Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 3 Danski landsliðsmaðurinn ClausJensen hefur neitað Fulham um að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við félagið. Jensen kom til Fulham frá Charlton er samningsbundinn Fulham til loka tímabilsins og flest bendir til að hann ætli að róa á önnur mið. Hann hefur verið orðaður við Íslend- ingaliðið West Ham og þá hafa dönsku liðin Bröndby og FC Köben- havn sóst eftir kröftum hans.    Forráðamennþýska knatt- spyrnufélagsins Bayern München hafa í fyrsta skipti léð máls á því að selja enska landsliðsmanninn Owen Har- greaves til Man- chester United. Til þessa hafa þeir aftekið það með öllu, þrátt fyrir ein- dreginn vilja Hargreaves að flytja til Englands, og mikinn áhuga Unit- ed. Verðmiðinn sem Bæjarar hafa sett á Hargreaves er 20 milljónir punda, 2,8 milljarðar íslenskra króna.    Franz „Keisari“ Beckenbauer,sem er forseti Bayern Münc- hen, sagði við enska blaðið Daily Mail í gær að það hefði verið hárrétt að bregðast við óskum Hargreaves eins og gert var í sumar og aftur síð- ar í vetur. „Ef leikmaður er nýbúinn að semja við okkur og reynir síðan að komast til annars félags sem er tilbúið að greiða honum hærri laun höfum við allan rétt á að neita því,“ sagði Beckenbauer. Fólk sport@mbl.is sþjálfari Þjóðverja í yggjur um þessar dir til þess að hann terkustu sveit þegar í Þýskalandi 19. jan- sterkir leikmenn í dir og allt útlit fyrir si af mótinu ef ekki nk von Behren, Jens eika vart með á HM einn sterkasti varn- ssar mundir og Ve- a skyttan. Þá er örv- rian Kehrmann rétt og óvíst hversu mikið ael Kraus er fimmti ralistanum. og vonast til að leik- ari meiðslum í þrem- ur vináttuleikjum sem fram- undan eru, við Ungverja og Egypta. Brand, sem hélt upp á 10 ára starfsafmælið í vikunni, gagnrýnir enn þýsk hand- knattleikslið í viðtölum. Seg- ir hann þau hafa alltof marga útlenda leikmenn innan sinna raða og sum þeirra sinni uppeldisstarfi ekki sem skyldi. Hvorttveggja komi niður á landsliðinu. Segir Brand að svo sé nú komið að aðalmark- vörður þýska landsliðsins á HM, Henning Fritz hjá Kiel, hafi verið þriðji markvörður hjá sínu liði á leiktíðinni. Franskur og sænskur mark- vörður hafi verið teknir framyfir Fritz, sem val- inn var besti handknattleiksmaður heims árið 2005. efur áhyggjur af m og útlendingum Heiner Brand HENRIK Larsson, sænski sóknarmað- urinn sem er í láni hjá Manchester Unit- ed frá sænska liðinu Helsingborg fram í miðjan mars, mun verða hjá United út leiktíðina. Þessu heldur Martin Lipton, blaðamað- ur á Daily Mirror, fram og segir að sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, muni gera allt sem í valdi hans stendur til að fá samninginn við Larsson fram- lengdan. ,,Larsson á eftir að skipta sköpum fyr- ir Manchester United í því markmiði liðs- ins að vinna úrvalsdeildina og meist- aradeildina. Hann er það góður og reyndur leikmaður að United lætur hann ekki fara,“ segir Lipton í blaði sínu og telur að Manchester United sé reiðubúið að greiða Helsingborg dágóðan skilding fyrir að fá að halda Svíanum snjalla út leik- tíðina. Larsson, sem er 35 ára gamall og varð Evrópumeistari með Barcelona á síðasta ári, leikur á morgun sinn fyrsta leik fyrir Man- chester-liðið en sir Alex hefur ákveðið að stilla honum upp í byrjunarliði sínu gegn Aston Villa í bikarkeppninni. Það verður Norðurlandadúett í fram- línu Manchester United á Old Trafford á morgun en Larsson og Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær eiga að sjá um að skora mörkin fyrir United. Larsson er 35 ára og Solskjær 33 ára. Telur að Larsson verði hjá United út tímabilið Henrik Larsson ALLT AÐÚTS ALA 70% AFS L HOL E IN ONE Opnunartími: Mán - fös.................. Laugardaga............... Sunnudaga............... 10 - 18 10 - 16 12 - 16 Hole in One • Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur • Sími: 577 4040 • www.holeinone.is HOLLENDINGURINN René Meu- lensteen sem var ráðinn til danska knattspyrnuliðsins Brøndby sl. sumar hefur fengið sig lausan und- an samningi sínum við félagið að- eins hálfu ári eftir að hann skrifaði undir samning við félagið. Meulen- steen segir í fréttatilkynningu frá félaginu að fjölskylda hans hafi ekki náð að aðlagast dönsku sam- félagi nógu vel og því hafi hann ekki haft ánægju af starfi sínu sem þjálfari liðsins. Íslenski landsliðs- framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson var keyptur til Bröndby frá enska liðinu Stoke City sl. sumar en þar var Meulensteen sem fékk hann til félagsins. Tom Køhlert var í gær ráðinn sem aðalþjálfari félagsins en hann hefur stýrt uppbyggingu og þjálfun á ungum knattspyrnumönnum hjá Bröndby. Køhlert gerði 2½ árs samning við Bröndby í gær. Forsvarsmenn Bröndby sögðu við danska