Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						30 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ

DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ

Góð gisting í Kaupmannahöfn

Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.

fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.

Tökum einnig á móti hópum.

Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.

Sími +45 33 79 67 20.

www.loeven.dk ? loeven_bb@hotmail.com

24.200

Vika í Danmörku

kr. - ótakmarkaður akstur,

kaskó, þjófavörn, flugvallargjald

og skattar.

ÍSLENSKA

AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS

HER

32546

05/2006

Bíll úr flokki A

50 50 600 ? www.hertz.is

*

Bókaðu bílinn heima

- og fáðu 500 Vildarpunkta

*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.

frá

E

þíópía þarf virkilega á ferða-

mönnum að halda en efna-

hagur landsins er bágborinn

og verðlag eftir því sem þýðir aftur á

móti að þar er hagstætt fyrir okkur

að ferðast,? segir Þóroddur F. Þór-

oddsson.

Þátttakendur í gönguferðinni

ásamt honum voru þau Guðlaug

Sveinbjarnardóttir, Höskuldur Jóns-

son, Inga Jónsdóttir, Páll Gunn-

laugsson, Sif Konráðsdóttir og Vigdís

Erlendsdóttir. Sumir höfðu ferðast

saman áður, aðrir ekki, en hópurinn

hristist vel saman.

Ferðin hófst 3. nóvember sl. og

stóð til 13. sama mánaðar. Göngu-

ferðin tók átta daga og gengið var um

Simen-þjóðgarðinn, m.a. á hæsta tind

Eþíópíu og fjórða hæsta fjall Afríku,

Ras Dajen (4.620 m). Hentugast er

að ferðast á þessar slóðir í október og

nóvember en regntíminn stendur frá

júní og fram undir lok september.

Eftir það er gróður í blóma, náttúran

skartar sínu fegursta og hitinn er

ekki óbærilegur, að sögn Þórodds.

Hópurinn flaug til London og þaðan

til höfuðborgar Eþíópíu, Addis

Ababa, með British Airways. Þar tók

ferðaskrifstofan Red Jackal við

hópnum og sá um ferðina innan-

lands. Þóroddur mælir með þessu

fyrirkomulagi þar sem þannig skilja

ferðamennirnir mest verðmæti eftir í

landinu í staðinn fyrir að greiða er-

lendum milliliðum þjónustugjöld.

Ferðin innan Eþíópíu kostaði um

þúsund dollara á mann sem sam-

svarar um 73.000 íslenskum krónum

og eru þá innifaldar flugferðir til og

frá Gonder, allur akstur, fullt fæði

allan tímann, fjórar nætur á hóteli og

9 dagar í gönguferð með tjöldum,

dýnum, borðum og stólum. Að auki

koma ferðir frá Íslandi til Eþíópíu.

Vopnaðir skátar stóðu vörð

?Ferð okkar í Eþíópíu hófst með

flugi til hinnar fornu höfuðborgar

Gonder,? segir Þóroddur. Þaðan var

ekið upp í fjöllin og inn í Simen-

þjóðgarðinn sem var stofnaður 1975?

1977. ?Til að komast inn í hann þarf

að ráða bæði viðurkenndan leiðsögu-

mann og einn til tvo vopnaða ?skáta?

sem hafa það hlutverk að gæta tjald-

búðanna og verja ferðamenn gegn

sjakölum, hýenum og öðrum rándýr-

um. Sem heimamenn þekkja þeir vel

til hvar líkur eru á að sjá sjaldgæf

dýr, svo sem fjallageitur (Walya

ibexes), en þær eru sú spendýrateg-

und sem er í hvað mestri útrýming-

arhættu á jörðinni. Leiðsögumaður

okkar, Salomon, var tæplega þrítug-

ur kennari sem hafði starfað í mörg

ár í skólum sem verið var að koma

smám saman upp í þorpum umhverf-

is þjóðgarðinn og var mjög fróður

um bæði náttúru og mannlíf,? segir

Þóroddur. 

Í pakkanum sem keyptur var af

ferðaskrifstofunni var allt innifalið,

þ.e. þjónusta leiðsögumannsins og

?skátanna?, auk þess voru burð-

armenn með í för og kokkar sem eld-

uðu ofan í mannskapinn. ?Ég hefði

verið til í að fara þessa ferð með allt á

bakinu og þurft að sjá um tjald og

matseld, áður en ég fór, ekki vitandi

hve það er mikill munur að þurfa að-

eins að hafa lítinn hryggsekk með

búnaði til dagsins, ekki síst þegar

hitinn var kominn vel yfir 20°C. Síð-

ast en ekki síst kostar þjónusta

heimamanna okkur lítið og ber okk-

ur að kaupa hana að eins miklu leyti

af þeim og kostur er og stuðla þannig

að bættum lífsgæðum heimamanna,

við getum kallað það einstaklings-

bundna þróunaraðstoð,? segir Þór-

oddur.

Gengið í 3-4 þúsund metra hæð

Gönguleiðin var að mestu hefð-

bundin gönguleið útlendra ferða-

manna og þeirra um eitt hundrað

manns sem fara alla leið á hæsta tind

Simen-fjalla á ári. Nokkuð kom á

óvart hvað hækkun og lækkun gat

verið mikil einstaka daga en engar

leiðir voru beinlínis erfiðar, að sögn

Þórodds. Ferð eins og þessi hentar

breiðum hópi, allt frá unglingum upp

í eftirlaunaþega sem eru vanir göngu-

ferðum og að sofa í tjaldi. Þátttak-

endur þurfa að vera í góðu göngu-

formi svo þeir njóti ferðarinnar,

dagleiðir eru drjúgar, göngulandið

töluvert mishátt og gengið er í 3000?

