Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag miðvikudagur 6. 12. 2006 íþróttir mbl.is íþróttir Kristján Örn Sigurðsson skorinn upp á ökkla >> 4 ALLT LAGT UNDIR MANCHESTER UNITED OG ARSENAL Í BARÁTTU VIÐ LIÐ FRÁ PORTÚGAL Í MEISTARADEILDINNI >> 4 BALDUR Sigurðsson, miðjumaðurinn efnilegi úr knattspyrnuliði Keflavíkur, dvelur þessa vikuna hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lyn og er þar til reynslu. Baldur fór til Noregs á mánudaginn og er væntan- legur aftur um helgina. Lyn hóf æfingar á ný fyrir kom- andi keppnistímabil á mánu- dag og æft er stíft út þessa viku og Baldur hefur því nóg fyrir stafni. Baldur er 21 árs gamall Mývetn- ingur og hefur spil- að með Keflvík- ingum undanfar- in tvö ár en hann kom til þeirra frá Völsungi á Húsavík. Baldur hefur spilað 34 af 36 leikjum Keflvíkinga í úrvalsdeildinni þessi tvö ár og þá lék hann alla fimm leiki 21-árs lands- liðsins á þessu ári. Lyn er frá Ósló og endaði í sjöunda sæti norsku úr- valsdeildarinnar í ár. Með liðinu spila tveir íslenskir landsliðsmenn, Stefán Gísla- son, sem áður lék með Kefl- víkingum um skeið, og Indr- iði Sigurðsson, sem kom til Lyn frá Genk í Belgíu í sumar. Baldur Sigurðsson Baldur Sigurðsson til reynslu hjá Lyn YNGRI karlalandslið Ís- lands, U17 ára og U19 ára, leika bæði gegn ríkjandi Evr- ópumeisturum í milliriðlum Evrópukeppninnar en til þeirra var dregið í gær. Ís- land komst áfram úr undan- riðlum í báðum aldursflokk- um í haust og er því í hópi 28 bestu þjóða í Evrópu í þeim báðum. Drengjalandsliðið, U17 ára, dróst í riðil með Rússum, sem unnu Evrópukeppnina fyrr á þessu ári, Portúgölum og Norður-Írum. Riðillinn verð- ur leikinn í Portúgal dagana 19.–24. mars en eitt lið kemst áfram í úrslitakeppnina sem fer fram í Belgíu í maí. Íslenska liðið varð í fjórða og neðsta styrkleikaflokki og því metið í hópi 22–28 bestu liða Evrópu. Unglingalandsliðið, U19 ára, leikur í riðli með Spán- verjum, sem urðu Evrópu- meistarar í ár, Norðmönnum og liði Aserbaídsjans. Riðill- inn verður leikinn í Noregi dagana 30. maí til 4. júní. Sig- urliðið í riðlinum kemst í úr- slitakeppnina sem fer fram í Austurríki í júlí. Íslenska liðið var í þriðja styrkleikaflokki og því metið í hópi þjóða núm- er 15–21 í röðinni í Evrópu. Einnig var dregið í milli- riðla í U19 ára landsliðum kvenna en úrslitakeppnin verður hér á landi og Ísland fer því beint í hana. Yngri landsliðin í riðlum með Evrópumeisturum Þetta var níunda mark Eiðs fyrir Barcelona á leiktíðinni og sjötta markið sem þessi frábæri knatt- spyrnumaður skorar í meistaradeild- inni en fjögur þeirra gerði hann fyrir Chelsea. ,,Við lékum af miklum krafti í fyrri hálfleik. Við vorum geysilega ein- beittir og fagmannlegir í því sem við gerðum,“ sagði Eiður Smári eftir leikinn en hann lék allan leikinn fyrir Evrópumeistarana og skoraði annað markið sitt fyrir liðið í meistaradeild- inni en það fyrra gerði hann gegn sín- um gömlu félögum í Chelsea. ,,Við fengum geysilega góðan stuðning frá stuðningsmönnum okk- ar. Mér fannst við spila fyrri hálfleik- inn afar vel. Það var mjög mikilvægt að byrja vel og okkur tókst að skora mörk snemma leiks sem létti mjög af okkur pressunni,“ sagði Frank Rijka- ard, þjálfari Evrópumeistaranna, eft- ir leikinn en Barcelona lenti í öðru sæti á eftir Chelsea og verður því í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður til 16 liða úrslitanna hinn 15. desember. ,,Liðið sýndi geysilega mikinn styrk allan leikinn og ég var mjög ánægður með framlag minna manna. Þeir gerðu það sem fyrir þá var lagt og ég verð að óska mínu liði til ham- ingju. Werder Bremen veitti okkur harða keppni í seinni hálfleik en sem betur fer náðum við að halda þeim frá því að skora,“ sagði Rijkaard en Bör- sungar hafa ekki tapað heimaleik