Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 52
|fimmtudagur|16. 11. 2006| mbl.is Staðurstund Það eru greinilega margir farnir að huga að jólum því mest selda plata vikunnar hefur að geyma 100 íslensk jólalög. » 55 tónlist Mýrin er mest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum í ár, en alls hafa 65.670 miðar selst á hana. » 53 kvikmynd Undirbúningur fyrir stjörnu- brúðkaup ársins stendur sem hæst en það fer fram á Ítalíu á laugardaginn. » 56 fólk Í listapistli dagsins veltir Inga María Leifsdóttir fyrir sér ald- urskiptingu afþreyingarefnis fyrir börn. » 55 af listum Ljós í skugga eftir Sigurð Árna Sigurðsson var afhjúpað í síð- ustu viku á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. » 53 afhjúpun Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is SKUGGALEIKUR, ný íslensk ópera, verður frumsýnd næstkom- andi laugardag í Íslensku óperunni. Óperan er samstarfsverkefni Ís- lensku óperunnar og Strengjaleik- húss Messíönu Tómasdóttur. Mes- síana átti frumkvæðið að því að verkið var samið auk þess að leik- stýra því, hanna búninga og sviðs- mynd. Karólína Eiríksdóttir samdi tónlistina og Sjón skrifaði textann. Óperan byggist á sögunni Skugg- anum eftir H.C. Andersen. „Ég las söguna fyrir tuttugu árum og varð mjög hugsi yfir henni enda er hún margræð. Ég hef lengi haft áhuga á H.C. Andersen og þetta er ein af fáum fullorðinssögum sem hann skrifaði. Fyrir nokkrum árum hugs- aði ég svo með mér að sagan yrði næsta ópera sem ég setti upp,“ seg- ir Messíana sem blaðamaður hitti ásamt Karólínu í kjallara Óp- erunnar einn kaldan nóvemberdag. Um baráttu góðs og ills „Um leið og ég sá Skuggann sem óperuefni fannst mér enginn annar koma til greina en Karólína til að semja tónlistina en við unnum sein- ast saman að óperunni Maður lif- andi. Við ákváðum síðan í samein- ingu að fá Sjón til að skrifa textann og hann tók strax mjög vel í það. Karólína segist strax hafa séð möguleikana í sögunni þegar Mes- síana leitaði til hennar. „Sagan hentar vel til óperu, hún er um bar- áttu góðs og ills, um skuggann, skáldið, skáldgyðjuna og skugga- prinsessuna. Þetta eru góðar og vondar persónur sem eru málaðar mjög sterkum litum. Að því leyti er þetta mjög hefðbundið óperuefni, með afgerandi söguþræði og drama- tískum endi,“ segir Karólína. „Ég byrjaði ekki tónsmíðarnar fyrr en ég var búin að fá óperutextann frá Sjón, en þá tók þetta mig ekki nema hálft ár.“ Karólína segir tónlistina í verkinu kryddaða ýmsum stílteg- undum. „Hver kafli og hver persóna hefur sína tónlist sem birtist í mis- munandi aðstæðum. Ég leyfi mér að grípa til allskonar tónlistaraðferða og stíltegunda. Sagan er dimm en hún er líka mjög kómísk, Sjón setur mikla kómík inn í textann sem skil- ar sér í tónlistinni og búningunum. Ég held að okkur hafi tekist að gera svolítið góða blöndu.“ Leyfir sér að vísa í hefðina Aðspurð segir Karólína það nokk- uð ólíkt að semja tónlist fyrir óperu en hefðbundinn hljómsveitarflutn- ing. „Í óperu er maður að lýsa text- anum og sögunni. Hver persóna hefur sína tónlist og svo þarf að túlka atburðarásina með tónlist. Út af hinni sterku óperuhefð leyfir maður sér líka hluti sem maður leyfir sér ekki annars, eins og að vísa í hefðina. Það er mjög gaman að semja óperutónlist og ég gæti hugsað mér að gera meira af því.