4000 m hæð svo þunnt loftið segir til

sín, að sögn Þórodds. Á daginn var

gengið í stuttbuxum og hlýrabol en

fljótlega eftir að kom í náttstað gekk

sólin undir og þá var nauðsynlegt að

klæða sig vel, og í tjaldstað yfir 3.000

m hæð fer hitinn niður fyrir frost-

mark á nóttunni. Á fjórða degi var

farið á hæsta tindinn. ?Það var um

ellefu klukkustunda ferð og hækk-

unin um 1.500 metrar, jafnt á fótinn

nema klungur svipað og upp á Þver-

fellshornið á Esjunni í lokin.? Þór-

oddur er vanur göngumaður og sjálf-

ur getur hann helst borið ferðina

saman við gönguferð upp í grunn-

búðir Everest. ?En þetta var miklu

auðveldara, minni hæð, hlýtt á daginn

og engin magakveisa, hvorki vegna

matar eða hæðar,? segir hann. ?Það

sem gerir þetta göngusvæði sérstakt,

og reyndar ferðasvæðið allt, er ná-

lægðin við íbúa landsins og að kynn-

ast baráttu þeirra fyrir lífsviðurværi

sem lætur engan ósnortinn. Það má

benda á að um leið og ferðamaður

upplifir einstaka náttúru og mannlíf á

þessu svæði styður hann við afkomu

fólksins og fátt hlýtur að vera nota-

legra að loknu vel heppnuðu fríi en að

finna slíkt,? segir Þóroddur. 

Gönguferðir í útlöndum verða æ vinsælli meðal Íslendinga og má nefna Spán, Ítalíu, Alpana og fleira í því sambandi. Eþíópía er ekki á

meðal þeirra landa sem fyrst koma upp í hugann þegar Íslendingar hyggjast leggja land undir fót en Þóroddur F. Þóroddsson fór ásamt

sex öðrum í gönguferð í Eþíópíu á síðasta ári og var afar ánægður með ferðina. 

L52159EÞÍÓPÍA 

Eftir Steingerði Ólafsdóttur

steingerdur@mbl.is

www.redjackal.net. 

Með fjallageitum 

Ljósmynd/Þóroddur

Gönguferðin tók átta daga og gengið var um Simen-þjóðgarðinn en þar er einstakt gönguland.

Allt var innifalið og kokkar elduðu ofan í mannskapinn. 

FIMMTÁN ár eru síðan sumarþjónustusvæðið að

Hamragörðum undir Eyjafjöllum hóf starfsemi sína.

Guðlaug Jóna Helgadóttir er nú umsjónarmaður tjald-

svæðisins ásamt yngri systur sinni Hugrúnu Helgadótt-

ur. Þær systur tóku við umsjóninni af foreldrum sínum,

Sigrúnu Adolfsdóttur og Helga Friðþjófssyni, fyrir

nokkrum árum

?Rangárþing eystra á staðinn og rekur og við sjáum

um hann. Hamragarðar er gamall sveitabær sem var

byggður um 1900 og er nú friðaður. Karlinn sem bjó á

bænum gaf Skógrækt ríkisins jörðina og hreppurinn

keypti hana svo af skógræktinni og setti upp tjaldstæði,?

segir Guðlaug. ?Tjaldstæðið er með snyrtiaðstöðu,

sturtu og rafmagnsinnstungum fyrir felli- og hjólhýsi.

Nú er verið að bæta aðstöðuna og byggja nýtt þjónustu-

hús og fjölga rafmagnsinnstungunum.?

Aðsóknarmet síðasta sumar

Guðlaug segir aðsóknina að Hamragörðum hafa aukist

með hverju sumri síðan opnað var og síðasta sumar hafi

öll met verið slegin í gestafjölda. ?Sama fólkið kemur

mikið aftur og aftur og það tekur svo nýtt fólk með sér

og svoleiðis hefur ásóknin aukist. Erlendir ferðamenn

koma líka mikið hingað, þeir eru oft á þessari leið og

náttúrufegurð tjaldstæðisins dregur þá að.?

Helsta aðdráttarafl tjaldstæðisins er einmitt sú nátt-

úruperla sem það er staðsett í. ?Bærinn Hamragarðar

stendur á milli Gljúfrabúa og Seljalandsfoss, hér er frið-

sælt og umhverfið fallegt. Skjólgott er fyrir ríkjandi átt-

um og kvöldsólin getur verið fögur. Gönguferðir í ná-

grenni staðarins eru vinsælar, t.d að Eyjafjallabrúnum

og Paradísarhelli. Þá er stutt í ökutúr að Skógafossi og

Byggðarsafninu að Skógum, 30 km eru til Þórsmerkur

og 20 mín. akstur til Hvolsvallar. Það er mikið um það að

fólk tjaldi hjá okkur og fari svo í dagsferð inn í Þórsmörk

eða keyri um Fljótshlíð, svo eru margir sem bara eru á

tjaldstæðinu og njóta lífsins,? segir Guðlaug og bætir við

að það sé helst fjölskyldufólk og eldri borgarar sem sæki

Hamragarða heim.

L52159FERÐALÖG | Sumarþjónustusvæðið að Hamragörðum undir Eyjafjöllum

Verið að bæta

aðstöðuna á

tjaldstæðinu

Ljósmynd/Þorberg Ólafsson

Hamragarðar standa í skjólgóðri náttúruperlu.

Eftir Ingveldi Geirsdóttur

ingveldur@mbl.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56