun og auð-

veldar söluferlið bæði fyrir viðskipta-

vini og starfsfólk. 

BYKO hf. er stærsta byggingavöru-

verslun landsins og rekur átta bygg-

ingavöruverslanir ásamt timburversl-

unum, leigumörkuðum og

lagnadeildum á Reykjavíkursvæðinu,

Akureyri, Selfossi, Reyðarfirði, Suður-

nesjum og Akranesi. BYKO var stofn-

að árið 1962 og er nú hluti af Norvík-

ursamstæðunni. BYKO hf. rekur

einnig sérvöruverslanirnar ELKO,

Intersport og Húsgagnahöllina.

Byko 

opnar nýja

verslun

BYKO-verslun opnuð Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, og Krist-

ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, opna nýja verslun við hátíðlega

athöfn í dag. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa trú á áframhaldandi vexti á

svæðinu og voru því stórhuga þegar ráðist var í byggingu verslunarinnar. 

ÁRBORG

Flóahreppur | ?Ég vil fá Listasafn Íslands til

að koma með listina þaðan hingað út á lands-

byggðina. Það hafa komið fulltrúar frá safninu

og skoðað aðstöðuna hérna. Þeim leist vel á en

það hefur ekkert orðið af þessu, stjórn safnsins

sér ekki tækifærin í því. En mér finnst bara

ekkert að því að sýna verk Listasafnsins hérna

í skólanum, alveg eins og listaverk annarra

listamanna,? sagði Valdimar Össurarson, verð-

andi ferðamálafulltrúi hins nýja Flóahrepps og

umsjónarmaður félagsheimilisins Þjórsárvers

í Villingaholtshreppi til sjö ára. 

Hann hefur unnið ötullega að uppbyggingu

ferðaþjónustu í austanverðum Flóa ásamt

heimafólki og ungmennafélaginu Vöku. Í Flóa-

skóla er nú starfræktur listsýningarsalur og

kaffihús ásamt nýstofnaðri Upplýsingamiðstöð

Flóahrepps.

Sýning Siggu á Grund

Sýning stendur nú yfir á verkum Sigríðar

Kristjánsdóttur listakonu frá Grund í Villinga-

holtshreppi. Um er að ræða útskornar styttur

og skúlptúra sem eiga engan sinn líka enda

hefur Sigga verið nefnd drottning útskurðar-

listarinnar. Margir sem skoða gripina hennar

Siggu segja þá hreint náttúruundur og svo

sannarlega eru þeir það, enda áferð gripanna

með hreinum ólíkindum. Sýning Siggu var

opnuð 17. júní í Flóaskóla og hafa um 800

manns komið og skoðað sýninguna og allir

dáðst að gripunum sem þar eru til sýnis. Gest-

irnir sem komu höfðu frumkvæði að því að

koma á fót undirskriftalista sem liggur frammi

í sýningarsalnum, en með honum eru yfirvöld

menningarmála í landinu hvött til þess að veita

Siggu á Grund listamannalaun svo hún geti

helgað sig list sinni. Það er vel tekið á móti

gestum sem koma á sýninguna og listakonan

er alltaf nærtæk. Ásamt Valdimar sér Guð-

björg Sigurðardóttir kona hans um starf-

rækslu á ?Listakaffi Þjórsárvers? í sumar.

Byggt á hugviti og hagleik

?Við tókum strax þá stefnu að efla ferða-

þjónustuna hérna og byggja Þjórsárver upp

með það í huga. Við náðum samstarfi við hina

hreppana hér í nágrenninu, Hraungerðishrepp

og Gaulverjabæjarhrepp. Þetta samstarf hér í

austanverðum Flóa hefur gengið mjög vel. Við

unnum stefnumótun fram til ársins 2010 og

höfum gert kort af svæðinu með gönguleiðum,

merktum sögustöðum og leiðarlýsingum,?

sagði Valdimar en hann hefur verið mjög ötull

talsmaður uppbyggingar í ferðamálum í Ár-

nessýslu og á Suðurlandi öllu. 

?Við erum hér á mjög góðu svæði, byggðin

er að lenda í útjaðri höfuðborgarsvæðisins og

hingað kemur fólk úr Reykjavík til að komast

út úr skarkalanum, fá sér kaffi og kynnast

menningunni á þessu svæði. Við leggjum

áherslu á sérstöðu okkar sem felst í náttúru-

farinu og menningunni og við bendum á það

sem við höfum en aðrir ekki. Hérna er t.d. hug-

vits- og hagleiksmenning ríkjandi í ættum sem

hér hafa búið og búa ennþá. Það kemst engin

byggð til jafns við þetta svæði á þessu sviði. Við

höfum sett upp sýningu á þessum þáttum und-

ir heitinu Hugvit og hagleikur þar sem þessir

þættir voru dregnir fram,? segir Valdimar og

honum svellur móður þegar hann lýsir þeim

fjársjóði sem felst í þessum menningarþáttum.

Í kringum þetta hefur verið gert myndband og

bók var gefin út sem heitir Hugvit og hagleikur

þar sem sagt er frá hagleiksfólki og uppgötv-

unum. 

