Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR                                                                                             !"         #                           $ %                   ! ! " &'          ($          LÍKUR eru á því að litlar sem engar aflaheimildir falli ónýttar niður nú um fiskveiðiáramótin að undanskilinni út- hafsrækju. Rækjuveiðar hafa aldrei verið minni en á þessu fiskveiðiári, eða um 1.000 tonn, enda aðeins einn bátur um hituna. Veiðarnar eru óarð- bærar og því hirða menn ekki um að nýta kvótann. Aflaheimildir á þessu fiskveiðiári voru tæplega 13.000 tonn. Miklar tilfærslur aflaheimilda eiga sér nú stað, en fiskveiðiárinu lýkur að loknum þessum degi. Samkvæmt reglum mega handhafar veiðiheimild- anna nota ýmsar tilfærslur til að koma í veg fyrir að heimildir falli ónýttar niður og einnig til að greiða úr málum, ef þeir hafa veitt umfram heimildir. Björn Jónsson, kvótamiðl- ari LÍÚ, segir að mikið sé um að vera núna, en menn hafi þó fyrstu tvær vikurnar á næsta fiskveiðiári til að ganga frá málum sínum. Svo virðist sem nær engar botnfiskveiðiheimildir falli ónýttar niður. Samkvæmt reglum má færa heimildir milli teg- unda um 2% í flestum tegundum eða 5% í heildina. Flytja má 20% afla- heimilda yfir á næsta fiskveiðiár og veiða má 5% umfram úthlutaðan kvóta, og dregst það þá frá úthlutun næsta fiskveiðiárs. Loks hafa menn þann möguleika að fá heimildir geymdar fyrir sig hjá öðrum, sem til þess hafa svigrúm, með því að flytja þær á milli. Gengur vel hjá smábátum Veiðar smábáta hafa gengið mjög vel á árinu. Heildarafli þeirra stefnir í um 80.000 tonn. Útgerð báta í króka- aflamarkskerfinu hefur gengið mjög vel að sögn Arnar Pálssonar, fram- kvæmdastjóra Landssambands smá- bátaeigenda. Heildarafli þeirra fer úr 62.300 tonnum í fyrra í um 75.000 tonn nú. Þorskafli þeirra fer úr tæp- um 37.000 tonnum í fyrra í um 40.000 tonn nú og ýsuaflinn úr 16.000 tonn- um í 22.500 tonn, en smábátarnir hafa leigt til sín mikið af ýsuheimildum úr aflamarkskerfi stóru bátanna. Örn segir að því muni bátarnir ná að nýta sér veiðiheimildir sínar og afkoman sé góð í kjölfar hækkandi fiskverðs. Lítið fellur ónýtt niður um fiskveiðiáramótin Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÚR VERINU HÓPUR íbúa í bænum Graven á norðanverðum Hjaltlandseyjum vill ekki að Síldarvinnslan í Neskaupstað reisi fiskimjölsverksmiðju á staðnum Sella Ness í nágrenni Graven. Hann hefur farið fram á endurskoðun á ákvörðun Byggðastofnunar eyjanna á fjárhagslegri þátttöku við byggingu verksmiðjunnar. Ein af skýringunum á mótmælun- um er að hagvöxtur á Íslandi sé á nið- urleið og stýrivextir hafi verið hækk- aðir 20 sinnum og standi nú í 13,5%. Nokkur misseri eru síðan Síldar- vinnslan hóf kannanir á því hvort hagkvæmt væri að reisa fiskimjöls- verksmiðju á Hjaltlandi. Töluvert er síðan öll tilskilin leyfi fyrir rekstrin- um fengust og jafnframt loforð um að byggðasjóður Hjaltlandseyja kæmi inn með fjármagn. Til stóð að Síld- arvinnslan flytti til eyjanna búnað úr verksmiðjum sínum á Íslandi, sem ekki eru starfræktar. Framlag hjalt- nesku byggðastofnunarinnar er 66 milljónir króna, en heildarkostnaður er áætlaður um 1,4 milljarðar króna. Framlag byggðastofnunarinnar er því 4,6% kostnaðar. Lítil mótmæli Mótmælendur telja rétt að þátt- taka byggðastofnunar verði endur- skoðuð í ljósi þess að Samherji geti tekið 660 milljóna króna lán hjá ís- lenzkum banka á 13,5% vöxtum. Fyrst fyrirtækið geti það, hafi það enga þörf fyrir þátttöku byggðastofn- unarinnar. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður SVN, segir að í raun hafi farið mjög lítið fyrir þessum mótmælum, þótt þau séu blásin upp í einstökum fjölmiðlum. „Þetta er fyrst og fremst runnið undan rifjum keppi- nautar okkar, Norðmannsins Helge Korsager, sem rekur fiskimjölsverk- smiðju rétt við Leirvík. Hann vill ekki fá samkeppni og beitir ýmsu fyrir sig. Til marks um málflutninginn er það náttúrlega algjörlega ljóst að kæmi til þess að reisa þarna verksmiðju, yrði hún aldrei fjármögnuð með láni teknu í íslenzkum krónum,“ segir Þorsteinn Már. Hann segir að öll tilskilin leyfi til byggingar og reksturs verksmiðjuna liggi fyrir. Síldarvinnslan hafi hins vegar ekki tekið ákvörðun um hvort hún verði reist. Vilja ekki íslenzka fiskimjölsverksmiðju ÁRNI Johnsen, fyrrverandi al- þingismaður, hef- ur fengið uppreist æru vegna 2 ára fangelsisrefsingar sem Hæstiréttur dæmdi hann í hinn 6. febrúar 2003, enda telst hann uppfylla lög- formleg skilyrði fyrir uppreist æru. Hafa handhafar forsetavalds því veitt Árna uppreist æru með undirritun sinni, en þeir eru Geir H. Haarde forsætisráðherra, Gunnlaugur Claessen, forseti Hæsta- réttar, og Sólveig Pétursdóttir, for- seti Alþingis Dómsmálaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu í gær vegna fréttar Fréttablaðsins um málið þá um morg- uninn. Í tilkynningunni segir að um langt árabil hafi undantekningarlaust verið gerð tillaga til forseta Íslands um uppreist æru, ef umsækjandi full- nægir lögformlegum skilyrðum um að hún sé veitt. Í því samhengi skipti eðli brots eða sakaferill ekki máli, því að eingöngu er litið til þess, hvort skil- yrði séu uppfyllt. Samkvæmt meginreglu um upp- reist æru skv. almennum hegningar- lögum er hægt að veita uppreist æru að liðnum 2 árum frá því að refsing er að fullu úttekin, fyrnd eða uppgefin. Að sögn dómsmálaráðuneytisins telst refsing að fullu úttekin á þeim tíma er reynslulausn er veitt, ef við- komandi stenst skilorð skv. túlkun reglna um uppreist æru. Þessi túlkun sé í samræmi við ummæli í greinar- gerð með lögum nr. 16/1976 sem breyttu almennum hegningarlögum nr. 19/1940 og hefur einnig verið stað- fest í 4. mgr. 65. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005. Liðin séu rúm tvö ár frá því að Árni tók refsingu út að fullu og telst hann því uppfylla lög- formleg skilyrði til að hljóta uppreist æru. Árni Johnsen Árni Johnsen hefur fengið uppreist æru SAMKVÆMT málaskrá dóms- málaráðuneytisins hefur dæmdu fólki níu sinnum verið veitt uppreist æru frá árinu 1996 og átta mál um upp- reist æru hafa verið skráð frá 2001– 2006. Samkvæmt upplýsingum ráðu- neytisins þýðir skráning máls ekki að því hafi lokið með formlegri af- greiðslu, jákvæðri eða neikvæðri. Margar ástæður geta verið fyrir