Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðlaug SjöfnHannesdóttir fæddist í Reykjavík 28. júní 1938. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut þann 11. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Hann- es Magnússon tré- smíðameistari í Reykjavík, f. 24. september 1891 í Teigakoti á Akra- nesi, d. 31.desem- ber 1968 og Guðrún Helga Guðmundsdóttir, f. 23. mars 1900 á Sólheimum í Hruna- mannahreppi, d. 11. janúar 1981. Fyrri maður Helgu var Jón Krist- an sem hún lauk prófi í hár- greiðslu. Þess á milli dvaldi hún á sumrin hjá frændfólki sínu á Sól- heimum og Syðra-Seli í Hruna- mannahreppi. Þar kynntist hún eftirlifandi manni sínum Sveini G. Sveinssyni, Hrafnkelsstöðum, f. 13. ágúst 1932. Þau gengu í hjónaband 19. apríl 1962. Þau byrjuðu búskap á Hrafnkelsstöð- um og var hún húsfreyja þar upp frá því. Þau áttu 4 börn. 1) Helga Sigríður sjúkraliði, f. 23. janúar 1962, maki Sverrir Ágústsson, börn þeirra eru: Inga Sjöfn, Ár- mann og Sveinn Ágúst. 2) Kol- brún klæðskeri, f. 11. maí 1964. 3) Sveinn Hannes bóndi Hrafnkels- stöðum, f. 8. júlí 1965, maki Eva Marín Hlynsdóttir, börn þeirra: Silja Rut og Sveinn Jökull 4) Magnús háskólanemi, f. 10. maí 1983. Útför Sjafnar fer fram frá Hrunakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. ján Kristjánsson, f. 1. september 1894, d. 13. desember 1929. Sjöfn átti eina systur sammæðra, Jónu Kristjönu Jónsdóttur hárgreiðslumeistara í Reykjavík, f. 10. júlí 1930, maki Lárus Johnsen, þau eiga tvo syni a) Jón Kr. Johnsen, maki Sig- rún Gunnarsdóttir, sonur þeirra er Lár- us Kristján b) Hann- es Johnsen. Sjöfn ólst upp hjá foreldrum sínum í Þverholtinu í Reykjavík og gekk í Austurbæjarskóla og síðar Iðnskólann í Reykjavík það- Fyrstu kynni mín af Guðlaugu Sjöfn hófust fyrir 27 árum. En þá var ég boðin í hádegismat og ekki var hann svikinn. Oft síðan hef ég notið gestrisni tengdamóður minnar en hún hafði einstaka hæfileika til að töfra fram girnilegt veisluborð. Hún naut þess að fá heimsóknir og stjana við gesti sína. Sjöfn er fædd og uppalin Reykja- víkurmær. Ung fór hún að dvelja á sumrin hjá frændfólki sínu á Sól- heimum í Hrunamannahreppi. Sumrin á Sólheimum urðu mörg og var hún þar öll sín barns- og ung- lingsár. Bústörf áttu vel við hana og var hún mikill dýravinur og nátt- úruunnandi. Á þessum árum kynnt- ist hún Sveini og saman hófu þau bú- skap á Hrafnkelsstöðum. Erilsöm hafa fyrstu búskaparárin verið. Nýtt íbúðarhús var byggt og fljótlega fjós og hlaða. Sjöfn og Sveinn voru sam- hent í búskapnum og gekk hún til þeirra verka sem þurfti úti við með- fram því að halda stórt heimili. Einnig greip hún í iðn sína en hún var lærð hárgreiðslukona. Hún hafði mikið yndi af öllum gróðri og bar garðurinn hennar þess glöggt vitni. Hjónin höfðu gaman af ferðalögum í góðra vina hópi og var Sjöfn ein- staklega nösk að sjá athyglisverða hluti þar sem stoppað var. Átti hún fágætt steinasafn og má þar líta margar gersemar. Fyrir réttu ári greindist Sjöfn með illvígan sjúkdóm. Ég undrast það æðruleysi sem hún sýndi og kvartaði aldrei til hinsta dags. Það var ómetanlegt fyrir hana og fjöl- skylduna að hún gat dvalist heima hjá sér þótt veikindin ágerðust. Mik- il sómakona er fallin frá allt of fljótt. Sjöfn var einhver besta manneskja sem ég hef kynnst. Alltaf að huga að velferð annarra og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkurri manneskju. Ég þakka þér og mun minnast þín fyrir það sem þú varst. Um engi og tún og ásinn heima ég aftur reika, sest í brekkuna silkimjúka og sóleyjarbleika. (Davíð Stefánsson.) Sverrir Ágústsson. Það er með sorg og trega í hjarta sem ég kveð tengdamóður mína Sjöfn Hannesdóttur. Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir hversu vel hún tók á móti mér þegar ég flutti í Hrafnkelsstaði. Það var eflaust ekki auðvelt að fá unga tengdadóttur með ákveðnar skoðanir inn í hús til sín en henni fórst það vel úr hendi og það var gott að búa með henni. Við átt- um það sameiginlegt að hafa gaman af ættfræði og henni á ég að miklu leyti að þakka ágæta þekkingu mína á ættum mannsins míns. Sjöfn var af þeirri kynslóð fólks sem fleygði aldr- ei neinu og þess vegna komu út úr skápum hjá henni fínustu kápur og kjólar liðinna tíma sem ég naut heið- urs af að fá að spóka mig um í. Þegar við Sveinn Hannes byggðum okkar eigið hús kom hún iðulega við á leið- inni yfir til Svövu „æ ég er bara að- eins að hreyfa mig“ var viðkvæðið. Dóttir okkar fór ófáar ferðir upp í hús að kíkja á ömmu, horfa aðeins á sjónvarpið með henni og kría út nokkrar súkkulaðirúsínur. Sjöfn var mjög hjálpsöm og greið- vikin kona sem birtist í ófáum blómavöndum og tómötum „svona í leiðinni“ og dýrindis súkkulaðikök- um fyrir barnaafmæli. Þegar ég síð- an þurfti á barnapössun að halda síðastliðinn vetur var Sjöfn mætt snemma á morgnana og hélt því áfram allt þar til veikindi hennar fóru að segja verulega til sín upp úr páskum. Það var okkur öllum óend- anlega dýrmætt að hún gat verið heima í sumar þrátt fyrir veikindin. Hví skal æðrast yfir sorgum eða raunir rekja? Skín ei fegri á festing sálar minninganna máni? (M.Á.Á.) Elsku Svenni og þið öll, guð gefi ykkur styrk og trú til að syrgja og sakna og gleðjast yfir minningum um góða konu. Eva Marín Hlynsdóttir. Ég trúi því varla að þú sért farin. En nú er svo orðið og ég á bágt með að sætta mig við það. Ég veit þó að nú líður þér betur og ert komin á betri stað. Þú hefur alltaf verið eng- illinn minn. Því þú ert án efa um- hyggjusamasta manneskja sem ég hef þekkt og svo ert þú auðvitað með engilhvítt hár. Ég á margar minn- ingar um hversu iðin og dugleg þú ert. Alltaf allt hreint og kræsingar á borðum. Og ekki léstu þitt eftir liggja þegar að garðinum kom, öll sumur uppfullur af marglitum og fallegum blómum sem þú sinntir með mikilli natni enda með græna fingur. Þú hefur alltaf haft alveg ein- stakt auga fyrir náttúrunni og þeim furðuverkum sem þar finnast og vildir helst vera þar. Enda raðaðir þú alltaf steinum og blómum um allt hús bæði innan og utan. Ég hef alltaf dáðst að því hversu falleg þú ert og hef oft setið með gamlar myndir og skoðað þessa töfrandi konu í fínu kjólunum, með fínu skartgripina. Það er ekki langt síðan ég fann fjár- sjóðskistu í geymslunni barmafulla af fallegum kjólum. Þá hélt ég sko tískusýningu fyrir þig og afa og virt- ist engum leiðast, þið brostuð út í annað yfir minningunum og mér leið auðvitað eins og ævintýraprinsessu. Alltaf þótti mér gaman að eyða sumrinu í sveitinni enda nóg við að vera. Seinasta árið er mjög eftir- minnilegt. Þú ert svo sannarlega hetja. Við vorum saman mörgum stundum þetta árið og gátum oft spjallað um margt og núna ekki alls fyrir löngu kenndir þú mér að hekla. Seinustu tvo dagana sat ég hjá þér og þá tókst mér í fyrsta sinn að gera vel heppnaða bjöllu. Takk fyrir allt. Ég elska þig meir en orð fá lýst. Inga Sjöfn Sverrisdóttir. Þú bláfjalla geimur með heiðjöklahring, um hásumar flý ég þér að hjarta. Ó tak mig í faðm. Minn söknuð burt ég syng. Um sumarkvöld við álftavatnið bjarta. – Hér andar guðs blær, og hér verð ég svo frjáls. Í hæðir ég berst til ljóssins strauma, æ lengra æ lengra að lindum himinsbáls, uns leiðist ég í sólu fegri drauma. (Steingrímur Thorsteinsson.) Þessar ljóðlínur komu mér í hug er ég hugleiddi að festa á blað nokk- ur kveðjuorð, nú þegar mágkona mín Sjöfn á Hrafnkelsstöðum hefur lokið lífsgöngu sinni hérna megin grafar. Guðlaug Sjöfn Hannesdóttir, eins og hún hét fullu nafni, fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún átti ættir að rekja í Hrunamannahrepp og var hér „í sveit“ sem barn og ung- lingur hjá frændfólki sínu á Sól- heimum. Mynd kemur upp í huga minn. Lína á Sólheimum er að koma í rétt- irnar og teymir hest með aktygjum. Á honum situr bráðfalleg stelpu- hnáta, lítið yngri en ég, og heldur báðum höndum í aktygjabogann, al- veg örugg þó að farið sé um vegleys- ur. Svo líða árin við vitum hvor af annarri í hópi ungs fólks á svipuðu reki. Svo kom að því að hægt var að stríða bróður sínum, setja Sjafnar sápustykki á koddann hans og spyrja hvort þetta væri ekki rétta nafnið. Svo kom þessi unga stúlka og varði sumarleyfinu sínu á Hrafn- kelsstöðum. Hún var hárgreiðslu- kona og