fjölmiðla í gær að ekki hafi verið hægt að standa í vegi fyr- ir brotthvarfi Meulensteen og leggja þeir áherslu á að honum verði ekki kennt um stöðu liðsins í deildarkeppninni og jafnframt að honum hefði ekki verið sagt upp störfum. Bröndby-liðið er í 7. sæti eftir 18 umferðir með 25 stig en lið- ið hefur landað 6 sigrum, gert 6 jafntefli og tapað 6 leikjum. Hasar hjá Bröndby Bikarúrslitaleikurinn verður leikinn í Ósló á laugardaginn og mótherjar Tromsö eru lið Förde, en svo skemmti- lega vill til að liðin mætast síðan í deild- inni næsta laugardag þar á eftir, þann 13. janúar, í Förde. „Ég held að við ættum að vinna þennan leik, við erum með betra lið en í fyrra og breiðari hóp. Það eina sem gæti sett strik í reikning- inn er að strákarnir hjá mér eru víðs vegar að hér í Norður-Noregi á meðan Förde-liðið er mest frá þeim bæ og hef- ur því getað æft yfir öll jólin. Ég gaf mínum strákum smá frí og þeir hafa verið að tínast hingað til Tromsö,“ seg- ir Magnús, sem þjálfaði liðið með góð- um árangri í fyrra og gerði það að bik- armeisturum auk þess sem það náði öðru sætinu í deildinni, tapaði fyrir Kristiansand í úrslitum. „Þetta gekk mjög vel hjá okkur í fyrra og í raun betur núna í ár. Við er- um með svipað lið en ég er kominn með nýjan uppspilara og þetta hefur verið fínt. Það eru ákveðnir hlutir sem ganga betur hjá okkur núna en í fyrra,“ segir Magnús sem getur vel við unað að vera kominn í úrslit í bikarnum annað árið í röð auk þess sem liðið er í efsta sæti í deildinni ásamt Nyborg sem stendur. „Það stendur nú til að breyta því og vonandi verðum við komnir einir í efsta sætið eftir þarnæstu helgi,“ segir Magnús. Tromsö er með 10 stig eftir sex leiki, tapaði einum leik snemma í haust. „Það var á móti Dragvoll í haust þegar við vorum með marga menn meidda,“ segir Magnús. Tromsö á leik til góða á Nyborg sem er núverandi meistari. „Við mætum Förde um aðra helgi í deildinni og þetta er útileikur og við tökum tvo leiki í ferðinni. Við fljúgum til Bergen á föstudegi, keyrum þaðan í þrjá tíma til Förde og spilum á laugardegi. Við keyrum síðan til baka til Bergen og spilum við Nyborg á sunnudeginum. Eftir þá leiki ætlum við að vera komnir einir á toppinn. Ef við spilum eitthvað svipað og við vorum að gera fyrir jólin þá er það ekki spurning að við verðum komnir í fína stöðu eftir þarnæstu helgi,“ segir Magnús. Magnús með Tromsö í bikarúrslitum „NÚ er allt að verða klárt fyrir úr- slitaleikinn í bikarnum sem við ætlum að vinna og verða þar með Konungs- bikarmeistarar annað árið í röð,“ sagði Magnús Aðalsteinsson, íslenskur þjálfari norska blakliðsins Tromsö, í samtali við Morgunblaðið á fimmtu- daginn. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is FJÖLNIR úr Grafarvogi lagði Grinda- vík á útivelli í gær, 85:78, í úrvalsdeild, Iceland Express-deild karla, í körfu- knattleik og var þetta þriðji sigur Fjölnis í deildinni í vetur. Staða liðsins á stiga- töflunni breyttist ekkert og er Reykja- víkurfélagið sem fyrr í næstneðsta sæti eða því 11. með 6 stig en Haukar eru neðstir með 4 stig. Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að hann væri afar stoltur af sínu liði eftir að hafa landað mikilvæg- um stigum á erfiðum útivelli. „Það munaði ekki miklu á liðunum í þessum leik og sigurinn var aldrei öruggur. Við lékum mun betri vörn en við höfum verið að gera og það skiptir að ég held öllu máli fyrir liðið. Aginn í sókn- arleiknum er einnig að skila sér og við erum á ágætri siglingu þessa dagana,“ sagði Bárður en hann hefur upplifað heldur óvenjulegt tímabil þar sem hann hóf tímabilið sem þjálfari ÍR en hætti þar störfum og réði sig síðan sem þjálf- ara Fjölnis eftir að Keith Vassell var sagt upp störfum þar. Það sem er kannski enn merkilegra er að Vassell er nú leikmaður ÍR. „Það var mikil barátta í þessum leik en ég held að þessi sigur sé strákunum í liðinu mjög mikilvægur þrátt fyrir að staða okkar í næstneðsta sæti deildar- innar hafi ekki breyst.“ Bárður hrósaði Herði Axel Vilhjálmssyni fyrir hans framlag en hann lék vel þrátt fyrir að vera með flensu. „Hörður hefur breytt miklu í okkar leik eftir að hann sneri heim frá Spáni eftir skamma dvöl þar sem atvinnumaður. Ég held að öll lið á Íslandi yrðu betri með Hörð í sínum röð- um,“ sagði Bárður en Hörður skoraði 18 stig og gaf 9 stoðsendingar í leiknum. Þjálfarinn sagði að markmið félagsins væri að gera betur í næsta leik. Einfalt en skýrt markmið. „Það koma alltaf nýj- ar áherslur með nýjum þjálfara og ég hef séð strákana taka ákveðnum framförum í þeim atriðum sem ég hef lagt áherslu á frá því ég tók við liðinu. Við ætlum að þoka okkur upp töfluna,“ sagði Bárður. Mikilvægur sigur Fjölnis á útivelli gegn Grindavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.