Morgunblaðið - 21.01.2007, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
N
ÁGRANNARNIR
hafa fátt af henni að
segja þótt þá skorti
að sönnu ekki áhuga
og hún neitar jafnan
beiðnum um viðtöl. Eftir því sem
næst verður komist hafa síðustu 25
árin í lífi Maríu Estelu Martínez ver-
ið heldur viðburðalítil en á því varð
snögg breyting föstudaginn 12. jan-
úar þegar hún var handtekin í Madr-
íd, höfuðborg Spánar, í samræmi við
alþjóðlega tilskipun sem gefin hafði
verið út á hendur henni vegna glæpa
sem framdir voru í heimalandi henn-
ar, Argentínu, er hún gegndi emb-
ætti forseta. María Estela Martínez,
betur þekkt sem Ísabella Peron,
kann að verða framseld til Argent-
ínu 30 árum eftir að forsetatíð henn-
ar lauk með valdaráni hersins.
Ísabellu Peron var sleppt úr haldi
samdægurs eftir að dómarinn Juan
del Olmo hafði gert henni að mæta
aftur fyrir rétt næsta föstudag, 26.
janúar. Skrifstofu Alþjóðalögregl-
unnar, Interpol, í Madríd barst
beiðni um handtöku frá argentínska
dómaranum Hector Acosta en Ísa-
bella neitaði að fallast á að verða
framseld til Argentínu. Hefði hún
fallist á framsal hefði hún verið flutt
tafarlaust til heimalands síns sam-
kvæmt gildandi samningi milli Spán-
ar og Argentínu.
Tilskipun um ógnarverk
Ísabella Peron, sem er 75 ára
gömul, er eftirlýst í Argentínu í
tengslum við hvarf vinstri sinnans
Hector Fagetti Gallego sem var
handtekinn í febrúar 1976, mánuði
áður en herinn batt enda á valda-
skeið hennar.
Yfirvöld í Argentínu telja hvarf
Fagetti tengjast þremur tilskipun-
um sem Ísabella Peron undirritaði
árið 1975 og kváðu á um rétt herafla
landsins til að „brjóta á bak aftur
starfsemi undirróðursmanna“. Í
Argentínu eru tilskipanir þessar nú
lagðar að jöfnu við „ógnarverk af
hálfu ríkisvaldsins“. Del Olmo dóm-
ari gerði Ísabellu grein fyrir ástæðu
handtökunnar og aðspurð kvaðst
hún ekki fallast á framsal til Argent-
ínu.
Yfirvöld þar hafa nú 40 daga til að
fara formlega fram á að ekkja Juan
Perons verði framseld og þurfa að
leggja fram öll þau skjöl sem talin
eru málinu viðkomandi. Málið kann
á hinn bóginn að dragast á langinn
og standi krafan um framsal mun
ráðherraráð spænsku ríkisstjórnar-
innar taka lokaákvörðun um hvort
hún verður flutt til heimalands síns
til að svara þar spurningum rann-
sóknardómara.
„Isabelita“
Líklegt má telja að stjórn sósíal-
ista á Spáni samþykki framsalskröf-
una standist hún allar formkröfur.
Bág heilsa Ísabellu Peron kann á
hinn bóginn að flækja málið líkt og
dæmi eru um. Má í því sambandi
rifja upp að aldur og heilsuleysi
komu í veg fyrir að Augusto Pinoc-
het yrði dreginn fyrir rétt sökum
glæpa herforingjastjórnarinnar sem
hann fór fyrir í Chile á árunum 1973-
1990.
Verður Ísa-
bella Peron
framseld?
ERLENT»
REUTERS
Handtekin Ísabella Peron, fyrrum Argentínuforseti, kemur af fundi dómarans í Madríd. Því er spáð að flókinn
málarekstur kunni að vera í uppsiglingu og vera má að bág heilsa hennar komi til með að hafa áhrif á hann.
REUTERS
Raspútín Jose Lopez Rega, þáverandi ráðherra, ásamt Ísabellu Peron for-
seta í Buenos Aires árið 1975. Lopez Rega var áhugasamur um galdra.
Í HNOTSKURN
»Ísabella Peron sem heitirréttu nafni María Estela
Martínez fæddist 4. febrúar
1931 í La Rioja í norðvest-
urhluta Argentínu.
» Í desember 1955 kynntisthún Juan Peron, sem var
35 árum eldri og hafði þá
gegnt embætti forseta Argent-
ínu í níu ár. Þau gengu í hjóna-
band í Madríd árið 1961.
»Peron sneri aftur til Arg-entínu árið 1973 og í októ-
bermánuði það ár tók hann við
embætti forseta. Hann skipaði
eiginkonu sína varaforseta.
»Peron lést 1. júlí 1974 ogtók Ísabella þá við embætti
forseta. Upplausnarástand
ríkti í landinu og herinn setti
hana af í valdaráni í marsmán-
uði árið 1976. Fimm árum síð-
ar hélt hún í útlegð til Spánar
þar sem hún býr enn.
Erlent | 1974 varð Ísabella Peron forseti Argentínu og ríkti í 20 mánuði. Nú vilja Argentínumenn fá hana framselda.
Svipmynd | Nyamko Sabuni fæddist í Búrúndí og er nú ráðherra í Svíþjóð. Hún hefur verið sökuð um að kveikja
elda með tillögum í málum innflytjenda. Sögustaðir | Fyrsta konan bætist í varðlið Tower of London. Netið | Miðlun án endurgjalds.
