Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 49

MENNING

Nú bjóðum við frábært tilboð á

síðustu sætunum til Trieste á Ítalíu

5. júlí í 1 eða 2 vikur eða 12. júlí í

viku. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir

aðeins fyrir 1. Gríptu tækifærið og

skelltu þér til Ítalíu eða yfir til Króatíu

á einstökum kjörum. Gisting í Porec í

Króatíu í boði og hinum einstaklega

fallega bæ Rovinj.

Skógarhlíð 18 ? sími 595 1000 ? www.heimsferdir.is

2 fyrir 1 til

Ítalíu/Króatíu

5. eða 12. júlí

frá kr. 19.990

Aðeins örfá sæti

Munið Mastercard

ferðaávísunina

Gisting frá kr. 2.900

Netverð á mann á nótt, m.v. 2 í herbergi

með hálfu fæði á Hotel Delfin í Porec.

Verð kr. 19.990

Flugsæti báðar leiðir með sköttum,

m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Netverð á mann.

Mr. Skallagrímsson

- leiksýning í Borgarnesi

MIÐAPANTANIR

Í SÍMA 437 1600

Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson

Leikstjóri: Peter Engkvist

Leikhústilboð. frá kr. 4000 - 4800

Matur, leiksýning og frítt í Hvalfjarðargöngin

til baka. í boði Landnámsseturs

Lau. 1. júlí kl. 20 laus sæti

Sun.2. júlí kl. 20 laus sæti

Fös. 7. júlí kl. 20 laus sæti

Lau. 8. júlí kl. 20 laus sæti

Sun.9. júlí kl. 20 laus sæti

Fös. 14. júlí kl. 20 laus sæti

Lau. 15. júlí kl. 20 laus sæti

Sun.16. júlí kl. 20 laus sæti

Fös. 21. júlí kl. 20 laus sæti

Lau. 22. júlí kl. 20 laus sæti

Sun.23. júlí kl. 20 laus sæti

Fös. 28. júlí kl. 20 laus sæti

Lau. 29. júlí kl. 20 laus sæti

Sun.30. júlí kl. 20 laus sæti

ÞAÐ kemur ekki á óvart að dansinn

er í aðalhlutverki í þessari sýningu á

stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.

Kvikmyndin sem þessi söngleikur er

byggður á var ekki söngvamynd

heldur voru samin ýmis lög og textar

sem vísuðu til atriða í myndinni og

persónurnar gátu dansað eftir. Aðrar

slíkar myndir frá svipuðum tíma sem

koma upp í hugann eru Flashdance

frá 1983 og Dirty Dancing frá 1987.

Þessar þrjár myndir eiga það líka

sameiginlegt að dans er í þeim öllum

tákn fyrir frelsi einstaklingsins gegn

utanaðkomandi öflum sem vilja hefta

aðalpersónurnar á einhvern hátt.

Söguhetjurnar nota dansinn til að

berjast fyrir einhverju sem skiptir

þær miklu máli, gegn því sem stend-

ur þeim fyrir þrifum og svo auðvitað

til að tjá drauma sína og þrár.

Unnur Ösp Stefánsdóttir kemur

hér fram á sjónarsviðið sem leikstjóri

í atvinnuleikhúsi og má vel við una.

Það er ekki heiglum hent að stýra

tuttugu og þremur leikurum, döns-

urum og söngvurum á sviði samtímis.

Enda kemur á daginn að hún hafði

tækifæri til að fylgjast með þeim

leikstjóra íslenskum sem hefur náð

hvað bestum árangri í fjölmennum

sýningum, Þórhildi Þorleifsdóttur,

en Unnur var henni til aðstoðar við

uppsetningu á söngleiknum Chicago

fyrir tveimur og hálfu ári. Unnur hef-

ur líka lært af því sem þar fór miður

og fellur aldrei í þá gryfju að hleypa

lítt fótafimum leikurum á svið til að

dansa í hópatriðum. Hér dansa að-

eins þeir sem til þess eru færir með

frábærum árangri.

Sænski danshöfundurinn Roine

Söderlundh hefur unnið stórvirki við

að ná því besta fram úr danshópnum.

