Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 209. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Bach frá blautu barnsbeini Elfa Rún fiðlusnillingur hlustar á tónlist fyrir svefninn | Menning Jerúsalem. AFP. | Liðsmenn Hizbollah-hreyf- ingarinnar í Líbanon skutu í gær 230 flug- skeytum á Ísrael og hafa ekki skotið jafn- mörgum flugskeytum á einum degi frá því að átök þeirra og Ísraelshers hófust fyrir rúm- um þremur vikum. Árásir Hizbollah náðu jafnframt lengra inn í Ísrael en áður. Eitt flugskeytanna lenti nálægt ísraelska bænum Beit Shean, um 60 km sunnan við landamærin. Er þetta í fyrsta skipti sem flugskeyti lendir nálægt þéttbýl- asta svæði Ísraels í miðhluta landsins. Einn Ísraeli beið bana í árásunum og um 20 særðust. Hermt er að Hizbollah hafi í fyrsta skipti beitt sýrlensku flugskeyti sem sé með stærri sprengihleðslu og langdrægara en vopnin sem hreyfingin hefur beitt til þessa. Hizbollah-menn hafa skotið yfir 2.000 flug- skeytum á Norður-Ísrael frá því að átökin hófust 12. júlí. Nítján Ísraelar hafa beðið bana í árásunum. Yfir 800 Líbanar, flestir þeirra almennir borgarar, hafa látið lífið í árásum Ísraela. Hizbollah herðir árásirnar HVORKI hærri laun né meira starfsöryggi eru afgerandi þættir þegar danskir laun- þegar íhuga að skipta um vinnu heldur skiptir mestu máli að starf sé áhugavert og krefjandi, samkvæmt nýrri rannsókn. „Ánægjan með vinnuna sjálfa hefur mest að segja um hvort maður ákveður að hætta í starfi,“ segir Nicolaj Kristensen, doktorsnemi við Verslunarháskólann í Ár- ósum, sem ásamt prófessor við skólann gerði rannsókn á því hvers vegna Danir skipta helst um vinnu, að því er fram kem- ur á fréttavef Berlingske Tidende. Hann segir að ef starfið sé einhæft og ekki krefj- andi séu mestar líkur á að fólk hætti. Þeg- ar atvinnuleysi minnki verði kröfurnar um spennandi starf enn meiri. Stjórnendur þurfi að finna leiðir til að koma í veg fyrir að vinna starfsmanna verði of einhæf vilji þeir halda í starfsfólk sitt. Skipta um vinnu vegna leiðinda Nýja-Delhí. AP. | Yfirvöld í Nýju-Delhí hafa fengið til liðs við sig stóran og vígalegan apa í barátt- unni við smáapa sem eiga það til að fara inn í jarðlestir borgarinnar og hrella farþegana. Þúsundir smáapa flækjast um götur Nýju- Delhí og eru stundum borgarbúum til mikils ama. Hindúar líta á apa sem heilög dýr og heittrúaðir Indverjar gefa þeim oft ban- ana og jarðhnetur, en þegar öpunum er ekki séð fyrir fæðu eiga þeir til að ráðast á fólk og stela mat. Yfirvöldin fengu til liðs við sig apa af tegund sem nefnist langur-api, en hann er fremur stór, með svart fés og er eitt af fáum dýrum sem vitað er að smáaparnir hræðast. Apa beitt gegn apaplágunni Apar eru orðnir plága í Nýju-Delhí. MIKLAR breytingar hafa orðið á launamálum í samfélaginu síðustu ár og skammtímahugsun og gróða- hyggja ræður miklu um ákvarðanir stórra fyrir- tækja í starfs- mannamálum á kostnað laun- þega og sam- félagsins í heild. Þetta segir Ingibjörg R. Guðmundsdótt- ir, varaforseti ASÍ. „Hér áður fyrr höfðu há- launamennirnir yfirleitt stofnað sín fyrirtæki sjálfir og unnið í sveita síns andlitis við að koma hugmyndum sínum áfram. Þeir lögðu allt sitt undir og stundum unnu þeir og stundum töpuðu þeir. Núna eru hálaunamennirnir oft í raun og veru