Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 35
sögur sagði hann strákunum sem hljóma ótrúlega í eyru nútímabarns- ins eins og rekstur fjár í sláturhús frá Hrunamannahreppi til Reykja- víkur, gröftur húsgrunns með skóflu og haka þar sem vélum varð ekki við komið var meðal þess sem vakti að- dáun og kátínu strákanna. Hann deildi með strákunum frjálsíþrótta- áhuganum og lýsti fyrir þeim ung- mennafélagsmótum sem haldin voru um landið áður fyrr við fábrotnar að- stæður. Þegar við ferðuðumst saman um landið vantaði ekki leiðsögnina því hann þekkti nánast hverja þúfu og mundi örnefni eins og hann hefði verið á staðnum deginum áður. Vinnusemi og dugnaður var nokkuð sem var honum eðlislægt og okkur góð fyrirmynd og veganesti til fram- tíðar. Gústi afi gat sem betur fer ver- ið á fullu fram á síðustu stundu þar sem hann var með eindæmum heilsuhraustur. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta návistar, hjálpar og umhyggjusemi Gústa afa. Góðar minningar ylja okkur á þessari kveðjustund. Við biðjum góðan Guð að senda ömmu styrk á þessari erf- iðu stund. Jónína, Logi, Kári, Sölvi og Egill. Í dag kveðjum við föðurbróður okkar Ágúst Steindórsson. Það setti alla hljóða þegar fréttist að Gústi hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu að kvöldi miðvikudags- ins 29. nóvember. Hann sem alltaf var svo hress og duglegur. Gústi fæddist í Ási í Hrunamanna- hreppi 6. september 1925. Hann var þriðji yngstur af tólf systkinum. Tíu þeirra komust til fullorðinsára. Snemma kom í ljós að Gústi var mikill íþróttamaður og um tvítugt fór hann í íþróttaskólann í Haukadal. Þar þótti hann sérstaklega liðtækur í hinni þjóðlegu íþrótt glímu. Oft höf- um við heyrt sögur af því hversu duglegir bræðurnir frá Ási voru, og ekki var Gústi nein undantekning þar frá. Lengi vann hann á skurð- gröfu víða um land og síðar var hann mörg ár til sjós. Síðustu starfsárin vann hann svo í álverinu í Straums- vík. Upp úr 1950 kynntist hann Sigríði konu sinni og eignaðist með henni stóran hóp barna auk þess sem hann gekk Sigurbjörgu dóttur hennar í föðurstað. Þau hjónin urðu fyrir þeirri erfiðu lífsreynslu að missa fyrsta barnið sitt aðeins eins árs gamalt. Þetta tók á þau en saman unnu þau úr sorginni og lífið hélt áfram. Þegar fjölskyldan stækkaði þurfti líka að stækka heimilið og þá byggðu þau glæsilegt hús á Hraunbraut 26 í Kópavogi. Það var þar sem nær allar Reykjavíkurferðir fjölskyldu okkar enduðu, í kaffi hjá Siggu og Gústa. Þar var alltaf tekið vel á móti gest- um, Siggu tókst á augabragði að töfra fram dýrindis veislu og Gústi var ekki lengi að skjótast út í búð að kaupa kókflösku handa okkur krökkunum. Á þau hjónin var líka alltaf hægt að treysta ef einhver þurfti á gistingu í höfuðborginni að halda. Alltaf var tekið á móti fólki opnum örmum. Það má segja að Gústi hafi verið stoð og stytta stórfjölskyldunnar þegar eitthvað var um að vera. Hann var alltaf reiðubúinn að sjá um alla hluti. Það var gott að hafa svo traustan mann í öllu því sem hefur þurft að gera, hvort sem það var vegna gleði- eða sorgarstunda. Elsku Sigga, Didda, Sigþór, Elín, Rúnar, Jónína, Halldór og fjölskyld- ur við sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Helena, Steindór, Guðrún og fjölskyldur. Það var að kvöldi miðvikudagsins 30. nóvember, að Sigurður frændi minn hringdi og tjáði mér að Ágúst föðurbróðir minn væri dáinn. Ég hrökk við þegar ég heyrði þessa fregn vegna þess að hann Ágúst hafði alltaf verið svo hress og látið lítið á sjá þótt árin væru farin að fær- ast yfir. Mig langar í örfáum orðum að minnast hans, eða Gústa eins og hann var jafnan kallaður. Ágúst ólst upp í stórum systkinahópi að Ási í Hrunamannahreppi, þar foreldrar hans stunduðu búskap af miklum dugnaði og eljusemi. Að sjálfsögðu hjálpuðu börnin til við búskapinn á þeim árum og unnu við heyskap og skepnuhirðingu jöfnum höndum með fullorðna fólkinu á bænum. Ágúst fluttist ungur að heiman og fór þá að stunda sjóinn, og eins ýmis þau störf sem til féllu í landi. Hann vann í mörg ár á skurðgröfum hjá Vélasjóði ríkisins, fyrst á svokölluð- um víragröfum og síðar einnig á glussagröfum sem þóttu mikil bylt- ing, þegar þær fóru að ryðja sér til