Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk UNIFEM á Íslandi fagnarþví á morgun, mánudag,að liðin eru 30 ár frástofnun UNIFEM, þró- unarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna, og 17 ár frá því UNI- FEM á Íslandi var stofnað. Sjöfn Vilhelmsdóttir er fram- kvæmdastýra UNIFEM á Íslandi: „UNIFEM hefur umboð Sameinuðu þjóðanna til að styðja verkefni sem stuðla að bættri stöðu kvenna, og beinist starfsemi sjóðsins einkum að konum í þróunarlöndum og á átaka- svæðum,“ segir Sjöfn. „Meðal annars leitast UNIFEM með starfi sínu við að efla efnahagslegt öryggi kvenna, draga úr fátækt meðal þeirra, og efla þátttöku kvenna í pólitískri stefnu- mótun og ákvarðanaferli. Á síðustu árum hefur UNIFEM einnig beint sjónum sínum að þátttöku kvenna í friðarumleitunum og uppbyggingu í kjölfar átaka, t.d. á Balkanskaga. Umfram allt berst UNIFEM fyrir því að mannréttindi kvenna séu virt og öll mismunun gegn konum afnum- in, en í því felst m.a. að vinna gegn hverskyns kynbundnu ofbeldi.“ Landsnefndir UNIFEM starfa víða um heim: „Landsnefnd UNI- FEM á Íslandi eru frjáls fé- lagasamtök sem hafa það að mark- miði að kynna og auka áhuga almennings á starfsemi UNIFEM, vera málsvari kvenna í þróun- arlöndum og átakasvæðum á op- inberum vettvangi, og afla fjár- framlaga til starfsemi UNIFEM,“ segir Sjöfn, en sjóðurinn er háður frjálsum framlögum aðildarríkja SÞ og stuðningi fyrirtækja og ein- staklinga. „Það er því miður alls ekki sjálf- gefið að þróunarfé sé varið í verkefni sem huga sérstaklega að málefnum kvenna eða jafnrétti kynjanna, og hefur mikið af kröftum UNIFEM á Íslandi beinst að því að auka framlög íslenska ríkisins til þróunarverkefna á vegum UNIFEM, og hafa sam- tökin átt mjög gott samstarf við ut- anríkisráðuneytið,“ bætir Sjöfn við. Af öllu því fjármagni sem varið var til þróunaraðstoðar í heiminum árið 2003 fóru aðeins 4% til verkefna sem höfðu jafnréttismál meðal mark- miða, og aðeins hálft prósent fór í verkefni sem helguð voru jafnrétt- ismálum: „Öll rök mæla með því að auka hlut verkefna sem lúta að jafn- rétti og málefnum kvenna,“ segir Sjöfn. „Bæði fræðimenn, sem og þeir sem starfa við þróunarhjálp við- urkenna að í dag er besta leiðin til að takast á við flest þau vandamál sem hrjá þróunarlöndin að fjárfesta í menntun kvenna, heilsu þeirra og réttindum. Þá eru ónefnd siðferð- isleg rök fyrir því að sinna málefnum kvenna sérstaklega og rétta hlut þeirra, en konur eiga t.a.m. aðeins 1% eigna í heims, þær fá aðeins 10% heimstekna í sinn hlut og þriðja hver kona verður einhvern tíma á lífsleið- inni fórnarlamb kynbundins ofbeld- is.