launafólk sem fær mismikið útborgað en fær alltaf umtalsverð laun tryggð,“ segir Ingibjörg og segir slíkt ástand skapa pirring í samfélaginu sem geri fólk ósátt við hlut sinn. „Tilfinning mín er sú að þeir séu sífellt færri sem hafi hagsmuni sí- fellt fleiri í hendi sér. En það eru ekki aðeins hluthafar fyrirtækja sem eiga eitthvað í húfi þegar kem- ur að rekstri þeirra. Það eru líka svokallaðir hagsmunaaðilar sem eru t.d. launþegar, undirverktakar, birgjar, ríkisvaldið og í raun sam- félagið í heild,“ segir hún. Mun minni umræða um hvað sé rétt og hvað rangt „Vandamálið í dag er hins vegar að það eru allir hræddir við að vera hallærislegir því það er flottast að allt sé frjálst og í bullandi útrás. Kannski er það nostalgía hjá mér, en mér finnst mun minni umræða um hvað sé rétt og hvað rangt held- ur en var,“ segir Ingibjörg. Að hennar mati mætti setja regl- ur um félagslega ábyrgð fyrir- tækja og fjárfesta. „Ég tel þó að setja yrði slíkar reglur í sátt við alla aðila málsins og að mikil umræða um málið yrði að fara fram,“ segir hún. Óábyrg ofurlaun Ingibjörg R. Guðmundsdóttir  Að mati | 6 MINNISVARÐI um strand HMCS Skeena 1944 var afhjúpaður í Við- ey í gær á aldarafmæli Einars arsdóttir, Leighton Steinhoff og Norm Perkins. Í baksýn er kan- adískur heiðursvörður. | Miðopna Sigurðssonar, skipstjóra á Aðal- björgu RE-5, sem vann þar mikið björgunarafrek. F.v. Guðrún Ein- Morgunblaðið/Jim Smart Minnisstætt björgunarafrek SÍFELLT fleiri vísbendingar eru um að einkaneysla sé farin að drag- ast saman og að hægja muni á í ís- lenska hagkerfinu á næstu mánuð- um og misserum. Sala á nýjum bílum í júlí dróst saman um hartnær fjórðung, eða um 23%, samanborið við júlí í fyrra samkvæmt nýjum töl- um frá Umferðarstofu. Þær tölur aðinn fljótan að bregðast við breytt- um aðstæðum og hann hafi reynst góður mælikvarði á væntingar manna til næstu sex til tólf mánaða. Kólnar á fasteignamarkaði Greinilegt er að kaldari vindar blása nú um fasteignamarkaðinn en veltan á íbúðamarkaði á höfuðborg- arsvæðinu dróst saman um 30% nú í júlí samanborið við júlí í fyrra, að því er kemur fram í nýjum tölum Fasteignamats ríkisins. Þegar horft er til fjölda þinglýstra kaupsamn- inga var samdrátturinn enn meiri eða 38%. Flestir eru sammála um að verðlækkun sé framundan á íbúða- markaði enda hefur dregið úr eft- irspurn samfara hærri vöxtum og verri aðgangi að lánum. Framboð af nýjum íbúðum hefur aftur á móti sjaldan verið meira. taka ekki til verðmætis bifreiðasöl- unnar en óhætt er að ætla að sam- drátturinn í verðmætum kunni að hafa verið enn meiri. Þannig má nefna að í fyrra voru seldar fimm Porsche-bifreiðar í júlí en nú seldist engin. Sala á Merce- des-Benz og GM-bifreiðum dróst saman um 67% og sala á Alfa Romeo/Fíat um nær 50%. Ingólfur Bender, yfirmaður Greiningar Glitnis, segir bílamark- Snarpur samdráttur orðið í sölu bifreiða og fasteigna Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.si  Skýjabakkar | Viðskipti ♦♦♦ ♦♦♦ Viðskipti | Holdgervingur ameríska draumsins  Hnit í Eystrasaltslöndum Íþróttir | Íslandsmet Jakobs  FH er úr leik  Fuglarnir lykilatriði Bestir á vellinum | Baldur leikið vel með Keflavík  Marel markahæstur Viðskipti, Íþróttir og Bestir á vellinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.