starfaði við iðn sína á hár- greiðslustofu hálfsystur sinnar Jónu Jónsdóttur. Um haustið fóru þau svo saman til Reykjavíkur og dvöldu vetrarlangt á æskuheimili Sjafnar. Um vorið var framtíð þeirra ráðin. Þau hófu búskap á jörð móður minn- ar en hún hafði búið þar í nokkur ár, eftir að hún varð ekkja, með aðstoð Sveins sonar síns. Nú var ný kynslóð að taka við búi þar sem aðstæður voru slíkar að engum dytti í hug að gera sér það að góðu nú til dags, en svo eru tímarnir breyttir. Þau höfðu lítið súðarherbergi upp á lofti í gamla bænum á Hrafnkels- stöðum, deildu eldhúsi og baðstofu á neðri hæðinni með móður minni og öðru heimilisfólki. Fyrsta barnið kom í heiminn á miðjum vetri. Um vorið var hafist handa við byggingu íbúðarhúss. Ári síðar, 28. júní, á afmælisdegi Sjafnar fluttu þau í nýja húsið ásamt Sigríði móður okkar Sveins. Hófst nú mikil uppbygging á jörð- inni. Gripahús byggð, land brotið til ræktunar, með öðrum orðum breyt- ing frá fortíð til nútíðar. Við höfum fylgst að alla þessa breytingatíma, það hefur verið stutt á milli heimila okkar. Það er vissulega krefjandi starf að vera húsfreyja á sveitaheimili. Mörg börn og unglingar hafa dvalið þar sumarlangt auk heimilisfólks, vinnu- dagurinn oft langur í dagsins önn, það þurfti að huga að velferð allra, bæði manna og málleysingja. Eins var mikill gestagangur og gestrisni ómæld á þeim bæ. Allt fram á síðustu daga Sjafnar var henni umhugað um að allir fengju góðgerðir, mér fannst það nú ekki skipta höfuð máli en þannig vildi hún hafa það. GUÐLAUG SJÖFN HANNESDÓTTIR Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, BJÖRN BJARNASON, Hellisgötu 25, Hafnarfirði, lést á Sólvangi í Hafnarfirði föstudaginn 4. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Björn Björnsson, Guðrún Þóra Sigurðardóttir, Stefán Björgvin Björnsson, Bjarni Gunnar Björnsson, Guðrún Þórdís Ingólfsdóttir, Hólmfríður St. Björnsdóttir, Jose Antonio Rodriguez Gonzalez, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og bróðir, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR JÓN KRISTINSSON, sem lést á Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði mánudaginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans vinsamlega láti Dval- arheimilið Hornbrekku njóta þess. Hulda Helgadóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Svanberg Þórðarson, Bragi Halldórsson, Auðbjörg Eggertsdóttir, Gunnar Halldórsson, Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir, Svanfríður Halldórsdóttir,Gunnar L. Jóhannsson, Jón Halldórsson, Guðlaug Skúladóttir og afabörnin. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF JÓNASDÓTTIR frá Magnússkógum, lést á dvalarheimilinu Silfurtúni, Búðardal, aðfara- nótt laugardagsins 19. ágúst. Útförin fer fram frá Hvammskirkju í Dölum laugar- daginn 26. ágúst kl. 14.00. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Magnús Pálsson, Jónas Guðmundsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, Guðbjörn Guðmundsson, Jóhanna B. Jóhannsdóttir, Jensína Guðmundsdóttir, Andrés P. Jónsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Helgi Þorvaldsson, barnabörn og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, JÓHANN FANNAR INGIBJÖRNSSON, Lómatjörn 40, Innri-Njarðvík, lést af slysförum miðvikudaginn 16. ágúst. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugar- daginn 26. ágúst kl. 13.00. Gréta Rósný Jónsdóttir, Ástríður Halla Jóhannsdóttir, Júlía Steinunn Jóhannsdóttir, Katrín Ósk Jóhannsdóttir, Halla Árný Júlíusdóttir, Haraldur Hinriksson, Ingibjörn Guðjón Jóhannsson, Ástríður Guðmundsdóttir, Jón Guðlaugsson, systkini og aðrir aðstandendur. Ástkær systir, mágkona og frænka, MARÍA LILLÝ RAGNARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Vesturbergi 78, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 19. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 25. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Þór Símon Ragnarsson, Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Hafþór Ólafsson, Ragna Sif Þórsdóttir, Ágúst Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.