Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 43

LANDSMÓT HESTAMANNA

DAGSKRÁIN á landsmótinu á

Vindheimamelum var ósvikin vara.

Sannkölluð stóðhestaveisla beið

gesta í morgunsárið en fjögurra

vetra hestar riðu á vaðið í yfirlits-

sýningu. Kraftur frá Efri-Þverá

stóð þar efstur með einkunnina

8,35 og skaust þar með fram fyrir

Krák frá Blesastöðum sem er ein-

ungis kommu á eftir, með 8,34 í að-

aleinkunn. Trostan frá Auðs-

holtshjáleigu er síðan þriðji í

flokknum með 8,28.

Segja má að Otur frá Sauðár-

króki komi sterkur inn í fimm

vetra flokknum því Þeyr frá Akra-

nesi, sem er annar í röðinni, er

undan Otri og efsti hestur, Vil-

mundur frá Feti, er undan Orra

Oturssyni. Aðaleinkunn Vilmundar

er 8,56 og Þeys 8,55. Gaumur frá

Auðsholtshjáleigu er næstur með

8,53.

Kúvending varð í sex vetra

flokknum frá forsýningunni en

Eldjárn frá Tjaldhólum hækkaði

stórum upp í fyrri einkunnir, með

aðaleinkunnina 8,53, m.a. fékk

hann tíu fyrir vilja og geðslag.

Fursti frá Stóra-Hofi kemur næst-

ur með 8,51 og þá Gígjar frá Auðs-

holtshjáleigu.

Mestu tíðindin urðu þó í elsta

flokknum, sjö vetra og eldri, en þar

var heimsmet slegið, hvorki meira

né minna. Stáli frá Kjarri hlaut

hæfileikaeinkunnina 9,09, aðalein-

kunn 8,76, og er þar með hæst

dæmdi stóðhestur í heimi. Næstur

er Þokki frá Kýrholti með 8,64 og

Aðall frá Nýjabæ þriðji með 8,64.

B-flokksgæðingar reyndu með

sér í milliriðli og sem fyrr er

Rökkvi frá Hárlaugsstöðum efstur,

kemur inn í úrslitin með ein-

kunnina 8,57. Annar er Muggur frá

Hafsteinsstöðum með 8,57 og þriðji

Röðull frá Kálfholti, 8,54. Í A-

flokknum er Geisli frá Sælukoti

enn efstur með 8,74, Þóroddur frá

Þóroddsstöðum er næstur með 8,64

og Skugga-Baldur frá Litla-Dal á

hæla honum með 8,63. B-úrslit

verða riðin í dag í A- og B-flokkum

og getur einn úr hvorum flokki

unnið sér þátttökurétt í A-úrslit-

unum á morgun. Í úrslitunum er

feti og stökki sleppt og því von á

breytingum á ný á efstu hestum ?

fyrir vikið ríkir spenna fram á síð-

ustu stundu. 

Í B-úrslitunum í töltinu í gær-

kvöldi varð efstur Skúmur frá

Neðri-Svertingsstöðum, knapi Hin-

rik Bragason, og fékk þar með far-

seðil í A-úrslitin í kvöld sem verða

án efa þrælskemmtileg.

Stáli frá Kjarri með heimsmet

Morgunblaðið/Eyþór

Stáli frá Kjarri setti heimsmet í kynbótadómi stóðhesta í gær. Knapinn er Daníel Jónsson.

Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur og

Ingveldi Geirsdóttur

HINRIK Ólafsson leikari lét fara vel um

sig í brekkunni ásamt fjölskyldunni

þegar yfirlitssýning stóðhesta fór fram.

?Ég kom á miðvikudaginn og þetta er

stórkostlegt mót, svæðið hérna er miklu

betra en ég hafði gert mér grein fyrir

að það gæti orðið.? Aðspurður hvernig

honum lítist á mannlífið segir Hinrik að

hann sé nú lítið að fylgjast með því,

heldur séu það hestarnir sem hann horfi

á. Hann dæsir þegar hann er spurður

hvaða hest honum lítist best á og segir

að erfitt sé að gera upp á milli. ?Vil-

mundur frá Feti, Eldjárn frá Tjaldhól-

um, Blíða frá Flögu eru nokkur sem má

nefna og það sem mér finnst athygl-

isverðast við þetta er hvað ungu kyn-

bótahrossin skila miklu hérna. Þau

koma nánast fullsköpuð fram,? segir

Hinrik og er greinilega hamingjusamur

með landsmótið í ár.

Kom til að horfa á hestana

Hinrik, Drífa, Blær, Þóra, Máni, Elísabet, Ísak og hundurinn Stalíon láta fara vel um sig í brekkunni.

Morgunblaðið/Eyþór

BRITTA Larsen sat í brekk-

unni og smurði sér samloku

með hangikjöti og baunasal-

ati. Britta er frá Danmörku

en talar íslensku þar sem

hún vann í sveit á Íslandi fyr-

ir hátt í tuttugu árum. ?Eftir

að ég varð stúdent kom ég

hingað til að vinna með hesta

og fór á landsmót í fyrsta

skipti árið 1986 og þetta er

fjórða mótið mitt. Mér líst vel

á og hef mjög gaman af.

Þetta landsmót er betra en

árið 2000, en ég fór síðast þá,

og hestarnir eru frábærir.

Ég sjálf er með sex íslenska

hesta í Danmörku og er að

rækta svolítið.? 

Britta kom á þriðjudaginn

með vinkonu sinni og hefur

hitt mikið af Dönum á svæð-

inu. Aðspurð hvort henni

finnist svona íslensk hangi-

kjötssamloka góð segir hún

svo vera en að hún borði

hana aðeins þegar hún sé

stödd hér á landi, hún sé ekk-

ert að smyrja svona samloku

úti í Danmörku. 

Britta Larsen smyr sér samloku með hangikjöti og salati í

landsmótsbrekkunni í góða veðrinu á Vindheimamelum í gær. 

Smyr samloku

í brekkunni

GUÐMAR Þór Pétursson tamn-

ingamaður og reiðkennari hefur

fylgst með keppninni allan tímann en

er einnig búinn að vera með kennslu

við Hólaskóla þessa viku. Hann býr

nú úti í Ameríku og er því ekki að

keppa á þessu landsmóti. ?Ég kom til

landsins með hóp af Ameríkönum í

kennslu-, landsmóts- og hestaferð í

bland, þeim líst vel á þetta og eru

ánægðir með hrossin.? Guðmar er á

því að hestarnir í ár séu magnaðir og

batni með hverju árinu. ?Þetta hefur

aldrei verið betra. Mér finnst mótið

fara vel af stað, svæðið lítur vel út og

mannlífið er gott og ég vona að þetta

haldi áfram svona fram á sunnudag.?

Guðmar vill ekkert segja til um hver

sé uppáhalds hestur hans á mótinu.

?Þeir eru svo margir að það er

ómögulegt að gera upp á milli þeirra,

það er frábær hestakostur hérna og

ansi margir sem maður vildi taka

með sér heim.? Guðmar keppti síðast

á landsmóti fyrir fjórum árum á

Vindheimamelum og þótt hann keppi

ekki í ár mega Íslendingar eiga von á

að sjá hann á landsmótsvellinum aft-

ur að einhverjum tíma liðnum.

Með hóp af 

Ameríkönum

Guðmar Þór segir hestakostinn á landsmótinu í ár vera frábæran.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56