VIKUSPEGILL»
Ekkja Juans Perons hefur átt kyrrlátt
líf á Spáni í 25 ár en nú er friðurinn úti
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
NYAMKO Sabuni liggurekki á skoðunum sínumog ummæli hennar umstöðu innflytjenda í
Svíþjóð hafa iðulega valdið upp-
námi. Sabuni tók í októbermánuði
við embætti ráðherra aðlögunar og
jafnréttis kynjanna í ríkisstjórn
borgaraflokkanna í Svíþjóð. Nú
þegar hafa komið fram kröfur um
að Sabuni verði vikið úr embætti
en sjálf vísar hún á bug öllum full-
yrðingum í þá veru að hún sé
öfgamaður. Hún neitar hins vegar
að víkja frá því grundvall-
arviðhorfi sínu að innflytjendur
verði að leggja harðar að sér til að
aðlagast samfélagi Svía.
Sabuni er 37 ára gömul, fædd í
Búrúndí 31. mars 1969. Faðir
hennar, sem er kristinn vinstri
sinni frá Zaire (nú Kongó), dvald-
ist þá þar í útlegð en móðir henn-
ar er múslími.
Fjölskyldan, hjónin og fimm
börn þeirra, fengu með aðstoð
Amnesty International hæli í Sví-
þjóð árið 1981 og settist að í einu
úthverfa Stokkhólms. Sabuni nam
lög og upplýsingafræði í höfuð-
borginni en afskipti af stjórn-
málum hóf hún árið 1995 er hún
gekk til liðs við Þjóðarflokkinn.
Hún er fyrsti ráðherrann í sögu
Svíþjóðar sem er af afrísku bergi
brotinn.
Nyamko Sabuni, sem er gift og
móðir fimm ára tvíbura, tók sæti á
þingi árið 2002 og vakti fyrst veru-
lega athygli í stjórnarandstöðu.
Hún lagði til að sænskum stúlkum
undir 15 ára aldri væri bannað að
bera slæðu að hætti múslíma. Hún
hvatti einnig til þess að ungum
stúlkum yrði gert að gangast und-
ir læknisrannsókn til að unnt væri
að kanna hvort þær hefðu sætt
umskurði. Hún fordæmdi og með
öllu svokallaða „heiðursmenningu“
tiltekinna hópa innflytjenda sem
m.a. hefur getið af sér morð á
ungum stúlkum og kynnti þá til-
lögu að „skipulögð hjónabönd“,
þ.e.a.s. hjónabönd sem ákveðin eru
af foreldrum eða ættarhöfðingjum
án tillits til vilja viðkomandi, yrðu
bönnuð með lögum. Þá kvaðst hún
ennfremur fylgjandi því að öllum
opinberum stuðningi við trúarlega
skóla yrði hætt.
Tillögur Sabuni féllu í grýttan
svörð í röðum innflytjenda og
margir talsmenn þeirra telja
óhæft með öllu að boðberi viðlíka
stefnumála skuli nú gegna ráð-
herraembætti í Svíþjóð. Pólitískir
andstæðingar væna hana um ein-
feldningslegan málflutning sem
fallinn sé til þess eins að kveikja
elda í samfélaginu. Talsmenn
múslíma segja hana hafa svikið
uppruna sinn, kveða áherslur
hennar fallnar til að skapa for-
dóma í garð múslíma og hún leggi
hatur á trú þeirra, íslam. Í nóv-
ember í fyrra sameinuðust 36 sam-
tök múslíma í Svíþjóð um yfirlýs-
ingu þar sem málflutningi Sabuni
var mótmælt og því lýst yfir að í
þeirra röðum nyti hún ekki trausts
sem ráðherra aðlögunar.
Sabuni kveðst hins vegar einskis
iðrast í viðtali sem International
Herald Tribune birti á dögunum.
Réttur, ábyrgð og
„barnfóstrusamfélagið“
Hún telur mjög algengt að fólk
misskilji hugtakið „réttindi“ og fer
ekki í launkofa með að þetta telur
hún gilda um marga innflytjendur
í Svíþjóð. „Menn telja að trúfrelsi
feli í sér að þeir geti gert hvað
sem er í nafni trúarinnar og að
hugtakið „mannréttindi “ feli í sér
að þeir geti hagað sér sem þeim
sýnist gagnvart öðrum.“ Þessari
nálgun kveðst hún hafna með öllu.
„Vilji þeir búa hér, eignast börn
og barnabörn, verða þeir að leggja
á sig það sem þarf til að aðlagast
því samfélagi sem þeir tilheyra.“
Sabuni telur aðlögun, tungu-
málanám og virðingu fyrir ríkjandi
háttum ekki fela í sér kröfu um að
innflytjendur hafni uppruna sínum
og sérkennum.
Ráðherrann nýi segist hafa
miklar efasemdir um „barnfóstru-
samfélagið“ sem þróast hafi í Sví-
þjóð. Tækifæri og réttindi feli
einnig í sér skyldur og ábyrgð.
Hún kveðst aldrei hafa litið á
sjálfa sig sem fórnarlamb að-
stæðna og segist ekki hafa orðið
fyrir mismunun eða útskúfun í
samfélaginu. Að vísu segir hún að
hún hafi iðulega ekki fengið þau
störf sem hún sótti um en kveðst
Á móti straumnum
Róttæk Nyamko Sabuni er um flest óhefðbundinn stjórnmálamaður. Hún
telur þörf á afgerandi viðbrögðum til að tryggja aðlögun innflytjenda.
SVIPMYND»