Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 344. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
STÓR STUTTMYND
SUNDANCE-STUTTMYND ÍSOLDAR VARÐ
ÓVART AÐ SEXTÍU MANNA VEISLU >> 39
6
dagar
til jóla
www.postur.is
20.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum og -pökkum
innanlands
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ANDSTÆÐINGAR forseta Írans,
Mahmouds Ahmadinejads, unnu á í
kosningunum sem fram fóru í landinu
á föstudag. Akbar Hashemi Rafs-
anjani, aðalkeppinautur Ahmadine-
jads í síðustu forsetakosningum, er á
ný orðinn einn af mestu áhrifamönn-
um landsins þar sem allt bendir til að
hann verði langefstur í kjöri til svo-
nefnds sérfræðingaráðs þar sem 86
klerkar eiga sæti.
Ráðið hefur eft-
irlit með störfum
voldugasta manns
landsins, æðsta-
klerksins sem nú
er ajatollah Ali
Khamenei, og
mun kjósa eftir-
mann hans. Rafs-
anjani, sem er 71 árs og talinn hóf-
samari í skoðunum en Ahmadinejad,
virtist ætla að fá helmingi fleiri at-
kvæði en helsti ráðgjafi Ahmadinej-
ads í trúarlegum efnum.
Rafsanjani myndaði að þessu sinni
bandalag með umbótasinnuðum
klerkum sem buðu nú fram sameig-
inlegan lista. Kosið var einnig til
113.000 sæta í sveitarstjórnum og
bættu konur mjög hlut sinn. Í borg-
inni Shiraz var 25 ára gamall háskóla-
nemi, Fatemeh Houshmand, með
flest atkvæði en hún er umbótasinni.
Af um 235.000 frambjóðendum alls
voru um 7.000 konur.
Stuðningsmenn forseta
Írans fóru halloka
Ahmadinejad
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
BILUN varð í Cantat-3-sæ-
strengnum að kvöldi laugardags og
tók tæpar 20 klukkustundir að
ljúka bráðabirgðaviðgerð á austur-
hluta strengsins til Evrópu. Á með-
an voru allir háskólar landsins, að
Hólaskóla undanskildum, Land-
spítalinn – háskólasjúkrahús,
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
og fjöldi rannsóknastofnana net-
sambandslaus við umheiminn.
„Þetta var mjög bagalegt, enda á
stór hluti þess hóps sem við þjón-
ustum í verulegum erlendum sam-
skiptum,“ segir Jón Ingi Einarsson,
framkvæmdastjóri Rannsókna- og
háskólanets Íslands hf. (RHnets).
Tók hann fram að raunar hefði bil-
unin ekki getað orðið á betri tíma,
því mun minni netnotkun væri hjá
hlutaðeigandi stofnunum um helg-
ar. Hann segir uppákomuna þó
hafa verið þarfa áminningu um að
huga þurfi enn betur að fjarskipta-
samskiptum Íslands, enda löngu
orðin þörf á lagningu þriðja sæ-
strengsins. Bendir hann máli sínu
til stuðnings á að hefði eitthvað
komið fyrir Farice-strenginn með-
an Cantat var úti hefði Ísland verið
algjörlega netsambandslaust, því
nokkra daga tekur að tengjast
gervihnöttum.
Bilunin varð í vesturlegg
Cantat-3-sæstrengurinn er sem
kunnugt er annar tveggja fjar-
skiptasæstrengja milli Íslands og
umheimsins. Hann liggur frá Kan-
ada til Bretlands, Danmerkur og
Þýskalands, með leggjum til Ís-
lands og Færeyja. Að sögn Jóns
Inga skiptist strengurinn í austur-
og vesturlegg og hægt er að keyra
annan legginn óháð bilunum í hin-
um. Það kallar hins vegar á sérstak-
ar breytingar á því hvernig raf-
magn er sett inn á kapalinn.
Að sögn Jóns Inga hafa fyrri bil-
anir á Cantat-3 yfirleitt orðið á
austurleggnum, þ.e. frá Íslandi til
Evrópu, og þá hafi aðeins tekið 6–8
klst. að ná sambandi aftur milli Ís-
lands og Kanada. „Þetta er hins
vegar í fyrsta skipti sem bilunin er
vestanmegin,“ segir Jón Ingi. Þess
má geta að bráðabirgðaviðgerð á
vesturhluta sæstrengsins lauk seint
í gærkvöldi, en lokaviðgerð getur
tekið allt að þrjár vikur enda þarf
að gera út sérstakt viðgerðarskip.
Alvarlegt ástand í fjar-
skiptamálum stofnana
Ekkert má út af bregða til þess að
RHnetið verði sambandslaust
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bilun Jón Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri Rannsókna- og háskólanets Íslands hf. (RHnets), í höfuðstöðvum RHnetsins í Tæknigarði í gærkvöldi.
Gazaborg. AFP, AP. | Lýst var yfir vopnahléi
í gærkvöldi í blóðugum átökum vopnaðra
sveita Hamas og Fatah í Palestínu en efa-
semdir voru um að það myndi halda. Deil-
ur hafa verið milli flokkanna tveggja síð-
ustu vikurnar og urðu þær enn heiftarlegri
er Mahmoud Abbas forseti, sem er Fatah-
liði, ákvað á laugardag að boða til forseta-
og þingkosninga innan þriggja mánaða.
Hamas, sem ræður ríkisstjórninni, segir
að um stjórnarskrárbrot sé að ræða, Abb-
as hafi engan rétt til að rjúfa þingið. Sak-
aði Ismail Haniyeh forsætisráðherra Abb-
as um að æsa til frekari úlfúðar með
ákvörðun sinni. Hamas myndi hunsa kosn-
ingarnar.
Ung kona féll í átökunum á Gaza og tug-
ir manna hafa særst síðustu daga. Skotið
var í gær af sprengjuvörpu á skrifstofu
Abbas á Gaza og skotið á bílalaest Hamas-
mannsins Mahmouds Zahars sem er utan-
ríkisráðherra.| 14
AP
Fjandmenn Haniyeh og Abbas.
Ótryggt
vopnahlé
Róm. AFP. | Mörgum hefur leiðst sólarleysið
í þorpinu Viganella í Ossola-dal á Norður-
Ítalíu. Þar búa 185 manns en þorpið er um-
lukið háum fjöllum sem loka fyrir sólarbirt-
una á veturna. En lausnin er fundin.
Geysistór spegill, átta sinnum fimm
metrar að stærð, var settur upp á eitt fjall-
ið. Hann snýst með sólu fyrir tilstuðlan
tölvubúnaðar og endurkastar birtunni á
þorpið.
Tækið kostaði nær 100 þúsund evrur,
rúmar níu milljónir króna. Hugmyndina
átti arkitekt og vinur bæjarstjórans, Pier-
franco Midali. „Ég er búinn að bíða eftir
þessu andartaki í sjö ár,“ sagði Midali.
Sól allt árið
BILUNIN í Cantat-3-sæstrengn-
um varð milli Íslands og Kanada,
u.þ.b. 1.500 km vestur af Íslandi,
á um 3.000 m dýpi. Bilanagrein-
ing bendir til að um svokallaða
einangrunarbilun hafi verið að
ræða. Að öllum líkindum þarf að
kalla til viðgerðarskip til að gera
við bilunina, en slíkt tekur að lág-
marki tvær til þrjár vikur. Bráða-
birgðaviðgerð á austurhluta
strengsins lauk seint í gærkvöldi
og skömmu síðar lauk einnig
bráðabirgðaviðgerð á vesturlegg
strengsins.
Bilun á um 3 þúsund metra dýpi