Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						10 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

ALÞINGI

Tilboð 16. - 25. febrúar

         frá 3.550 kr.

522 44 00   www.hertz.is

ÍSLENSKA

 SIA.IS

 HER 36252 02.

2

0

0

7

Safnaðu

Vildarpunktum

Nýtt símanúmer  522 44 00

á sólarhring; 100 km akstur, 

kaskótrygging og skattur innifalin.

Óbeit á klámiðnaðinum 

Eftir Höllu Gunnarsdóttur

halla@mbl.is

?ÉG HEF óbeit á klámiðnaðinum og öllum afurðum

hans,? sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi í

gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður Samfylk-

ingarinnar, óskaði svara við því hvað ríkisstjórnin og ráð-

herrar hygðust gera eða hefðu gert vegna fregna af

klámráðstefnu sem ætlað er að fari fram hér á landi 7.?

11. mars nk.

Ingibjörg sagði að svo virtist sem um hvataferð væri

að ræða þar sem viðskiptatengsl væru efld og reynt að

þróa nýjar viðskiptahugmyndir. ?Klámiðnaðurinn er eins

og við öll vitum órjúfanlega tengdur bæði vændi og man-

sali og þetta hvort tveggja eru hliðargreinar í klámiðn-

aðinum,? sagði Ingibjörg og bætti við að um meiðandi

iðnað væri að ræða sem bryti bæði gegn mannhelgi og

kynfrelsi fólks. ?Þegar um það er að ræða að 150 aðilar

hyggjast koma hingað til lands í hvataferð snýst málið

um siðræn viðhorf og ekki lagatæknileg og þó að ég geri

mér alveg grein fyrir því að þetta viðfangsefni sé ekki al-

veg einfalt er það einu sinni þannig að þar sem er vilji,

þar er vegur,? sagði Ingibjörg og velti því upp hvort

stjórnvöld ættu ekki að koma þeim skilaboðum áleiðis að

ráðstefnugestir væru ekki velkomnir hér á landi.

Geir H. Haarde taldi ekki ástæðu til þess þrátt fyrir að

hann, líkt og flest venjulegt fólk, hefði andstyggð á klám-

iðnaðinum, sérstaklega þar sem ill meðferð á börnum

kæmi við sögu. ?Mín persónulega skoðun sem ég var að

lýsa og sem áreiðanlega flestir þingmenn deila getur hins

vegar vart gefið tilefni til að hefta för þessa fólks nema

ljóst sé að um ólöglegt athæfi af þess hálfu sé að ræða eða

slíkt sé í uppsiglingu,? sagði Geir en bætti við að lög-

reglan hefði málið til umfjöllunar. ?Ég vænti þess að ef

ólöglegt athæfi sannast með einhverjum hætti á þessa

aðila eða áform um slíkt muni lögreglan grípa í taumana

með viðeigandi hætti.?

L52159 Ingibjörg Sólrún vill að stjórnvöld sendi út skilaboð um 

að gestir klámráðstefnu séu ekki velkomnir L52159 Forsætisráð-

herra segir nóg að lögreglan grípi í taumana ef þarf

Morgunblaðið/RAX

Vill skýr skilaboð Ingibjörg Sólrún vill að stjórnvöld

sendi gestum klámráðstefnu skýr skilaboð.

MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ

er með til skoðunar að sameina

Iðnskólann í Reykjavík og Fjöl-

tækniskóla Íslands. Þetta kom

fram í svari Þorgerðar Katrínar

Gunnarsdóttur menntamálaráð-

herra við fyrirspurn Jóns Bjarna-

sonar, þingmanns Vinstri grænna,

í óundirbúnum fyrirspurnartíma á

Alþingi í gær. Þorgerður sagði

hugmyndina koma frá þeim sem

standa að Fjöltækniskóla Íslands

en þar hafi einkavæðing skilað

mjög góðu. Þá hafi Samtök iðn-

aðarins og skólameistari Iðnskól-

ans einnig rætt um málið við

menntamálaráðherra auk þess

sem Kennarasambandi Íslands

hafi verið greint frá hugmyndinni.

Jón Bjarnason sagði skýra

kröfu að málið kæmi til umfjöll-

unar á Alþingi og að mennta-

málaráðherra fengi ekki að ráðsk-

ast með skólann sem hann væri

hennar einkamál. ?Ég veit ekki

annað en þessi stærsti iðnskóli

landsins, stærsti framhaldsskóli

landsins, hafi gengið mjög vel. Að-

alvandinn hefur verið fjárskortur,

sem hefur einmitt verið eitt af

vandamálunum hjá þessari rík-

isstjórn, hve naumt fé hefur verið

skammtað til starfsnámsins.? 

Iðnskólinn einkavæddur?

ENGIR fjármunir eru ætlaðir til

lagningar göngu- og hjólreiðastíga

í nýrri samgönguáætlun. Þetta kom

fram í máli Þórunnar Sveinbjarn-

ardóttur, þingmanns Samfylking-

arinnar, í umræðu um samgöngu-

áætlun fyrir árin 2007?2010 á

Alþingi í gær en í síðustu viku var

rætt um áætlun fram til ársins

2018. Þórunn sagði nauðsynlegt að

gera ráð fyrir sérstökum fjár-

munum til lagningar göngu- og

hjólreiðastíga en að hvorug áætl-

unin gerði það. ?Það eru hins vegar

í þessari áætlun sem hér um ræðir

240 milljónir til að leggja reiðvegi.? 