rúms. Þegar ég var strákur, rétt um 1960, man ég eftir því þegar Gústi var að grafa skurði með víragröfu hér heima á búi föður míns, að Heiði í Ásahreppi. Þá þótti mér tilkomu- mikið þegar hann var að draga inn skófluna með spilinu, hífa upp, snúa gröfunni til hliðar og sturta í ruðn- inginn á skurðbakkanum. Eins man ég eftir því þegar hann var að skipta um vír á spilum gröfunnar. Þá var notaður meitill og hamar til að klippa vírinn, og áttaði ég mig þá á því hvað þetta var mikil og erfið vinna. Síðustu árin vann Ágúst í ál- verinu í Straumsvík, eða þar til hann hætti störfum vegna aldurs. Ágúst var ávallt glaðvær, hress og skemmtilegur og hann tók ætíð vel á móti gestum, ásamt Sigríði eigin- konu sinni. Ég átti því láni að fagna að koma oft til þeirra, ásamt foreldr- um mínum. Sveinbirni sem lést inn- an við tveim dögum á eftir bróður sínum, og Sigurbjörgu, þegar við vorum á ferð fyrir sunnan. Ágúst og Sigríður voru þeirrar gæfu aðnjót- andi að eignast stóran og myndar- legan barnahóp, og eru afkomendur þeirra því orðnir nokkuð margir. Kæru vinir, ég og móðir mín Sig- urbjörg hugsum hlýtt til ykkar og vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessari stundu. Tryggvi. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 35 FRÉTTIR Bílar Cadillac Seville Elegance árg.’88, V8 4,5 L. Framdrifinn, innfluttur nýr, ek. 140 þús.,leður, topplúga,allt raf- drifið, Bose-hljóðkefi. Tilboð. Upplýsingar í síma 863 8837. Hyundai Santa FE GRDI 12/2005 Díselbíll sem nýr, sjálfsk., cruise, ál f., ek. aðeins 11 þ. km. Verð 3.290 þ. Bílalán. S. 690 2577. VERÐHRUN Á BÍLUM! Nýjir og nýlegir bílar frá öllum helstu framleiðendum allt að 30% undir markaðsverði. Veldu úr þremur milljón nýrra og nýlegra bíla í USA og Evrópu. Íslensk ábyrgð og bílalán. 30 ára traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu betra tilboð í síma 552 2000 eða á www.islandus.com Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Góður í vetrarakstur. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Bátar 30 rúmlesta skipstjórnarnám. Fjarnám við Framhaldsskólann í Aust- ur-Skaftafellssýslu. Skráning á vefn- um www.fas.is og í síma 470 8070. Umsóknarfrestur til 18. janúar. Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar • augl@mbl.is LEIÐSÖGUMENNIRNIR Sigrún Franklín, Jóhanna Þórarinsdóttir og Ketill G. Jósefsson bjóða íbúum og öðru áhugasömu fólki upp á sagnakvöld í Kirkjuvogskirkju í boði Reykjanesbæjar fimmtudaginn 14. desember kl. 20–22. Leiðsögumenn Reykjaness kynntu sér sögu svæðisns og fylltust miklum áhuga vegna þess hversu athyglisverð hún er og vilja miðla hluta hennar áfram til íbúa og ann- arra gesta, segir í fréttatilkyningu. Sigrún sýnir myndir og segir frá merkum minjum, m.a. járnminning- armörkum en nokkur þeirra prýða kirkjugarðinn í Höfnum. Jóhanna segir frá skipinu Jamestown, sem strandaði fyrir ut- an Ósabotna fyrir nákvæmlega 125 árum síðan, en margir Suðurnesja- menn nutu góðs af farminum. Enn má sjá minjar frá strandinu, m.a. akkerið úr skipinu. Ketill sýnir myndir og segir sögur af Kötlunum þremur er bjuggu í Höfnum kynslóð fram af kynslóð. Ketill er að sjálf- sögðu afkomandi þeirra. Á milli atriða verður jólasöngur. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. www.reykjanesguide.is Sagnakvöld í Kirkjuvogskirkju í Höfnum Föðurnafn misritaðist ÞAU leiðu mistök urðu við birtingu fréttar um íslenska jólasveina í Mý- vatnssveit í blaðinu í gær, að föður- nafn ungs drengs misritaðist í myndatexta. Hann heitir Bjarni Gunnar Arnbjörnsson en ekki Rand- versson eins og misritaðist. Er beð- ist velvirðingar á þessum mistökum. Rangt ártal RANGLEGA var farið með útgáfu- ár Þorláksbiblíu í Morgunblaðinu í gær. Þar var sagt að biblían hefði verið prentuð árið 1664 en hið rétta er að hún var prentuð árið 1644. Er beðist velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Í NÓVEMBER árið 2004 skipaði menntamálaráðherra starfshóp til að gera tillögur um aðgerðir til fjölgunar nemenda í raunvísindum og raungreinum. Starfshópurinn hefur skilað ráðherra tillögum sín- um og meðal tillagnanna er að Menntagátt verði falið að halda ut- an um og koma á framfæri upplýs- ingum um margvíslega starfsemi