Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 37 Það var eins og sólin fylgdi Önnu alltaf. Nú hefur dregið ský fyrir þá sól um sinn, en þeg- ar fram líða stundir munu góðar minningar taka við af tómleikatil- finningunni núna. Þegar ég fletti al- búmum og skoða svipmyndir frá góð- um samverustundum þá sé ég að það var ekki bara sólin á himninum sem skein heldur var alltaf ákveðinn ljómi í augum Önnu sem lýsti upp um- hverfið. Það var mikil lukka fyrir mig að Ari minn og Ási hennar Önnu urðu góðir vinir fljótlega eftir að við Ari byggðum á Álftanesinu um 1980. Við Ási vorum bæði af Nesinu en það var sameiginlegt áhugamál Ara, Ása og Önnu, hestamennskan, sem leiddi okkur saman svo úr varð órjúfanleg vinátta sem haldist hefur í vel á þriðja áratug. Við vorum öll á sama róli í tilverunni, byggðum um svipað leyti, krakkarnir okkar voru ná- kvæmlega jafngamlir og fljótlega fundum við það út að við Anna höfð- um raunar hist á Fæðingaheimilinu með frumburði okkar, aðeins tveir dagar eru á milli Jóhönnu og Gunn- ars Karls. Það olli því reyndar líka að þegar bjóða átti í 12 ára afmælin, þá stefndi í árekstur þriggja afmæla í bekknum þeirra. Anna lét sig þá ekki muna um að skjóta skjólshúsi yfir þetta þrefalda afmæli svo allir í bekknum gátu mætt saman sömu helgina og haldið herlega veislu. Við mæðurnar skemmtum okkur áreið- anlega best allra og þáttur Önnu í þeirri skemmtan var stór. Við lá að mér þætti miður að ekki skyldi vera skemmra á milli afmæla Sólrúnar og Óla, svo hægt yrði að endurtaka skemmtunina. Við héldum síðan áfram að vera á sama róli þótt Ási og Anna byggðu annað hús á nesinu og eignuðust þriðja barnið síðar, Ingu Birnu, sem fermdist í vor. Þau voru líka orðin afi og amma. Gunnar Karl, Sólrún og Rakel, eldri dóttir Ása, gáfu þeim fal- leg barnabörn. Á einhvern ævintýra- legan hátt tókst Önnu að vera í senn sama stelpan og áður og svo ung og stolt amma. Minningarnar eru margar og allar góðar. Það var alltaf gott að koma til þeirra í Hliðsnes og síðar Brekku- skógana. Mér þótti líka sérstaklega gaman þegar við komumst að því að okkur þremur, Önnu, Ása og mér, fannst svo ljómandi gott að vaka svo- lítið fram eftir. Ef ljós var í gluggum eftir miðnætti gat það hent að þau kíktu við og meira að segja Ari, sem að jafnaði fór fyrr en við hin að sofa, vakti með okkur fram á rauðar næt- ur. Þegar Inga Birna var fædd var auðvitað ekki hægt að drolla fram eftir og samverustundirnar þróuð- ust, voru stundum fleiri og á öðrum tímum færri. Ási og Ari höfðu hest- húsin og útreiðarnar, Anna sinnti áhugamálinu líka eftir föngum, Inga Birna fékk bakteríuna ung að árum og við óvirku hestamennirnir héldum okkur á hliðarlínunni og nutum þess að vera með þegar kostur gafst. Alltaf hefur verið líf og fjör í kring- um Ása og Önnu og einn góðan veð- urdag var ráðist í að byggja sum- arbústað. Sumarbústaðurinn fyrir austan var fallegur griðastaður þeirra Ása og Önnu og þangað var gott að heimsækja þau. Um árþús- undamótin uppgötvuðum við aðra paradís þar sem Ási og Anna voru hagvön, það var sumareyjan Gran Canaria þar sem gott er að vera þeg- ar veturinn er dimmastur hér heima. Við höfum átt saman margar sólríkar og skemmtilegar stundir á Kanarí, oftar en ekki í stórum hópi sameig- inlegra vina og fjölskyldna okkar Anna Hafsteinsdóttir ✝ Anna Hafsteins-dóttir fæddist í Reykjavík 24. mars 1958. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans 9. septem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Vídalíns- kirkju í Garðabæ 18. september. beggja. Það er þó á engan hallað með því að segja að í kringum Önnu og Ása var alltaf stærsti vinahópurinn og fjölmennasta fjöl- skyldan. Í þessum skemmtilega hópi naut Anna sín vel og frá- sagnargáfa hennar og húmor fengu góðan farveg. Sérstaklega man ég eftir einu kvöldi á veitingastað þegar Anna fór á því- líkum kostum í græskulausu gamni um samferða- fólkið að við sem næst henni sátum hreinlega grétum úr hlátri þegar hún