Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 44
44 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
BNA GEGN JOHN LENNON
THE U.S. VS.
JOHN LENNON
TÓNLISTARMAÐUR. MANNÚÐARVINUR. ÞJÓÐARÓGN.
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
(“PIRATES OF THE CARIBBEAN”)
HÉR ER Á FERÐINNI FRUMLEGASTI SPENNUHASAR ÁRSINS.
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
DÉJÁ VU kl. 6:15 - 9 - 10:30 B.i. 12 ára
BOSS OF IT ALL kl. 8 - 10:10
THE U.S. VS. JOHN LENNON kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 5:50 LEYFÐ
THE NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i. 7.ára
MÝRIN kl. 10:10 B.i. 12.ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára
LA TRAHISON (SVIKIN) kl. 8
BNA GEGN JOHN LENNON
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA
"CRIMSON TIDE"
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
ENDURUPPLIFUNIN
ÓBORGANLEG GRÍNMYND EFTIR LARS VON TRIER UM ÁREKSTRA ÍSLENDINGA
OG DANA, ÞAR SEM FRIÐRIK ÞÓR OG BENEDIKT ERLINGS STELA SENUNNI.
JÓLASVEININN 3
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
HINIR FRÁFÖLLNU eeeSV, MBL
LEIÐIN TIL BETLEHEM
NEMA Á MÝRINAMoggaBíó á mánudögumí bíó1fyrir2 í bíó1fyrir2
Frá framleiðendum og
eeee
S.V. -MBL
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
GÓÐA SKEMMTUN! GLEÐILEG JÓL
JÓNAS : SAGA UM ... M/- Ísl tal. kl. 13:00 LEYFÐ
VALIANT M/- Ísl tal kl. 14:45 LEYFÐ
VIÐ PÖSSUM BÖRNIN Á MEÐAN ÞÚ VERSLAR Í KRINGLUNNI
BÍÓPÖSSUN
JÓNAS : SAGA UM ... M/- Ísl tal. kl. 18:20 LEYFÐ
RACING STRIPES M/- Ísl tal. kl. 16:30 LEYFÐ
Á vegurinn að gæta
ökumannsins?
UNDARLEG finnst mér sú al-
menna skoðun að vegurinn valdi
tjóni. Sú mikilvæga regla virðist
vera gleymd að ökumaður skuli
haga akstri sínum með þeim hætti
að hann geti stöðvað ökutækið á
einum þriðja af þeirri vegalengd
sem er auð og óhindruð framundan.
Þessa reglu þekkja sennilega fæst-
ir orðið en hún er þó afar mikilvæg.
Menn eru nú með kröfu um fjög-
urra akreina braut frá Reykjavík
að Selfossi. Vissulega væri slík
braut æskileg og raunar nauðsyn-
leg fyrir framtíðina. Þriggja ak-
reina braut myndi nægja næstu
átta árin að minnsta kosti og ekk-
ert sem mælir gegn því að þeirri
fjórðu verði bætt við síðar.
Ég vil benda á það að ekki er nóg
að gera sífellt meiri kröfur til
bættra akvega en engar kröfur
gerðar til skynsemi ökumanna. Það
er einmitt skert skynsemi sem
veldur tjóni í flestum tilfellum, öku-
maður metur aðstæður rangt.
Í viðtali um fjögurra akreina
braut yfir Hellisheiði við fulltrúa
frá Selfossi og Hveragerði kvartaði
annar fulltrúinn yfir því að hafa
lent á eftir ökumanni sem ók á 60
km hraða og taldi þetta ótækan
akstursmáta. Miðað við það að á
þessum tíma var lofthitinn frá +1
gráðu og niður í ÷1 gráðu mætti
ætla að þarna hefði aðeins verið
einn maður sem gerði sér grein fyrir
því að við þessar veðurfarsaðstæður
gat verið að vænta glæruhálku hvar
sem er og að 60 km hraðinn við slík-
ar aðstæður væri hámarkshraði til
að tryggja öruggan akstur.
Það er hugarfar ökumannsins sem
skiptir öllu máli varðandi öryggi í
umferðinni.