Hann leggur litla áherslu á stífan

hópdans þar sem allir dansa sömu

sporin á sama tíma enda á mörk-

unum að karldansararnir nái að

dansa sannfærandi saman í takt. Í

staðinn leyfir hann hverjum ein-

stökum dansara að njóta sín í því sem

hann gerir best. Hvort sem dans-

ararnir koma úr dansflokknum, hafa

þroskast í samkvæmisdönsum eða

hlotið þjálfun í fjölmörgum söng-

leikjauppsetningum síðari ára fá allir

hér tækifæri til að sýna hvað í þeim

býr og hópatriðin eru á stundum ein-

staklega glæsilega útfærð. Heildar-

útkoman í flutningi lagsins ?Sá eini

sanni? var t.d. frábær, þar var spenn-

an byggð upp hægt og bítandi og þó

að söngurinn hefði mátt vera betur

heppnaður voru allir aðrir þættir

eins og best verður á kosið.

Ísak Halldórsson Nguyen, Guð-

mundur Elías Knudsen, Brad Sykes,

Maxim Petrov og Bjartmar Þórð-

arson standa sig best karldans-

aranna og komust ágætlega frá því

að leika lítil hlutverk. Sigurjón Brink

og Þorvaldur Davíð Kristjánsson

fylgja þeim fast á eftir. Lovísa Ósk

Gunnarsdóttir og Selma Björnsdóttir

eru fremstar í flokki danskvenna,

Halla Vilhjálmsdóttir var alveg á

hæla þeim ásamt Írisi Maríu Stef-

ánsdóttur og Ástu Bærings Bjarna-

dóttur.

Dansatriðin iðuðu af lífi: sífellt ný

spor, sannfærandi heildarmynd,

skiptingar á dönsurum úr og í dans-

inn skapaði endalausa fjölbreytni svo

það var nær aldrei dauður punktur.

Söderlundh hefur greinilega einstaka

hæfileika til að byggja upp drama-

tíska spennu í hverjum dansi þar til

hápunkti er náð.

Sviðsmyndin var einföld, gríð-

arlegur stillans með alls níu rýmum

sem sum styttri atriðin voru leikin í.

Veigameiri hlutar voru leiknir fram-

arlega á sviðinu og í fjölmennari at-

riðum var járnbákninu lyft til að gefa

rými og fjölbreytni. Það var greini-

legt að leikmyndin var hugsuð út frá

dansinum og sem slík nýttist hún vel.

Myndum og munstrum var varpað á

fletina til að gefa til kynna breytta

staðhætti.

Ljósahönnunin var fjölbreytt en

það hefði verið gaman ef gengið hefði

verið lengra og ljósin höfð ýktari í

anda tímabilsins, sérstaklega þegar

tillit er tekið til fábreytni leikmynd-

arinnar.

Einnig kom það nokkuð á óvart að

búningarnir væru ekki meira notaðir

til að ýta undir grínið. Kannski hafa

aðstandendur talið að ýktustu þætt-

irnir í tísku tímabilsins yrðu leik-

urunum fjötur um fót en í raun er

þarna upplagt tækifæri látið ónotað.

Leikurinn kemur í heild skemmti-

lega á óvart. Þó að verkið sjálft gefi

ekki færi á mjög djúpri persónusköp-

un var flest vel af hendi leyst. Þor-

valdur Davíð Kristjánsson og Halla

Vilhjálmsdóttir eru mjög sannfær-

andi sem hið aðlaðandi ástfangna par

enda bæði stórglæsileg með mikinn

sviðssjarma.

Það eru Aðalbjörg Árnadóttir og

Jörundur Ragnarsson sem koma

mest á óvart á gamannótunum í hlut-

verkum ?bestu vina aðal?. Aðalbjörg

finnur sífellt nýjar skoplegar hliðar á

persónu sinni til að leyfa áhorfendum

að hlæja að og það var hrein unun að

fylgjast með Jörundi kljást við hinn

einfalda sveitadreng. Hann gefur

aldrei neitt eftir og er ávallt jafn

sannfærandi í túlkun persónunnar,

hvort sem er í tali, tiktúrum, dansi

eða söng.

Selma Björnsdóttir og Lovísa Ósk

Gunnarsdóttir komast vel frá sínu í

hlutverkum vinkvennanna sem og

Guðmundur Ingi Þorvaldsson sem

hinn ofbeldisfulli kærasti prestsdótt-

urinnar. Jóhann Sigurðarson nær vel

að sökkva sér ofan í persónu hins

tregafulla predikara rétt eins og hóp-

ur rútíneraðra leikara, Sóley Elías-

dóttir, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir,

Páll Sigþór Pálsson, Margrét Áka-

dóttir og Björk Jakobsdóttir, fer létt

með lítil hlutverk fullorðna fólksins.