“ Messíana grípur þarna inn í og segir það vera ofboðslega gaman að setja upp nýja óperu. „Þetta getur verið svolítið bras, maður gæti þeg- ið betri aðstöðu og að fá aðeins fleiri styrki en ég hef botnlaust gaman af þessu. Ég vil halda áfram að gera nýjar óperur, núna er ég með fjórar nýjar í kollinum og eitt tónlist- arverk. Ég vil halda áfram að skapa en ekki sitja föst í þeim óperum sem ég hef sett upp áður,“ segir Messíana en þetta er sjötta óperan sem Strengjaleikhúsið setur upp og í þriðja sinn í samstarfi við Íslensku óperuna. „Messíana er einstakur hugsjónamaður og það er engin til- viljun að þessar íslensku óperur hafa orðið til að hennar frum- kvæði,“ segir Karólína. Söngvarar og brúður Messíana kemur að Skuggaleik frá mörgum hliðum, hún leikstýrir, sér um búninga og leikmynd. „Ég byrjaði á leikmyndinni og búning- unum áður en óperan varð til. Það fyrsta sem lá fyrir í þessa óperu var efnið í búningana en ég vil alltaf byrja að æfa með búningana tilbúna vegna þess að þeir gefa möguleika,“ segir Messíana. Það eru fjórir söngvarar sem koma fram í Skuggaleik. „Þessir söngvarar voru á óskalistanum frá upphafi. Það er óvenjulegt að það er engin djúp karlmannsrödd í verk- inu, aðeins háar og bjartar raddir. Það eru líka fimm stórar brúður sem koma fyrir, fjórar þeirra eru sálir persónanna og koma í ljós þeg- ar skáldið missir vitið um stund, síðan er ein brúða sem er dans- félagi. Ég nota mikið brúður í mín- um verkum, það er aldrei brúðuleik- hús heldur falla þær inn í verkið og eru þátttakendur í því,“ segir Mes- síana. Gerðu söguna dramatískari Þær stöllur segja Sjón hafa kom- ið með skemmtilegar viðbætur inn í sögu Andersen í sambandi við per- sónusköpunina. „Sjón kom með þá frábæru hugmynd að breyta einni persónunni og gera hana mikið dramatískari og þar með var komið dramatískt plott sem varð mikið meira spennandi en sagan er í raun. Hann túlkar líka þessar persónur allt öðruvísi en H.C. Andersen. T.d gerir hann skáldið mjög breiskan og mannlegan meðan í sögunni er hann upphafinn og saklaus. Hann er samt trúr upphaflegu sögunni.“ Messíana segir samstarfið á milli hennar, Karólínu og Sjón hafa gengið mjög vel auk þess sem allir aðrir sem koma að sýningunni séu frábærir. „Ég lofa því að þetta verð- ur skemmtilegt,“ segir Messíana að lokum og Karólína kinkar kolli henni til samþykkis. Eins og áður segir er frumsýning Skuggaleiks á laugardaginn í Ís- lensku óperunni, aðeins verða þrjár sýningar á verkinu sem er bannað börnum innan 12 ára. Um skuggann og skáldið Morgunblaðið/Brynjar Gauti Margræð Söngkonan Ásgerður Júníusdóttir er myrk sem skuggaprinsessan sem slæst í lið með skugganum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Höfundar Karólína Eiríksdóttir og Messíana Tómasdóttir sömdu verkið ásamt Sjón. Þær segja Skuggaleik vera dimma en kómíska óperu. Um helgina verður frumsýnd íslensk ópera byggð á sögunni Skugganum eftir H.C. Andersen SKUGGALEIKUR er dæmisaga, þar sem skáld felur skugga sínum að finna skáldgyðju sína. Skáldinu til skelfingar hverfur skugginn. Löngu seinna vitjar skugginn skáldsins aftur og er þá orðinn að manni án skugga og það sem verra er án siðferðiskenndar. Skugginn nær valdi yfir skáldinu og þeir skipta um hlutverk, skugginn verð- ur maðurinn og skáldið verður skugginn. Þegar blekkingarnar loks ganga fram af skáldinu vill hann leiða sannleikann í ljós, en það er of seint og hann geldur fyrir með lífi sínu. Í leit að skáld- gyðjunni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tvær hliðar Skugginn og skáldið. Leikstjóri: Messíana Tómasdóttir Tónskáld: Karólína Eiríksdóttir Texti: Sjón Hljómsveitarstjóri: Guðni Franz- son Söngvarar: Eyjólfur Eyjólfsson tenór er skáldið, Ingibjörg Guð- jónsdóttir sópran er skáldgyðjan, Sverrir Guðjónsson kontratenór er skugginn, Ásgerður Júníus- dóttir mezzósópran er skugga- prinsessan. Sviðshreyfingar: Ástrós Gunn- arsdóttir Leikmynd, búningar og brúðu- gerð: Messíana Tómasdóttir Lýsing: David Walters Skuggaleikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.