Vilja stofna Tæknisafn Íslands

?Við þessar áherslur fór ýmislegt af stað og

farið var að líta til eldri muna sem til voru hér á

svæðinu og hafa gildi sem merkilegar uppfinn-

ingar eða hönnun. Sumir þessara muna hafa

verið teknir í geymslu og farið er að huga að

safni um þetta. Ferðamálanefnd Austur-Flóa

hefur unnið að stofnun Tæknisafns Íslands og

höfum við lagt mikla vinnu og fjármuni í þá

hugmynd. Við erum bjartsýn og vonumst eftir

góðri niðurstöðu í þeim efnum og teljum að hér

sé rétti staðurinn fyrir slíkt safn,? segir Valdi-

mar og leggur áherslu á orð sín. Hann segir og

að Þjórsárver hafi áunnið sér sess sem góður

staður til ættarmóta og er vel bókaður í allt

sumar sem slíkur. 

Félagsheimilin eru hjarta byggðarinnar

Með sameiningu hreppanna þriggja í Flóa-

hreppi standa hreppsbúar frammi fyrir miklu

verkefni sem er að nýta félagsheimilin til

menningarlegrar uppbyggingar í hinum nýja

hreppi og finna þeim verkefni. ?Félagsheimilin

eiga góða framtíð fyrir sér og mikla möguleika

sem hægt er að vinna úr. Með góðu skipulagi

má nýta sérstöðu þeirra hvers um sig og ná

fram góðri markaðssetningu þeirra. Hérna í

byggðinni slær sterkt félagslegt hjarta. Ung-

mennafélögin standa þétt á bak við félagsheim-

ilin og þau hafa unnið mikið verk í uppbygging-

unni hérna hvert í sínum hreppi. Það þarf ekki

annað en benda á að við erum á góðri siglingu í

menningarmálum, höfum hér í Þjórsárveri

haldið Tónahátíð, staðið fyrir leiksýningum

með góðri aðsókn og núna er myndlistin komin

á kreik hjá okkur og við verðum með myndlist-

arsýningar í sumar. 

Jón Ingi Sigurmundsson sýnir hér á eftir

Siggu á Grund, eða frá 15. júlí til mánaðamót-

anna júlí-ágúst. Hér hefur komið toppfólk í

tónlistinni og það er því ekkert því til fyrir-

stöðu að hingað geti komið listaverk í fremstu

röð frá Listasafni Íslands,? sagði Valdimar

sem býr í næsta nágrenni við Flóaskóla og gef-

ur starfinu mikið af tíma sínum. Hann segist

lesa mikið í frítímanum sem gefst. Áður var

hann vanur að síga í bjarg á Vestfjörðum enda

ættaður þaðan, frá Kollsvík við Patreksfjörð.

?Bjargsigið hef ég stundað frá unga aldri en nú

orðið fer maður hægar í þetta og fuglinn er líka

að hverfa vegna ætisleysis á þessum slóðum.

Þetta fer saman með tímaskorti hjá mér svo

það er sjálfgefið að hægja á í bjargferðum,?

segir Valdimar Össurarson ferðamálafulltrúi í

Flóahreppi.

Valdimar Össurarson ferðamálafulltrúi vill að sem flestir fái notið listar á landsbyggðinni

Listasafn Íslands

komi með listaverk

sín út á land

Morgunblaðið/Sverrir

Öflugur Seig áður í björg en einbeitir sér nú

að uppbyggingarstarfi.

ÞAÐ verður líf og fjör í Hrísey um helgina, fyrsta Avion-

mótið í siglingum á kænum fer þar fram í dag og einnig

verður hin árlega Skeljahátíð haldin í fimmta sinn.

Nú í vikunni hafa allir bestu siglingamenn landsins

verið í æfingabúðum í eynni undir stjórn Hafsteins Ægis

Geirssonar Ólympíufara, en siglingamennirnir eru frá

Akureyri, Hafnarfirði og Reykjavík. Ljómandi aðstaða er

fyrir æfingabúðir af þessu tagi í Hrísey, að sögn Rúnars

Þórs Björnssonar, formanns Siglingaklúbbsins Nökkva á

Akureyri, enda yfirleitt nægur vindur til staðar á þessum

slóðum. 

Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til Avion-móts í sigl-

ingum á kænum, en Avion Group er nýr bakhjarl Sigl-

ingasambands Íslands. 

Þá má gera ráð fyrir að margir leggi leið sína í Hrísey

til að fylgjast með árlegri Skeljahátíð, en mikið verður

um dýrðir í kringum hana. Gestum mun m.a. gefast kost-

ur á að bragða á bláskel, kynnast framleiðsluferlinu og

fræðast um bláskelina. 

Að auki ætla skútueigendur á Eyjafjarðarsvæðinu að

sigla seglum þöndum að Hrísey og koma þar saman um

helgina og munu þeir án efa setja sinn svip á hátíðahöldin

sem fyrir eru.

Líf og fjör, siglingar og skeljar í Hrísey um helgina

Ljósmynd/Rúnar Þór

Seglum þöndum Siglingamenn hafa verið í æfingabúðum við Hrísey í vik-

unni og í dag hefst keppni á fyrsta Avion-mótinu sem þar verður haldið.

Sigling Hafsteinn Ægir Geirsson, ólympíufari og sigl-

ingakappi, á siglingu. Með honum í för var Ásdís, 11 ára

gömul systir hans, sem greinilega hafði gaman af.

L50098L50098L50098

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56