Söngvarar og dansarar leika svo

ennþá minni hlutverk með ágætum.

Gísli Rúnar Jónsson leikur sér að

nútímaorðfæri með viðeigandi slett-

um og orðskrípum þó að fjölmargt

slíkt af flóknara taginu skili sér illa

fram í sal. Helstu söngtextarnir hitta

beint í mark enda vandaðir og

smellnir en á stundum er klisjum

hlaðið á klisjur ofan eins og í texta

Jóhanns Sigurðarsonar undir lokin

þar sem Gísli Rúnar leitar m.a. fanga

í Aravísum. Það er greinilegt að grín-

ið hvetur þýðandann til stórra verka

en væmnislegu kaflarnir lama dug

hans og þor.

Útsetningar Þorvalds Bjarna Þor-

valdssonar eru hæfilega mikið í anda

níunda áratugarins auk þess sem

hann lagar þær að nútímagildum. Í

upphafi ?Þess eina sanna? leikur

hann sér t.d. mjög skemmtilega að

því að bjaga hljóminn áður en hann

breikkar hann út eins og mögulegt

er. Þetta er aðeins ein af fjölmörgum

skemmtilegum lausnum og það er

greinilegt að Þorvaldi er umhugað

um að ná sem mestum mögulegum

krafti út úr hröðu lögunum með þétt-

um hljómi enda hljóðfæraleikurinn

snarpur, áferðarfallegur og snurðu-

laus.

Í þeim tilfellum sem óskyld lög frá

tímabilinu hafa verið valin í sýn-

inguna og önnur felld úr söng-

leiknum í staðinn er það til bóta enda

nauðsynlegt hér að áhorfendur grípi

laglínuna í meirihluta tónlistarinnar.

Hver sá sem ætlar að setja upp

söngleik hér á landi stendur ósjálf-

rátt frammi fyrir töluverðum vanda.

Hvað á að vera í fyrirrúmi við val á

flytjendum. Sönghæfileikar, dansk-

unnátta, færni í leik, útlit og fyrri

sigrar í skemmtanabransanum eru

allt þættir sem koma til greina. Þar

sem dansinn er hér greinilega í fyr-

irrúmi með glæsilegum árangri verð-

ur eitthvað undan að láta og hér á

það við söng nokkurra flytjendanna.

Sumir söngvaranna standa sig

samt með prýði. Selma Björnsdóttir

er þar fremst í flokki og Aðalheiður

Ólafsdóttir (Heiða í ?Idol?) skilar

vandaðri vinnu. Jóhann Sigurðarson

fer líka létt með þann söng sem hon-

um er falinn og Matthías Matthías-

son hljómar að vanda vel. Þessir

söngvarar ásamt ýmsum öðrum eru

svo akkeri sýningarinnar í kór-

söngnum sem bregst hvergi.

Vandamálið er frammistaða

söngvara í aðalhlutverkum. Það er

samt langt í frá að þau valdi ekki

hlutverkunum enda ekkert út á túlk-

un þeirra í lögunum að setja, það

hljómar meira eins og þau hafi ekki

lært nógu mikið á raddir sínar til að

beita þeim skynsamlega.

Þau áttu það öll sammerkt á frum-

sýningu Þorvaldur Davíð Krist-

jánsson, Halla Vilhjálmsdóttir og

Guðmundur Ingi Þorvaldsson að ná

ekki hæstu tónunum í kraftmeiri lög-

unum og í raun virtist gæta þreytu í

röddinni í öllum þremur tilfellunum

þannig að örlaði á hæsi. Það sem

rennir stoðir undir þetta er að þau

voru öll betri á aðalæfingu. Þorvald-

ur og Halla skiluðu aftur á móti

söngnum mun betur í rólegu lög-

unum á frumsýningu. Öll hafa þau

fallegar raddir, eins og t.d. frammi-

staða Höllu á kynningarútgáfu ?Þess

eina sanna? sýnir, þess hefur bara

ekki verið gætt að ofgera þeim ekki.

Þetta er lýti á annars vel heppnaðri

sýningu og það er að vona að þre-

menningunum gefist ráðrúm til að

hvíla raddirnar og beita þeim betur.

