Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkaði um 1,02% í gær, var 6.270 stig við lokun markaða. Bréf KB banka hækkuðu um 2,14%, bréf Bakkavarar um 1,31% og bréf Exista um 0,93%. Bréf Tryggingamiðstöðv- arinnar lækkuðu um 1,84%. Raungengi íslensku krónunnar á mælikvarða verðlags lækkaði um 2,3% í nóvember frá fyrri mánuði samkvæmt tölum frá Seðlabanka Ís- lands. Úrvalsvísitala hækkar ● VEGNA fréttar um aukin kaup Vog- unar á bréfum í HB Granda í blaðinu sl. laugardag skal það leiðrétt að yf- irtökuskylda hefur ekki myndast við meira en 40% eignarhlut félagsins. Í reglum um iSEC-markaðinn gilda ekki ákvæði laga um yfirtökuskyldu. Þá skal það áréttað að Hvalur er eig- andi 98% hlutafjár í Vogun en Krist- ján Loftsson og Árni Vilhjálmsson, stjórnarmenn í HB Granda, eru í gegnum félög sín stórir eigendur Hvals hf. Ekki yfirtökuskylda ÍSLENSKA fyrirtækið Stímir hefur nýlega lokið hönnun á vél sem auð- veldar endurnýjunarferli stálstubb- arafskauta í áliðnaði en verkið var unnið fyrir nýsjálenskt álver. Teygst getur á stálskautum með- an þau eru í álkerum og þegar fara þarf með þau í endurnýjun þar sem kolefnispartur skautsins er endur- nýjaður eru nokkur skaut verkuð í einu. Vegna þess að þau geta verið mislöng passar aðeins það lengsta í viðkomandi tæki og það sem upp á vantar á hinum skautunum er lagað með pottjárni. Mismunandi magn pottjárns á skauti getur hins vegar haft áhrif á rafleiðni þess og aðra eiginleika en vél Stímis er ætlað að tryggja það að skautin séu öll sömu lengdar þegar endurnýjun hefst. Hannar fyrir nýsjálenskt álver UNDIRRITUÐ var viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli Íslands og Kína á fundi Val- gerðar Sverrisdóttur utanríkisráð- herra með aðstoðarutanríkisvið- skiptaráðherra Kína í Peking í gær. Á fundinum ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna og aukin umsvif íslenskra fyrirtækja í Kína á undanförnum misserum en í dag starfa í landinu um 20 íslensk fyr- irtæki með einum eða öðrum hætti. Eitt þeirra, Glitnir, opnar skrifstofu sína í Shanghæ í dag, fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja. Að loknum fundinum í gær var ut- anríkisráðherra gestgjafi í móttöku í Peking í tilefni af 35 ára stjórnmála- sambandi Íslands og Kína. Mót- tökuna sóttu á þriðja hundrað manns og voru þar m.a. fulltrúar opinberra aðila, erlendra ríkja og atvinnulífs- ins, auk íslenskra námsmanna. Ánægjulegt skref Samkvæmt viljayfirlýsingunni var ákveðið að fríverslunarviðræður Kínverja og Íslendinga hæfust þegar í upphafi næsta árs. Valgerður Sverrisdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið að með viljayfirlýsingunni hefði verið stigið stórt og ánægjulegt skref í þá átt að ná samningum við Kínverja um frí- verslun milli ríkjanna. Það hefði jafnframt verið athyglisvert að Kín- verjar vildu taka upp viðræður beint við Íslendinga en ekki EFTA-þjóð- irnar sameiginlega. EFTA-þjóðirnar væru áhugasamar um fríverslunar- samning við Kínverja, það hefði komið skýrt fram á ráðherrafundin- um sem hún sat í Sviss í síðustu viku. Valgerður taldi ekki útilokað að til lengri tíma myndu samningar á breiðari grundvelli nást við Kínverja. Valgerður sagði starfsemi ís- lenskra fyrirtækja í Kína vekja nokkra eftirtekt, m.a. opnun hita- veitu Enex um helgina og svo opnun skrifstofu Glitnis í dag. Hún sagði viðskipti Kínverja og Íslendinga hafa verið að vaxa hröðum skrefum und- anfarin ár og starfsemi fyrirtækj- anna í Kína hefði ekki síst haft áhrif á þá ákvörðun kínverskra stjórnvalda að hefja fríverslunarviðræður beint við Íslendinga. Aukin umsvif hefðu mikið verið rædd í móttökunni í Pek- ing í gær. Auk þess að vera viðstödd opnun Kínaskrifstofu Glitnis í dag, mun Valgerður setja ráðstefnu nýstofn- aðs samráðsvettvangs íslenskra fyr- irtækja í Kína. Þaðan fer hún til Jap- ans í opinbera heimsókn. Stóraukin viðskipti Verðmæti útflutnings á vörum til Kína jókst um 73% fyrstu tíu mánuði þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra, og nam 2,6 milljörðum króna. Fluttar voru inn vörur frá Kína fyrir 16,8 milljarða frá janúar til október, miðað við 12,2 milljarða innflutning á sama tímabili í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Viljayfirlýsing um fríverslun við Kína Verðmæti útflutningsvara til Kína hefur aukist um 73% í ár Fríverslun Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Yu Guangzhou, aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra Kína, undirrita viljayfirlýsinguna. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Í HNOTSKURN »Að undangenginni hag-kvæmniathugun var vilja- yfirlýsing Kínverja og Íslend- inga undirrituð. »Viðræður um fríversl-unarsamning hefjast þeg- ar í upphafi árs 2007. »Glitnir opnar í dag skrif-stofu sína í Shanghai. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is HLUTAFJÁRÚTBOÐI Icelandair Group Holding lauk í gær klukkan 19, en um 18,5% af hlutafé félagsins voru boðin út, að verðmæti tæplega fimm milljarða króna. Starfsmenn áttu kost á því að kaupa fyrir 945 milljónir króna, almenningur fyrir tæpan 1,1 milljarð og fagfjárfestar fyrir tæpa þrjá milljarða króna. Verðið í útboðslýsingu var hið sama til allra hópa, eða 27 krónur á hlut, en hlutafé í félaginu er einn millj- arður og markaðsvirðið því 27 millj- arðar miðað við útboðsgengið. Reiknað er með að viðskipti með bréf Icelandair Group Holding hefj- ist 14. desember en Glitnir og Straumur-Burðarás Fjárfestinga- banki muni sjá um viðskiptavakt á hlutabréfum Icelandair. Greiningardeild Landsbankans mælti með þátttöku í útboðinu í áliti. „Við mælum með þátttöku í útboð- inu, en bendum jafnframt á að háir vextir og góð ávöxtunarvon á inn- lendum skuldabréfamarkaði valdi því að aðstæður á hlutabréfamarkaði séu almennt erfiðar. Við teljum því áhættusamt að veðja á skjótan ávinning af þátttöku í útboðinu og hvetjum fjárfesta til að horfa til lengri tíma,“ segir í Vegvísi Lands- bankans. Ytri skilyrði eru flug- rekstrinum sögð að mörgu leyti hag- stæð í dag og að útlit sé fyrir að svo verði áfram á næsta ári. Upplýsingar um þátttöku í útboðinu og skiptingu hluta verða gefnar í tilkynningu til Kauphallarinnar í dag. Útboði Icelandair Group lokið              0   +,,/ )1 2(& (2  2% ;#!< "=2% % ;2% # #;> # " > #" < "=2% ?!0 < "=2% -< "=2% <#  @ 2% A% B=%3   (=& @ 2% - @  2% , 2% ,"; 2" 2% #  /?  $ $ % @ 2% C 2% 3 1$4#  BD#2%  < "=2% E;  ;< "=2% 7F2 2% 6,G? H :2% H :   #0  2% I #0  2% 5 #  # 6 $# %3    !% 789:  # A?<  2% A=  2% "#     '&&    &' '&&  '&&   '&&                                                          A  / ! =#    H@" ." J (= /                                       / / / /    / / / /                      /      /                  /       I =#. +  HA K#2   # 0 ! =# /     / / / /  / / / / . # !  ! 7L M>  & (' (&' N N HB 8G &  (&' (&' N N OO 6,G#"2  & (&' (' N N 6,G(20% 7   & (' )&' N N EOBG 8"P4"    ('& (&' N N RAGNHILDUR Ágústsdóttir hef- ur tekið við sem framkvæmda- stjóri Ódýra símafélagsins, sem rekur far- símafyrirtækið SKO og netþjón- ustuna BTnet. Ragnhildur, sem er 25 ára, tók þátt í undirbúningi að stofnun Ódýra símafélagsins á síð- asta ári og gegndi starfi þjónustu- og vefstjóra þegar það hóf starf- semi 1. apríl á þessu ári. Ragnhild- ur er viðskiptafræðingur að mennt. Yfir Sko og BTnet Ragnhildur Ágústsdóttir ● SÉRFRÆÐINGAR spá því að stjórn evrópska seðlabankans hækki stýri- vexti við næstu vaxtaákvörðun, en hennar er að vænta næstkomandi fimmtudag. Er sagt frá þessu í Morg- unkorni greiningardeildar Glitnis, en verði af hækkun yrði hún sú sjötta á einu ári. Stýrivextir bankans eru nú 3,25% og spáð er 0,25% hækkun. Sérfræð- ingar telja ennfremur að frekari vaxtahækkunar sé að vænta snemma á næsta ári og að vextir fari upp í 3,75% í mars. Spá vaxtahækkun STRAX Holdings, sem er í meiri- hlutaeigu íslenskra fjárfesta, hefur opnað Farsímalagerinn í Garðabæ, verslun með farsíma og far- símabúnað. Verslunin er til húsa í Miðhrauni 14, við hliðina á Marel. Í tilkynningu frá félaginu segir að Farsímalagerinn bjóði mun lægra verð á farsímum og tilskildum aukabúnaði en þekkst hefur hér á landi. Strax Holdings er með rekst- ur í 11 löndum í þremur heims- álfum og sérhæfir sig í dreifingu á farsímum og aukabúnaði frá öllum helstu framleiðendum símtækja. Strax með farsímaverslun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.