laumaði út úr sér meinfyndnum at- hugasemdum. Í vetur vorum við enn í hópi góðra vina og tengdaforeldra Önnu á Kan- aríeyjum, en að þessu sinni komust þau Anna og Ási ekki með, baráttan við sjúkdóminn var hafin. Það var mikið og sterkt hugsað til þeirra í þessum hópi, svo sterkt að ef hugar- afl hefði fengið stöðvað gang sjúk- dómsins værum við ekki að kveðja í dag. Það var hins vegar svolítið skammtímakraftaverk að þau Anna og Ási skyldu komast með í lok mars síðastliðins til Kúbu þegar liðlega 60 manna hópur á vegum Lions á Álfta- nesi lagði leið sína þangað. Stundirnar á karabísku eyjunni voru yndislegar, hvort sem var undir pálmatrjám við sundlaugina, við skellihlátur á hótelbarnum á Habana Libre eða á furðulega bleika og græna mini-golfvellinum sem við fundum á Varadero. Anna átti afmæli í ferðinni og hélt upp á það á hógværan hátt umkringd fjölmörgum vinum af Nesinu. Það var indælt kvöld sem gleymist seint þeim sem þar voru. Litla samfélag- inu okkar hér á Álftanesi er brugðið. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Önnu, þeirra er sárastur missirinn. Við Ari sendum þeim okkar einlæg- ustu samúðaróskir. Anna. Í dag kveðjum við elskulega mág- og svilkonu okkar, en ekki síst vin- konu. Þegar við horfum til baka kemur hún alltaf brosandi upp í hugann. Hún var trygg og traust sinni fjöl- skyldu og vinum. Anna hafði til að bera ótrúlegt umburðarlyndi gagn- vart náunganum og mjög þægilega nærveru. Hún sameinaði svo marga enda var oft gestkvæmt hjá þeim. Í veikindum hennar sást best hversu mörgum var virkilega annt um hana. Það er höggvið stórt skarð í stór- hátíðir hjá fjölskyldum okkar því hún var alltaf boðin og búin í undirbún- ingnum sem fylgdi veislunum. Henni tókst alltaf að gera hann skemmti- legan með léttum sögum og já- kvæðni. Ljúft er að minnast síðasta afmæl- isdags Önnu, þegar Sóla, dóttir hennar, skipulagði óvænta afmælis- veislu. Hóað var í alla nánustu vini og vandamenn á meðan Ási og Inga Birna höfðu ofan af fyrir henni í hest- húsunum. Allir urðu að leggja bílum sínum þar sem ekki sást til þeirra frá húsinu. Fullorðið fólk faldi sig í hverju skúmaskoti heima hjá þeim en voru þó flestir samankomnir inni á baðherbergi svo Anna sæi enga hreyfingu þegar hún nálgaðist húsið. Þegar hún gekk inn í húsið upphófst hávær afmælissöngur þar sem hver söng með sínu nefi. Anna var mjög snortin af þessari uppákomu en var ekki lengi að koma sér í betri fötin þrátt fyrir veikindi sín og naut dags- ins. Minningar eru dýrmætar og nú er þessi orðin ein af þeim. Hún sýndi ótrúlegt æðruleysi í veikindum sínum og bar ávallt höf- uðið hátt sem sýnir hversu sterk hún var. Hennar yndislegu foreldrar, Ási og börn vöktu yfir velferð hennar fram á síðustu stundu. Þau kveðja núna yndislega dóttur, eiginkonu og móður og vottum við þeim okkar dýpstu samúð. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Drottinn minn, faðir, lífsins ljós, lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur, þú ert mín lífsins rós, tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn, láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta, vekja hann með sól að morgni, vekja hann með sól að morgni. Drottinn, réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál, slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sólrún Gunnarsdóttir, Linda Eggertsdóttir, Erla Geirsdóttir. Maður trúir ekki að þetta sé satt, að þú, Anna mín, sért horfin á braut. En þetta er víst gangur lífsins þó maður hafi engan skilning á hver til- gangurinn er með því að fólk á besta aldri fari héðan langt fyrir aldur fram. Manni finnst fólk eiga svo mik- ið eftir að gera, en maður getur auð- vitað endalaust spáð í þetta. Minningarnar um þig þjóta í gegn og er gaman að eiga þær um þig, elsku Anna. Alltaf var gaman að koma til ykkar Ása hvort sem var heim til ykkar eða í kotið ykkar fyrir austan. Alltaf vorum við öll velkomin og börn og hundar með enda sögðu börnin okkar: „Hún Anna er alltaf svo