Frumuppsetning söngleiksins Fo-

otloose hér á landi er skemmtileg

sýning og vel útfærð. Unnur Ösp

Stefánsdóttir, Þorvaldur Bjarni Þor-

valdsson og Roine Söderlundh mega

vera stolt af sínum þætti í sýningunni

og Halla Vilhjálmsdóttir, Þorvaldur

Davíð Kristjánsson, Aðalbjörg Árna-

dóttir og Jörundur Ragnarsson

sanna að þau eiga framtíð fyrir sér á

sviði. Aðal sýningarinnar er fjör-

mikil, fjölbreytt og glæsileg dans-

atriði, kunnugleg tónlist sem er gam-

an að rifja upp að nýju og lunkinn

gamanleikur.

Aðstandendum var klappað lof í lófa. Í dóminum segir að listrænir stjórnendur megi vera stoltir af sínum þætti.

Dansinn í fyrirrúmi 

LEIKLIST 

Borgarleikhúsið ? 3 Sagas 

Entertainment og Á þakinu 

Höfundar söngleiksins: Dean Pitchford

og Walter Bobbie. Höfundur upphaflegs

kvikmyndahandrits og söngtexta: Dean

Pitchford. Íslensk þýðing, aðlögun og

leikgerð: Gísli Rúnar Jónsson. Höfundur

meginhluta tónlistar: Tom Snow. Aðrir

lagahöfundar: Eric Carmen, Sammy Hag-

ar, John Cougar Mellencamp, Kenny

Loggins, Michael Sembello og Jim Stein-

man. Tónlistarstjóri og útsetjandi: Þor-

valdur Bjarni Þorvaldsson. Hljóðfæraleik-

arar: Friðrik Sturluson, Kjartan

Valdemarsson, Ólafur Hólm, Vignir Snær

Vigfússon og Þorvaldur Bjarni Þorvalds-

son. Danshöfundur: Roine Söderlundh.

Útlitshönnun (ljós og leikmynd): Egill

Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir.

Búningahönnun: Hildur Hafstein. Förðun:

Fríða María Harðardóttir. Hár: Magni Þor-

steinsson. Hljóð: Gunnar Árnason. Leik-

stjóri: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Leikarar,

dansarar og söngvarar: Aðalbjörg Árna-

dóttir, Aðalheiður Ólafsdóttir, Ásta Bær-

ings Bjarnadóttir, Bjartmar Þórðarson,

Björk Jakobsdóttir, Brad Sykes, Guðlaug

Elísabet Ólafsdóttir, Guðmundur Elías

Knudsen, Guðmundur Ingi Þorvaldsson,

Halla Vilhjálmsdóttir, Íris María Stef-

ánsdóttir, Ísak Halldórsson Nguyen, Jó-

hann Sigurðarson, Jörundur Ragnarsson,

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Margrét Áka-

dóttir, Matthías Matthíasson, Maxim

Petrov, Páll Sigþór Pálsson, Selma

Björnsdóttir, Sigurjón Brink, Sóley Elías-

dóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Borgarleikhúsið: Fimmtudagur 29. júní.

FOOTLOOSE 

Sveinn Haraldsson 

UM þessar mundir hefst 20. starfsár

Sumartónleika við Mývatn og verða

fyrstu tónleikarnir í Reykjahlíðar-

kirkju í kvöld kl. 21. Margrét Bóas-

dóttir hefur verið listrænn stjórn-

andi frá upphafi og verða

lokatónleikar sumarsins hundr-

uðustu tónleikarnir. Á fyrstu tón-

leikunum kemur fram tónlistarhóp-

urinn Katla. Kötlu skipa Svava K.

Ingólfsdóttir, Jóhanna Valsdóttir,

Magnús Ragnarsson og Bjartur

Logi Guðnason. Á efnisskránni eru

íslensk þjóðlög, einsöngslög, kór-

tónlist og útsetningar og frumsamin

tónlist eftir Magnús og Bjart Loga. 

Tónlistarflytjendurnir í sumar

tengjast allir Mývatnssveitinni á

einhvern hátt. Tónleikarnir eru að

jafnaði klukkustund og er aðgangur

ókeypis. Þeir verða í Reykjahlíð-

arkirkju öll laugardagskvöld í júlí

og einnig verða tvennir tónleikar á

sunnudagskvöldum í Skútustaða-

kirkju.

Sumartón-

leikar 

við Mývatn

Morgunblaðið/ Jim Smart

Tónlistarhópurinn leikur á fyrstu

Sumartónleikunum við Mývatn í ár.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56