“ UNIFEM á Íslandi býður alla fé- lagsmenn velkomna í húsakynni samtakanna í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, á morgun mánudag milli kl. 17 og 19. Boðið verður upp á jólaglögg og pip- arkökur við bókaupplestur, farsælu starfsári fagnað og kynnt verður ný- útkomið árlegt tímarit UNIFEM á Íslandi. Jafnréttismál | Jólaglögg og bókaupplestur hjá UNIFEM á mánudag milli 17 og 19 30 ár liðin frá stofnun UNIFEM  Sjöfn Vil- helmsdóttir fæddist á Ísafirði 1970. Hún lauk stúdentsprófi frá MÍ 1990, BA- námi í stjórn- málafræði frá HÍ 1996 og MA-námi í alþjóðafræðum frá Háskólanum í Denver 1999. Sjöfn starfaði lengi fyrir Þróun- arsamvinnustofnun Íslands, m.a. sem verkefnastjóri í Namibíu. Hún var sjálfstætt starfandi ráðgjafi við þróunarsamvinnu þar til hún tók við starfi framkvæmdastýru UNI- FEM í júlí á þessu ári. Kalvin & Hobbes GEIMFARINN, SPIFF, NÁLGAST ÓVINASKIPIÐ VERANDI ÓNÁTTÚRULEGA HEIMSK, ÞÁ VEIT VERAN EKKERT AF KOMU HANS HANN RÆSIR BYSSURNAR OG MIÐAR Á ÓVIÐBÚINN ANDSTÆÐINGINN... FRÚ ORMSSON? VARÚÐ! RISAVAXIÐ ÓVINASKIP NÁLGAST Kalvin & Hobbes VÁ! ÖNNUR HOLA Í HÖGGI Kalvin & Hobbes VÁ! ÞRJÚ NÝ TÍMARIT HANDA MÉR Í DAG! ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ FÁ NÝ BLÖÐ! ÉG FÉKK FIMM BLÖÐ Í GÆR AF HVERJU ERTU AÐ FÁ ÖLL ÞESSI TÍMARIT SEND HEIM? ÉG FÓR Á BÓKASAFNIÐ Í GÆR OG FYLLTI ÚT ÖLL BLÖÐIN SEM MAÐUR FINNUR Í MIÐJU TÍMARITINU OG MERKTI VIÐ “FÁ REIKNING HEIM” Litli Svalur © DUPUIS JÆJA, NJÁLL UNDIRFORINGI, HVERNIG GENGUR AÐ GRAFA GÖNGIN? GRÖFTURINN GENGUR HRATT OG ÖRUGGLEGA. GÁÐU BARA SJÁLFUR FORINGI SKAL GERT. SÝNDU MÉR LEIÐINA SKAL GERT! ÖÖÖ... MAMMA ÞÍN HEFUR ÖRUGGLEGA VARAÐ ÞIG VIÐ ÞVÍ AÐ GRAFA GÖNG HAFÐU ENGAR ÁHYGGJUR FORINGI, GÖNGIN ERU STYRKT MEÐ STÓLPUM MÉR SÝNIST VERKIÐ VERA Á UNDAN ÁÆTLUN. ÉG SKAL HJÁLPA ÞÉR UNDIRFORINGI SAMKVÆMT MÍNUM ÚTREIKNINGUM EIGUM VIÐ EINUNGIS FÁEINA SENTÍMETRA EFTIR ÞEIR ERU ALLTAF ÞEIR ERFIÐUSTU. TIL ÞESS AÐ SIGRAST Á ÞEIM ÞURFUM VIÐ VIÐEIGANDI VERKFÆRI SVO SANNARLEGA. VIÐ ÞURFUM ÖFLUGA SKÓFLU TIL ÞESS AÐ SIGRAST Á ÞESSUM SÍÐASTA ÁFANGA ÉG SKAL SJÁ UM ÞAÐ. HÉRNA KEMUR HÚN HÉRNA FORINGI. ÞETTA VERÐUR SÖGULEG STUND. RYDDU VEGIN FYRIR OKKUR! VIÐ VERÐUM AÐ VERA REIÐUBÚNIR. ÞETTA ER ÓVÆNT INNKOMA Í BÚSTAÐ ÓVINARINS EINN... TVEIR... OG... ÞRÍR!! BÚMM!! Leikkonan Cameron Diaz semer kærasta popparans Justin Timberlake hefur viðurkennt að hún laðist stundum kynferðislega að öðrum konum. Hún skammast sín hins vegar ekkert fyrir það. „Ég elska konur og mér finnst þær frábærar og fallegar.“ Að- spurð sagðist hún meira að segja hafa orðinn mjög hrifin af þekktri kynbombu þegar hún var á sínum unglingsárum. „Ég var alveg rosa- lega skotin í Pamelu Anderson,“ sagði hún. „Og ég er það raunar enn, hún er ennþá alveg rosalega flott,“ sagði Diaz í samtali við tímaritið Advocat. Engar fregnir hafa hins vegar borist af því hversu ánægður kærastinn er með þessar yfirlýsingar hennar.    Kynbomban Anna Nicole Smithkom fyrir rétt í San Franc- isco á föstudaginn þar sem rétt- arhöld um arf fyrrverandi eig- inmanns hennar héldu áfram. Smith er nýkomin til Bandaríkj- anna eftir að hafa dvalið á Ba- hama-eyjum þar sem hún fæddi dóttur og þar sem Daniel, tvítug- ur sonur hennar lést. Smith heldur því fram að J. Howard Marshall, eig- inmaður hennar fyrrverandi, hafi ætlað sér eitthvert fé eftir sinn dag, en hvergi er á hana minnst í erfðaskrá hans. Marshall lést árið 1995, níræður að aldri. Þau gengu í hjónaband árið áður, þegar Smith var 26 ára gömul. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.