Sturla Böðvarsson samgöngu-

ráðherra sagðist telja að kostnaður

við lagningu göngu- og hjólreiða-

stíga ætti í framtíðinni að vera hluti

af kostnaði við almenna vegagerð.

Næsta verkefni hlyti að vera að

skipuleggja hvar ætti að gera ráð

fyrir hjólreiðabrautum og göngu-

stígum en að nokkuð langt væri í

land í þeim efnum. ?Við höfum ekki

gert ráð fyrir þessu hingað til, nú

erum við að opna á þetta og þar

með þurfa sveitarfélögin og ríkið

að sameinast um það að leggja á

ráðin um hvernig staðið verður að

þessu,? sagði Sturla og bætti við að

þetta væri bæði flókið mál og kostn-

aðarsamt.

Morgunblaðið/Ásdís

Engir hjólreiðastígar 

í samgönguáætlun

? Þingfundur stóð fram eftir kvöldi í

gær enda drógust umræður um sam-

gönguáætlun á langinn. Í aðdrag-

anda kosninga þurfa þingmenn vit-

anlega að fylgjast sérstaklega vel

með málefnum eigin kjördæma og

þar vega samgöngumálin þungt.

Áætlunin nær fram til ársins 2018

og kostnaður við framkvæmdir er

áætlaður rúmlega 380 milljarðar. Til

samanburðar má nefna að tekjur rík-

issjóðs fyrir árið 2007 eru áætlaðar

376 milljarðar. 

Samgöngur hitamál

? Heilbrigð-

isráðherra mælti

fyrir frumvarpi um

greiðslur fjár-

magnstekjuhafa í

Framkvæmda-

sjóð aldraðra á

þingi í gær. Fólk

sem aðeins greið-

ir fjármagns-

tekjuskatt hefur

hingað til verið undanþegið greiðslu í

sjóðinn en um er að ræða nefskatt

upp á rúmar sex þúsund krónur á ári.

Umræddur skattur komst í hámæli í

tengslum við nýsamþykkt lög um Rík-

isútvarpið ohf. en samkvæmt þeim

munu sömu reglur gilda um greiðslur

til RÚV og í Framkvæmdasjóð aldr-

aðra. 

Nefskattur fyrir alla

Siv Friðleifsdóttir 

? Kristinn H. Gunnarsson sat sinn

fyrsta fund með þingflokki Frjáls-

lynda flokksins í gær, sama dag og

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir,

sem nú er óháð en var áður í Frjáls-

lynda flokknum, tók sæti Gunnars

Örlygssonar, fyrrum þingmanns

Frjálslyndra og núverandi þingmanns

Sjálfstæðisflokks. Frjálslyndi flokk-

urinn er nú orðinn stærri en í upphafi

kjörtímabilsins og hefur nú fimm

þingmenn, eða jafnmarga og Vinstri

græn.

Fjör hjá Frjálslyndum

Einar K. Guðfinnsson | 18. febrúar

Ógn við lýðræðið?

Einn mesti galli við

þjóðaratkvæða-

greiðslur er að þær eru

mikil freisting fyrir

stjórnmálamenn að

skjóta sér undan því að

taka afstöðu. Þetta er

vel þekkt fyrirbrigði í öðrum lönd-

um. Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa

því tilhneigingu til að gera línur

stjórnmálanna óskýrari. Þjóð-

aratkvæði geta þess vegna stuðlað

að óskýrara og ólýðræðislegra vali

fyrir vikið. Vegna þess að í stjórn-

málum eiga kjósendur kröfu á að lín-

ur séu skýrar.

Meira: www.ekg.is

Kolbrún Halldórsdóttir | 16. febrúar

Tilboð um kynlíf

með börnum

Íslensk löggjöf leggur

refsingu við innflutn-

ingi, sölu og dreifingu

á klámi. [?] Íslensk

stjórnvöld eru einnig

skuldbundin sam-

kvæmt alþjóðlegum sáttmálum til að

beita sér í baráttunni gegn mansali.

Það er alkunna að klámiðnaðurinn

er viðriðinn refsiverða starfsemi af

því tagi og því teljum við nauðsyn-

legt að íslensk stjórnvöld bregðist

nú við í þágu þeirra kvenna og barna

sem slíkir samningar eiga að vernda.

Þegar heimasíða kaupstefnunnar er

skoðuð, http://www.snowgather-

ing.com/, sést glögglega hvers konar

fyrirtæki það eru sem að henni

standa. Á tenglum inn á heimasíður

þeirra blasa m.a. við tilboð um kynlíf

með börnum, sem hvorki kunna

ensku eða vita nokkuð um það á

hverju þau eiga von. 

Íslensk stjórnvöld hafa áður beitt

sér á svipaðan hátt og hér er óskað

eftir. Það gerðu þau árið 2004 þegar

komið var í veg fyrir að fjöldi vít-

isengla kæmi inn í landið til hátíð-

arhalda, sem þá voru fyrirhuguð. Í

því tilfelli sem hér um ræðir ættu að

gilda sambærileg rök og er því hvatt

til aðgerða sem forðað geta því að

fyrirhuguð kaupstefna klám-

framleiðenda verði haldin á Íslandi.

Meira: www.althingi.is/kolbrunh

ÞETTA HELST ... ÞINGMENN BLOGGA

Þingfundur hefst kl. 13.30 í dag.

M.a. verður rætt um breytingar á

neytendaverndarlögum og mælt

fyrir frumvarpi um tollkvóta við

innflutning landbúnaðarafurða. 

Dagskrá þingsins

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52