tengda raunvísindum sem hinir ýmsu aðilar standa að. Þar á meðal eru viðburðir sem eru til þess fallnir að auka áhuga nemenda og almennings á raun- greinum og tækni, en þar er meðal annars átt við keppnir af ýmsu tagi, námskeið, Vísindavefinn, hátíðir og verðlaun. Settur hefur verið upp sérstakur vefur hjá Menntagátt, www.menntagatt.is/visindi, þar sem er að finna aðgengilegar upp- lýsingar um félög, stofnanir, við- burði sem tengjast náttúruvís- indum og kennsluefni. Hvatt er til þess í fréttatilkynningu, að sem flestir nýti sér þessar upplýsingar og komi á framfæri ábendingum um nýja viðburði eða áhugavert efni til Björns Sigurðssonar, um- sjónarmannsMenntagáttar, (bjorn@menntagatt.is). Nýr vefur um vísindi JÓLATRÉSSALAN Landakot er hafin og rennur hluti af ágóðanum til Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna, segir í fréttatilkynn- ingu. Salan fer fram við IKEA í Kauptúni og við Landakotskirkju og stendur til kl. 22 á kvöldin. Jólatréssalan Landakot KYNNING verður næstkomandi fimmtudag á tveimur af aðal- námsleiðum til atvinnuflugmanns- prófs hjá breska flugskólanum Ox- ford Aviation Training. Kynning- arfundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum klukkan 20:00 fimmtu- daginn 14. des í sal 1. Á fundinum verður kynnt svo- kölluð „APP First Officer“ braut en hún er ætluð þeim sem hafa enga fyrri reynslu af flugi og hins vegar „Waypoint Pilot Programme“ en sú braut er ætluð þeim sem nú þegar hafa skírteini einkaflugmanns. Tveir íslenskir flugnemar hjá flug- skólanum, þeir Róbert Bjarni Bjarnason og Sigurberg Magnús Sigurðsson, verða á staðnum til þess að svara spurningum um nám- ið og skólann. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast með vefpósti: thaines@ox- fordaviation.net. Eða hafa samband beint við Toni Haines í síma 0044 1865 844235 Kynna flugnám í Oxford MÁLSTOFA verður haldin fimmtu- daginn 14. desember kl. 15:00 í fundarsal Seðlabanka Íslands, Sölv- hóli. Málshefjandi er Turalay Kenc, prófessor í fjármálahagfræði við Bradford háskóla í Bretlandi, og ber erindi hans heitið: „The term structure of interest rates in Ice- land (íslenska vaxtarófið). Erindið verður flutt á ensku. Málstofa hjá Seðlabankanum SKAUTAFÉLAGIÐ Björninn stendur fyrir kynningu á íshokkíi og kennslu á skautum. Þessi starf- semi fer fram á skautasvelli TM á Ingólfstorgi. Þeir sem hafa áhuga á því að fá kennslu í fyrstu skref- unum á ísnum eru hvattir til að nýta sér þessa aðstöðu, segir í fréttatilkynningu. Frítt er inn á svellið og hægt að leigja sér skauta fyrir 300 krónur. Dagskrá hefst í dag, miðvikudag, klukkan 17.30 með æfingu og sýn- ingu í 5-A fl. og klukkan 17:55– 18:15 í 5-B fl. Kynningin heldur síð- an áfram um helgina. Björninn leiðbeinir á Ingólfstorgi SALA er hafin á jólakortum Sam- hjálpar. Heiti kortanna er Vetrar- fuglar, myndröð eftir listmálarann Sigurþór Jakobsson. Sex mismunandi kort eru í hverj- um pakka og er verð hvers pakka með umslögum 690 krónur. Einnig er hægt að kaupa pakka á 990 krónur og fylgir þá annað hvort með geisladiskurinn Greater Than Anything eða bókin Koss götunnar. Þannig er hægt að eignast hvort tveggja, jólakort og jólagjöf, fyrir afar lága upphæð, segir í frétta- tilkyningu. Allur ágóði af sölu kortanna rennur til hjálparstarfs Sam- hjálpar. Kortin eru til sölu á skrif- stofu Samhjálpar að Stangarhyl 3a í Ártúnsholti. Einnig er hægt að panta kort á milli kl. 9 og 15 alla virka daga í síma 561 1000. Jólakort Sam- hjálpar komin út MIÐVIKUDAGSERINDI Orkustofn- unar og ÍSOR í dag, miðvikudaginn 13. desember, snýst um horfur í at- vinnuþróun og nýtingu auðlinda. Guðmundur Ólafsson, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands fjallar um horfur í at- vinnuþróun og nýtingu auðlinda, meðal annars út frá skýrslu Hag- fræðistofnunar 2003. Hvaða at- vinnuvegir eru vænlegir og hverjir ekki? Hvaða þróun ætti hið opinbera að styðja? Erindið hefst kl. 13 í Víðgelmi, sal Orkugarðs, á Grensásvegi 9, Reykja- vík. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar um mið- vikudagserindin á vef Orkustofn- unar http://www.os.is Erindi um atvinnuþróun og nýtingu auðlinda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.