Guðvarður Jónsson,
Hamrabergi 5, Rvík.
Að vera velkominn!
ÞAÐ geta allir verið sammála því að
hvert það barn sem fæðist inn í
þennan heim sé velkomið. Það sama
á að gilda um viðskiptavini þína. Al-
veg sama hvort þú rekur verslun,
veitingastað, verksmiðju, vinnur í
pósthúsi eða stjórnar hóteli þá viltu
að viðskiptavinurinn finni að hann sé
velkominn til þín. Þeir sem stjórna
slíkum fyrirtækjum ættu að reyna
að hætta að hugsa um viðskiptavini
sem viðskiptavini en hugsa í staðinn
um þá sem gesti sína, alveg sama við
hvað er starfað.
Viðskiptavinir í dag geta verið
ferðamenn, farþegar, skjólstæð-
ingar eða kaupendur en í hvert sinn
sem þeir birtast eru þeir í raun gest-
ir þíns fyrirtækis. Þar sem er gest-
ur, er gestgjafi sem lætur í té sína
gestrisni.
Hugsaðu þess vegna um alla þína
viðskiptavini sem gesti þína.
Þegar ég geng inn á veitingastað
eru það nokkur atriði sem gera það
að verkum að mér finnst ég velkom-
inn:
Upplýsingar – að það sé matseðill
fyrir utan dyrnar.
Hreinlæti – allt frá skyrtu þjóns-
ins til brauðmylsnu á gólfi.
Öryggi – ef ég er í kjallara þá vil
ég sjá neyðarútgang.
Að vera heilsað – einhver ætti að
vita og sjá að ég er á staðnum.
Athygli – ég nenni ekki að sitja
eða bíða mjög lengi.
Vingjarnleiki – það sakar ekki að
brosa.
Hlusta – ég vil að það sé hlustað á
mig.
Hraði – þjónusta, þjónusta, þjón-
usta.
Verð – ég vil borga eðlilegt og
sanngjarnt verð.
Öll þessi atriði hafa áhrif á mig,
jafnvel áður en ég er byrjaður að
borða.
Sem starfsmaður veitingastað-
arins getur þú haft áhrif á sum þess-
ara atriða; sem stjórnandi klárlega
nánast öll atriðin. Lykillinn er að
þegar gesturinn stendur upp og fer
er það ekki aðeins maturinn sem
hann man eftir heldur allt frá vin-
gjarnleika þínum til borðbúnaðar.
Gestrisni er fallegt orð, það þýðir í
raun að þú sért „velkominn“ á stað-
inn og að það verði séð um þig. Fyrir
greinarhöfund er gestrisni listin að
skapa rétt andrúmsloft og að láta
fólki líða vel.
Þetta er hægt að framkvæma
gagnvart hverjum sem er burtséð
frá því sambandi sem þú hefur við
viðkomandi aðila. Hvort sem verið
er að fást við viðskiptavin, ferða-
mann, starfsfélaga eða jafnvel sjúk-
ling. Það skiptir engu máli. Í heimi
gestrisninnar lítum við á alla sem
gesti okkar.
Gestrisni er aðferð til að nálgast
fólk. Hún er aðferð til að fá að þjóna
öðrum með höfðingsskap og í hví-
vetna.
Með þeirri aðferð er hægt að þróa
gæði þjónustu og byggja upp metn-
að og hagnað þeirra fyrirtækja sem
við vinnum fyrir.
Bjarni Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri
Better Business.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Víkverji er geysilegahrifinn af hug-
myndinni um jarðgöng
til að tengja nýju hverf-
in norðan við Reykjavík
við höfuðborgina.
Vissulega er þetta dýr
kostur en hin leiðin,
brúin mikla, er svo fyr-
irferðarmikil og auk
þess svo óhentug að
vetrarlagi að hún kem-
ur varla til mála.
En annað er svo að
þessar framkvæmdir
mega ekki dragast of
lengi. Þá er það ekki
bara umferðarþunginn
dags daglega sem Vík-
verji er að hugsa um heldur útgöngu-
leiðirnar ef skyndilega þyrfti að flytja
íbúana frá Reykjavík í snatri.