góð og indæl,“ sem eru orð að sönnu um þig, þú varst algjör perla, Anna mín og vildir öllum svo vel. Það er nú rétt mánuður síðan við sátum í kotinu ykkar að spjalla sam- an, borða góðan mat og hlæja. Og þykir okkur ákaflega vænt um þessa minningu. Ásamt öllu skrallinu í kringum hestana og það var virki- lega gott að vinna með þér í nefndum og er stórt skarð í nefndinni okkar núna þar sem þig vantar. Elsku Ási Kalli, Rakel, Gunnar Karl, Sólrún, Inga Birna, makar, barnabörn, foreldrar og systkini, guð gefi ykkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg sem þið þurfið að takast á við núna. Vinarkveðja. Hvíl í friði, elsku Anna. Andrés, Ragnhildur og börn. Okkar góða félagskona er fallin frá í blóma lífsins. Anna Hafsteinsdóttir hefur starfað í kvenfélaginu í 25 ár og var hún traust félagskona. Minning okkar um Önnu er sérstaklega ljúf. Hún var hæglát, brosmild og hafði einstaklega gott viðmót. Hún var alltaf tilbúinn að starfa í nefndum og hjálpa til þegar með þurfti. Anna fór í ferðalög kvenfélagsins og eftirminnileg er ferðin þegar 54 konur af Álftanesinu fóru til Eng- lands í júní 2005 og hún talaði oft um þessa ferð. Um síðustu jól var Anna í jólatrés- nefnd ásamt fleiri konum til að halda jólaball fyrir börnin á Álftanesi, sem kvenfélagið sér um ár hvert. Í janúar greindist Anna með þenn- an illvíga sjúkdóm sem hún barðist hetjulega á móti, en meinið var sterkara og tók hana frá okkur. Við kveðjum Önnu Hafsteinsdótt- ur með virðingu og þakklæti og biðj- um Guð að blessa þá sem henni voru kærastir. Far þú í friði, friður Guð þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) F.h. Kvenfélags Álftaness, María Birna Sveinsdóttir, formaður. Kveðja frá hestamannafélaginu Sóta Okkur í hestamannafélaginu Sóta á Álftanesi langar í örfáum orðum að minnast eins félaga okkar, Önnu Hafsteinsdóttur, sem nú er horfin til nýrra heimkynna, langt um aldur fram. Hún var virkur félagsmaður og var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd þegar á þurfti að halda. Þótt hún riði ekki mikið út sjálf þá studdi hún vel við bakið á fjölskyldu sinni í þessari tímafreku íþrótt og var dugleg að hvetja börnin sín til dáða, sem öll hafa verið virkir knapar í Sóta. Eig- inmanni sínum, Ársæli Karli Gunn- arssyni, var hún stoð og stytta en hann var formaður félagsins til margra ára. Hún tók þátt í æskulýðs- starfinu af fullum hug undanfarin ár og gott var að hafa hana með í öllu því starfi sem svona félagsskapur býður upp á. Síðasti vetur var henni erfiður en það aftraði henni ekki frá því að mæta á allar keppnir og horfa á yngstu dóttur sína vinna sæta sigra á vellinum, þrátt fyrir að hún væri sárþjáð. Og eftir langan dag í áhorf- endabrekkunni lét hún sig ekki vanta í fjörið um kvöldið. Hún kvartaði aldrei og bar veikindi sín ekki á torg, hæglát og ljúf. Við kveðjum kæran félaga og vott- um aðstandendum dýpstu samúð okkar á þessum erfiðu tímum. Enn einar réttir eru nýafstaðnar. Það eru ýmsir þættir sem gera rétt- irnar að því sem þær eru og einn þeirra hefur ætíð verið ómissandi; Anna, Ási Kalli og börn þeirra mæta í Þrándarholt, ríða með okkur í rétt- irnar og eyða með okkur góðum degi. Anna, alltaf ljúf, falleg, brosandi og skemmtileg. Ótrúlega þolinmóð hvað sem á gekk, tilbúin að aðstoða með allt, hafði húmor fyrir hlutunum. Anna talaði við alla á jafningjagrunni og sýndi okkur sem krökkum strax áhuga og góðvild. Án Önnu verður réttardagurinn aldrei samur en hún verður alltaf með okkur í anda. Elsku Ási Kalli og fjölskylda, missir ykkar er mikill. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minningin um Önnu ylja ykkur um ókomna tíð. Ólöf, Hrund, Arnór Hans, Ingvar, Dóra Björk og fjölskyldur. Hún Anna okkar er nú fallin frá alltof snemma. Hún var búin að eiga í baráttu við sjúkdóm sem sigraði að lokum. Anna var einstök mannkosta- kona. Hún var mjög greiðvikin og alltaf var stutt í brosið. Í þau 30 ár sem við áttum samleið bar aldrei skugga á vináttu okkar. Allan þann tíma hafa þau Ási Kalli mætt hingað á réttardagsmorgun með sitt fólk, oft með reiðskjótana í kerru og farið með okkur til rétta og notið dagsins. Það var alltaf gaman. Skarð hennar verður aldrei fyllt en hún verður áfram með okkur í minningunni. Anna og Ási Kalli eru nýlega búin að byggja sér nýtt og fallegt heimili á Álftanesinu og í Arnarstaðakoti í Flóa hafa þau komið sér upp hlýlegu sumarhúsi og undu sér þar með fjöl- skyldu og hrossum. Hvort sem kom- ið var í bústaðinn eða heim til þeirra á Álftanesið, þá voru móttökurnar hlýlegar. Það er mikil gæfa að eignast góða vini. Önnu verður sárt saknað af öll- um sem hún átti samneyti við. Kæri Ási Kalli, Rakel, Gunnar Karl, Sólrún og Inga Birna, vottum ykkur og allri fjölskyldu Önnu okkar dýpstu samúð. Þrándur og Guðrún. Muff, vinkona og samstarfskona mín varð bráðkvödd nýlega. Hún hafði nýlokið við sum- artónleikaröð ársins í Bláu kirkjunni og var farin í smá ferðalag til út- landa, en áfangastaðurinn varð ann- ar en við bjuggumst við. Ég kynntist Muff fljótlega eftir að hún kom til landsins. Hér var á ferð- inni tónlistarkona af Guðs náð. Við unnum fyrst saman við uppfærslur á klassískum og barokk-verkum, þar sem hún söng með flauelsmjúku kontraalt-röddinni sinni. Það var sjálfsagt mál að Muff túlkaði tónlist- ina á smekklegan og viðeigandi hátt og því varð hún fljótlega mjög eft- Ethelwyn (Muff) Worden ✝ Ethelwyn Wor-den, ævinlega kölluð Muff, fæddist í Fíladelfíu í Penn- sylvaníuríki í Bandaríkjunum 17. janúar 1943. Hún varð bráðkvödd á ferðalagi í Fær- eyjum 18. ágúst síð- astliðinn og var út- för hennar gerð frá Seyðisfjarðarkirkju 7. september. irsótt sem einsöngv- ari. Muff hafði áhuga á svo miklu meiru en formlegum tónlistar- flutningi. Þjóðlagatón- list, og þá sérstaklega keltnesk tónlist var í uppáhaldi hjá henni, ekki síst vegna þess að þá gátu nánast hverjir sem er tekið þátt, og notið þess að spila. Stundum datt okkur í hug að borða saman (sérstaklega ef annað- hvort okkur átti til innfluttan Cheddar-ost) og spila svo- lítið, bara í gamni, en þá var Muff auðvitað með eitthvert einfalt hljóð- færi í töskunni sinni til þess að börn- in mín gætu verið með. Svo hélt Muff Ceilidh eða tónlistarsamkomur heima hjá sér og bauð þjóðlagaspil- urum, vinum og kunningjum upp á eldhressa kvöldstund, fyllta spila- gleði og gríni. Er ég hugsa um Muff er það fyrsta sem kemur í huga minn hversu mikið við hlógum saman. Muff hafði ein- staka hæfileika við að sjá það fyndna í lífinu og við þurftum oft að beita Kleenex tissue við eldhúsborðið þeg- ar frásagnaræðið greip okkur. Lækningamáttur hlátursins leyndi sér ekki í eitt skipti, og því mun ég aldrei gleyma. Ég var komin með 9 mánaða gamla kúlu og var byrjuð um morgunin að finna fyrir fæðing- arverk. Muff var í heimsókn og byrj- aði eins og svo oft að segja frá ein- hverju fyndnu og við vældum af hlátri. Ég fékk aftur hríðir, en við hlógum að því líka og hláturinn deyfði verkin. Ég hafði tvisvar feng- ið platverki og var því ekkert að drífa mig í enn eina fýluferðina á Norð- fjörð. Áfram héldum við að hlæja og í hvert skipti sem ég fékk verk hlóg- um við Muff, og ég fann lítið fyrir óþægindum. Loksins var ljóst að barnið var virkilega að koma og ég dreif mig af stað, en ég þurfti hvorki deyfingu né gas því endorfín-magnið dugði fullkomlega. Dóttir mín fædd- ist svo um klukkutíma síðar. Muff hafði einstaklega stórt hjarta og hafði góð áhrif á fólk. Hún var hvetjandi sem kennari og hafði að leiðarljósi að tónlist er fyrir alla. Hún lagði púlvinnu, tíma og enda- lausa orku í að efla og styrkja tónlist- ariðkun víðsvegar á Austurlandi og var trú sínum hugsjónum. Já, Muff, það er sárt að þurfa að kveðja þig. Þú skilur eftir þig tóma- rúm sem verður erfitt að fylla. En þegar ég hugsa um þig, frekar en mig, brosi ég. Nú er glatt á hjalla í himnaríki, og ekki verra að kunna að spila á hörpu þar. Gillian Haworth.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.