því samkvæmt upplýsingum ráðuneyt- isins. Í fyrsta lagi getur þetta verið vegna þess að í ljós hefur komið að refsing sú sem óskað var uppreistrar æru á hafði ekki flekkun mannorðs í för með sér, og því ekki tilefni til að aðhafast frekar í máli. Í öðru lagi að umsækjandi hafi ranglega talið sig vera með refsingu á sakavottorði sínu. Í þriðja lagi er ekki tilefni til að veita formlega uppreist æru, þegar hún hefur fengist sjálfkrafa nema við- komandi hafi óskað þess sérstaklega, sbr. 84. gr. almennra hegningarlaga, þegar um er að ræða eina refsingu sem ekki fer fram um eins árs refsi- vist og liðin eru a.m.k. fimm ár frá því refsing var að fullu úttekin, fyrnd eða uppgefin. Í fjórða lagi hefur athafna- leysi umsækjanda um að leggja fram öll tilskilin gögn með umsókn sinni leitt til þess að málum hefur verið lok- ið án formlegrar afgreiðslu. Þá ber þess að geta að aðeins í einu tilviki sem komið hefur upp frá 2001 hefur verið synjað um uppreist æru og þá með vísan til þess að tímaskilyrði um að liðin væru a.m.k. 2 ár frá því refs- ing væri að fullu úttekin, fyrnd eða uppgefin, voru ekki uppfyllt. Samkvæmt ráðuneytinu leiðir upp- reist æru ekki til að refsing sé tekin út af opinberu sakavottorði heldur aðeins að við bætist ný færsla aftan við viðkomandi refsingu þar sem til- greint er að uppreist æru hafi verið veitt. Níu manns veitt uppreist æru síðan 1996 BOÐUNARFERLIÐ vegna Boeing- þotu breska flugfélagsins Britsh Air- ways, sem lenti á Keflavíkurflugvelli vegna gruns um eld í farþegarými, virðist ekki hafa verið í samræmi við verklagsreglur í slíkum tilvikum. Vanalega á Neyðarlínan að fá boð um slík tilvik beint frá flugumferðar- stjórn, en í þessu tilviki fór boðunin fyrst til vaktstöðvar siglinga og síðan til lögreglu áður en Neyðarlínan fékk tilkynningu um málið og sendi þá út eitt þúsund boð með sms. Boðunin gekk eins og til var ætlast þegar Neyðarlínan sendi út sms-boðin skömmu eftir kl. 18 en ekki liggur fyr- ir hvers vegna fregnin barst Neyð- arlínu í gegnum tvo milliliði, þ.e. vakt- stöð siglinga og lögreglu. Af hálfu flugmálastjórnar fengust ekki svör þegar eftir þeim var leitað í gær. Fundur viðbragðsaðila var haldinn á þriðjudag vegna atviksins eins og alltaf er gert í tilvikum sem þessu. Ellisif Tinna Víðisdóttir hjá sýslu- manninum á Keflavíkurflugvelli sagði að ferlið hefði gengið vel fyrir sig en að öðru leyti sagðist hún ekki myndu upplýsa opinberlega um það sem fram færi á svona fundum. Ljósmynd/Hilmar Bragi Neyðarboðun Boðin um komu þotu BA fóru ekki venjubundna boðleið. Neyðarboðun ekki í samræmi við reglur »Kl. 17.48 heyra starfsmennNeyðarlínu að Landhelg- isgæslan og Vaktstöð siglinga hafi upplýsingar um þotu BA. »Kl. 17.56 lætur Landhelg-isgæslan formlega vita. »Kl. 18.00 spyr Flug-málastjórn hvort Neyð- arlínan viti af málinu. »Kl. 18.02 hefst boðun Neyð-arlínunnar og eru send út um eitt þúsund boð. Nokkrar mínútur tók boðin að fara í gegnum kerfið. Í HNOTSKURN »Átta mál um uppreist æruhafa verið skráð frá 2001 til 2006. »Aðeins í einu tilviki frá 2001var neitað um uppreist æru. Í HNOTSKURN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.