Eldfjöllin í grennd við borgina
ættu að minna okkur á að hvenær
sem er geta gos ógnað henni. Vest-
mannaeyingar fengu enga viðvörun
þegar gaus á Heimaey 1973 eftir 5000
ára hvíld.
x x x
Víkverji ætlar að gangast við synd:Hann er dæmalaus klaufi við að
pakka inn jólagjöfum. Allt þvælist
fyrir honum, skærin taka af honum
ráðin og höggva í stað þess að skera,
stærðarhlutföllin reynast óleysandi
gáta þegar reynt er að áætla hve mik-
inn pappír þurfi fyrir
hverja gjöf. Og skreyt-
ingar eins og gull- eða
silfurbönd eru leynd-
ardómar handan við
skilning hans og færni.
Fram til þessa hefur
Víkverji þó látið sig hafa
það. Hann hefur horft
með fyrirlitningu á lata
Ameríkana í kvikmynd-
um sem láta af-
greiðslufólkið sjá um
þetta allt. Vesalingar!
Nenna ekkert að leggja
á sig nema borga.
Leggja ekkert persónu-
legt fram, eru ekkert
nema firrtir neyslufíkl-
ar, vilja fá allt tilbúið í hendurnar,
ekki bara örbylgjumatinn heldur allt,
allt!
Nú finnur Víkverji hvernig varn-
irnar eru smám saman að bresta,
ekki í reynd en hugarfarið er að
breytast. Hann telur í huganum upp
kostina við að láta fagfólkið sjá um
þetta eins og flest annað. Blessuð
börnin hætta að gráta yfir því að fá
illa pakkaða gjöf, fullorðna fólkið
hættir að hlæja að klauafbárðinum,
svo er það allur tímasparnaðurinn.
Svona falla vígin hvert af öðru en
kannski tekst Víkverja að þrauka enn
ein jól og berjast gegn tælandi verka-
skiptingunni. Kannski heldur hann
áfram haus.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er mánudagur
18. desember, 352. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir
þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa
yður. (Matt. 6, 14.)
Leikkonan Angelina Jolie hefur ífyrsta skipti viðurkennt að
hafa fallið fyrir Brad Pitt á meðan
hún var enn gift. Jolie, sem er 31 árs
gömul hitti Pitt fyrst á undibúnings-
fundi fyrir kvikmyndina Mr. and
Mrs. Smith árið 2003 og féll fyrir
honum um leið. Þau urðu síðan mjög
náin við gerð myndarinnar, en Jolie
segir hins vegar að ekkert alvarlegt
hafi gerst á milli þeirra fyrr en eftir
að Pitt hafði skilið við eiginkonu
sína, Jennifer Aniston, árið 2005.
Jolie segir að eftir að hafa unnið
með Pitt í nokkra
mánuði hafi hún
áttað sig á því að
hún var orðin ást-
fangin af honum,
og hún er hand-
viss um að sú til-
finning hafi verið
gagnkvæm. Hún
segist ekki hafa
getað beðið eftir að komast í vinn-
una. „Hvort sem um var að ræða
tökur eða skotæfingar, það skipti
engu máli hvað við gerðum saman,
okkur fannst það allt skemmtilegt.
Við urðum hálfgert par strax. Við
áttuðum okkur svo á því þegar tök-
um á myndinni var að ljúka að það
væri eitthvað alvarlegra í gangi en
við höfðum talið í upphafi.“
Þá segir Jolie að hún vilji setjast
niður með Jennifer Aniston og eiga
við hana gott spjall. Þær hafa einu
sinni hist. „Það var ekkert merki-
legt. Við heilsuðumst og tókumst í
hendur,“ segir hún.
Rapparinn Kevin Federline ætlarað skrifa bók um fyrrverandi
eiginkonu sína, Britney Spears, þar
sem ýmislegt misjafnt um söngkon-
una mun koma fram. Federline og
Spears skildu að borði og sæng í síð-
asta mánuði. Talið er að í bókinni
muni Federline tala um eitur-
lyfjanotkun eiginkonu sinnar fyrr-
verandi, villt partýstand hennar og
Fólk folk@mbl.is