í Evrópukeppninni síðan í apríl 2003 eða í 17 leikjum í röð. ,,Barcelona hóf leikinn með mikl- um krafti og gerði nánast út um leik- inn á fyrstu 20 mínútunum. Það var fínn kraftur í mínum mönnum í seinni hálfleik en það dugði einfaldlega ekki til,“ sagði Thomas Schaaf þjálfari Werder Bremen sem hafnaði í þriðja sæti í riðlinum og leikur í UEFA- keppninni. Tólf félög hafa tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum meistaradeildinnar en dregið verður í riðlana annan föstu- dag. Sigurvegarar riðlanna verða í fyrsta styrkleikaflokki og fyrri leik- urinn í 16 liða úrslitunum á útivelli. Liðin sem hafa tryggt sér sigur í riðlinum og verða í efri styrkleika- flokki eru: Chelsea, Bayern Münc- hen, Liverpool, Valencia, Lyon og AC Milan. Liðin sem eru örugg áfram en verða í öðrum styrkleikaflokki eru: Barcelona, Inter, PSV, Roma, Real Madrid. Celtic er öruggt áfram í F-riðlinum en Manchester United og Benfica keppa um að fylgja Celtic áfram. Benfica getur náð öðru sætinu nái lið- ið að vinna Man. Utd í kvöld en Unit- ed og Celtic geta bæði hafnað í fyrsta sæti riðilsins. „Vorum geysi- lega einbeittir“ sagði Eiður Smári sem skoraði í sigri Barcelona á Werder Bremen EVRÓPUMEISTARAR Barcelona og Roma tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Barcelona hrósaði 2:0 sigri gegn Werder Bremen þar sem Eiður Smári skoraði síðara mark liðsins. Reuters Fögnuður Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki sínu gegn Werder Bremen á skemmtilegan hátt á Nou Camp í gærkvöld. Eiður og félagar hans í Barcelona höfðu betur, 2:0, og eru komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Yf ir l i t                                  ! " # $ %            &         '() * +,,,                             Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Staksteinar 8 Umræðan 28/31 Veður 8 Bréf 29 Erlent 15 Minningar 32/37 Úr verinu 16/17 Menning 40/43 Viðskipti 18 Leikhús 42 Menning 19 Myndasögur 44 Höfuðborgin 20 Dægradvöl 45 Akureyri 20 StaðurStund 46/47 Suðurnes 21 Dagbók 48/49 Landið 21 Víkverji 48 Daglegt líf 22/25 Velvakandi 48 Forystugrein 36 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Úrskurðarnefnd almannatrygg- inga hefur fellt niður endurkröfu Tryggingastofnunar ríkisins á hend- ur eldri borgurum vegna ofgreiddra bóta upp á rúmar 916 þúsund krónur á árunum 2003 til 2004. Hefur nefnd- in vísað málinu aftur til TR til endur- útreiknings og eftir atvikum til að taka nýja ákvörðun um endurkröfu vegna ofgreiddra bóta 2004. » 4  Innflutt fóður hefur hækkað um 4–6% og áburður hækkar um 17– 20% að því er innflytjendur hafa til- kynnt. Þessar hækkanir koma illa niður á mjólkurframleiðendum því mjólkuriðnaðurinn hefur lýst því yf- ir að mjólkurverð verði óbreytt til ársloka 2007. » Baksíða  Ef tvöfalda á Suðurlandsveg í stað þess að leggja þar 2+1-veg þarf framkvæmdin að fara í umhverf- ismat, sem myndi tefja verkið um marga mánuði, segir Jón Rögnvalds- son vegamálastjóri. Hann segir að ekki náist miklu betri árangur í fækkun slysa með því að tvíbreikka veginn í stað þess að láta 2+1-veg duga. Kostnaðurinn við tvíbreikkun sé um 70% meiri, en hlutfallslega fá- ist litlu meira öryggi fyrir þá auknu fjármuni. » 6 Erlent  Forsætisráðherra Íraks sneri í gær við blaðinu og sagðist ætla að beita sér fyrir ráðstefnu með þátt- töku grannríkjanna þar sem reynt yrði að finna ráð gegn ofbeldinu í landinu. Robert Gates, sem varn- armálanefnd öldungadeildarinnar samþykkti í gær í embætti varn- armálaráðherra, segir að staðan í Írak sé ekki viðunandi, Bandaríkin séu ekki að vinna stríðið. » Forsíða  Ríki heims fordæmdu í gær valdarán hersins á Fídjí-eyjum að- faranótt þriðjudags. » 15 Kynning – Morgunblaðinu fylgir fréttabréf Mjólku. JÓN Baldvin Hannibalsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra, var í gær sæmdur gullorðu slóvenska lýðveldisins fyrir störf á vettvangi alþjóðamála. Rudolf Gabrovec, sendiherra Slóveníu á Íslandi, sæmdi Jón Baldvin orðunni við há- tíðlega athöfn á Hótel Sögu. Fimmtán ár verða liðin 19. des- ember nk. frá því að Ísland, fyrst vestrænna ríkja, viðurkenndi sjálf- stæði Slóveníu og lýsti sig reiðubú- ið að taka upp stjórnmálasamband við hið nýstofnaða ríki. Jón Baldvin Hannibalsson var þá utanríkis- ráðherra. Í þakkarræðu sinni í gær skýrði Jón Baldvin frá því að hann hefði átt miklar viðræður við rík- isstjórn Austurríkis um þetta mál og ekki síst ráðherrann Wolfgang Schüssel, sem síðar varð kanslari Austurríkis. Einnig ræddi Jón Baldvin þetta við Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, sem var mikill áhuga- maður um sjálfstæði Slóveníu og hvatti til þess að Íslendingar veittu Slóvenum viðurkenningu. Jón Baldvin sæmdur slóvenskri gullorðu Morgunblaðið/Golli Viðurkenning Jón Baldvin Hannibalsson veitti viðtöku slóvensku gullorð- unni úr hendi Rudolfs Gabrovec, sendiherra Slóveníu á Íslandi. KRAKKARNIR á leikskólanum Hálsaborg í Reykjavík eru komnir í jólaskapið og farnir að föndra fyrir jólin. Ilmurinn af piparkökum gat þó ekki dregið athyglina frá því sem var að gerast hinum megin við gluggann, þar sem verið var að salta svellbungur. Nema auðvitað börnin hafi vonast til að sjá jólasvein snemma á ferð. Morgunblaðið/Ásdís Föndur og jólaskap á Hálsaborg HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 28 ára gamalli konu 23,3 milljónir króna í bætur vegna skaða sem hún varð fyrir þegar hjarta henn- ar stöðvaðist í brjóstastækkunarað- gerð. Komst dómurinn að því að mis- tök hefðu verið gerð við svæfingu og endurlífgun. Konan gekkst undir brjóstastækk- unaraðgerð í maí 2001, þá 23 ára gömul. Eitthvað fór þó úrskeiðis og hjartsláttur hennar stöðvaðist skömmu eftir svæfingu. Bæði lýta- læknir og svæfingalæknir voru í skurðstofunni, auk tveggja hjúkrun- arfræðinga, en ekki tókst að koma hjartslætti í gang á nýjan leik fyrr en sjúkrabíll kom á vettvang með hjarta- rafstuðstæki. Vegna hjartastoppsins hætti súr- efnisflutningur til heila og hlaut kon- an alvarlegan heilaskaða vegna þessa, sem leitt hefur til skerts minnis, skertra skipulagshæfileika og per- sónuleikabreytingar, auk líkamlegra einkenna sem gera henni ókleift að vinna líkamleg störf. Segir í dómi héraðsdóms að ef rétt hefði verið staðið að vöktun og fram- kvæmd svæfingar hefði þetta ekki átt að gerast. Verði hjartastoppið rakið til mistaka í svæfingu og endurlífgun og báðir læknarnir beri á því sök. Krafðist 40 milljóna Gerir dómurinn sérstaklega at- hugasemd við að læknarnir hafi ekki látið sækja hjartarafstuðstæki sem hafi að geyma hjartalínusírita, sem þó hafi verið tiltækt í grennd við skurð- stofuna. Hægt hefði verið að sækja og virkja tækið til að koma hjarta kon- unnar fyrr í gang, í stað þess að bíða eftir sjúkraflutningamönnunum. Konan krafðist um 40,1 milljónar króna í bætur en dómurinn dæmdi læknana tvo til að greiða 23,3 millj- ónir króna, auk tveggja milljóna króna sakarkostnaðar þar sem konan átti rétt á bótum frá öðrum aðilum, svo sem lífeyrissjóði og Trygginga- stofnun ríkisins. Dóm héraðsdóms kváðu upp þau Helgi I. Jónsson dómstjóri sem dóms- formaður, ásamt meðdómendunum Ölmu D. Möller, sérfræðingi í svæf- inga- og gjörgæslulækningum, og Þorsteini Blöndal, sérfræðingi í lungnalækningum. Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hrl. sótti málið fyrir hönd konunnar, en verjendur læknanna voru Bergur Guðnason hdl. og Ólafur Finnbogi Haraldsson hrl. Fær bætur vegna mis- taka við brjóstastækkun Fékk hjartastopp í svæfingu og hlaut alvarlegan heilaskaða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.