Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 11

FRÉTTIR

UM fjörutíu manns voru viðstaddir

á Egilsstöðum þegar Áki Ármann

Jónsson veiðistjóri stjórnaði út-

drætti umsókna um hreindýra-

veiðileyfi fyrir næstu veiðivertíð í

haust. Einnig var fylgst með út-

drættinum í gegnum fjar-

fundabúnað í Reykjavík, á Ak-

ureyri og í Neskaupstað. 2.731

umsókn barst um veiðileyfi, þar af

voru 2.630 gildar. 1.100 leyfi eru í

pottinum. 37 umsóknir bárust er-

lendis frá. 

Útdrátturinn er algjörlega sjálf-

virkur og unninn með tölvuforriti.

Dregið er um hvert svæði fyrir sig

og tarfa og kýr á hverju þeirra.

Byrjað var að draga úr umsóknum

á svæðum 1 og 2 og svo koll af

kolli og birtust nöfn hinna heppnu

jafnóðum. Þá er sérstakur biðlisti,

en Áki sagði að jafnaði skilað inn

20 til 30 leyfum á vinsælustu svæð-

unum. Þeir sem fengu veiðileyfi

eða eru á biðlista fengu tölvupóst

þar um í nótt og snemma í morgun.

Sex umsækjendur hafa ekki fengið

leyfi 5 ár í röð og 11 ekki 4 ár í röð

svo útdrátturinn virðist tryggja

ágæta dreifingu.

Dregið um hreindýra-

veiðileyfi í gærkvöld

Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir

Veiðigleði Eftirvænting ríkti þegar Áki Ármann Jónsson hóf útdrátt.

SAMTÖKIN Betri byggð furða sig á

því að í samgönguáætlun, sem nú

liggur fyrir Alþingi, skuli gert ráð

fyrir því að Reykjavíkurflugvöllur

verði áfram í Vatnsmýrinni.

Í stefnumótunarkafla samgöngu-

áætlunar segir: ?Reykjavíkurflug-

völlur verði áfram miðstöð innan-

landsflugsins og þar rísi

samgöngumiðstöð.? Þetta er ótíma-

sett og gildir því til ársloka 2018.

Samtökin Betri byggð benda á að

gríðarleg barátta hafi átt sér stað á

undanförnum árum og áratugum,

innan flokka sem utan, fyrir því að

flugvöllur víki úr Vatnsmýrinni og að

þar rísi miðborg höfuðborgarinnar.

Þessi barátta hafi skilað þeim ár-

angri að fjórir af fimm flokkum sem

buðu fram í Reykjavík sl. vor, höfðu

þá stefnu að flug skuli víkja úr

Vatnsmýrinni eigi síðar en árið 2016.

Samtökin spyrja hvort borgaryf-

irvöld ætli að ?kokgleypa þessa til-

skipun? frá samgönguráðuneytinu

þvert á stefnu sína í kosningabarátt-

unni. 

Samtökin gagnrýna það sem þau

kalla ægivald samgönguyfirvalda á

skipulagsmálum höfuðborgarinnar.

Vilja ekki

samgöngu-

miðstöð

???

Sigurliðið fagnar góðum árangri

Frábær liðsheild, metnaður og góður stuðningur hefur fært

Haukastelpunum bikarinn enn á ný! 

Við þökkum þeim sem þáðu boð Actavis og studdu stelpurnar 

á úrslitaleiknum í Laugardalshöll á laugardaginn.

Actavis er öflugur stuðningsaðili körfuknattleiks á Íslandi

Til hamingju 

Haukar!

FÉLAGASAMTÖKIN Blátt áfram

munu í samvinnu við Íslenska fjalla-

leiðsögumenn bjóða íslenskum fyr-

irtækjum og einstaklingum sam-

starf við að taka þátt í

áheitaferðum. 

Hér er um að ræða nýjung á Ís-

landi og er tilgangurinn sá að

byggja upp fólk og fræða það og

efla um leið forvarnir gegn kyn-

ferðislegu ofbeldi gegn börnum.

Fyrirtæki, hópar eða ein-

staklingar geta ákveðið að styrkja

Blátt áfram með áheitasöfnun og

taka sér um leið eitthvað það fyrir

hendur, sem fólk hefur hingað til

talið sér ofvaxið. Sem dæmi má

nefna að ganga á Hvannadalshnúk,

hjóla yfir hálendið eða að fara í

langar gönguferðir. Einnig eru í

boði ferðir erlendis, til dæmis að

ganga á fjall í Afríku, þríþraut,

maraþon og margt fleira.

Íslenskir fjallaleiðsögumenn eru

ferðaþjónustufyrirtæki, sem skipu-

leggur útivist og fjallaferðir, en

Blátt áfram er forvarnaverkefni

gegn kynferðislegu ofbeldi gagn-

vart börnum. 

Áheitaferðir 

Blátt áfram 

SKÓLASTJÓRAFÉLAG Reykja-

víkur hefur sent frá sér ályktun þar

sem harmað er að sveitarfélögin og

kennarar hafi ekki náð samkomu-

lagi um framkvæmd endurskoðun-

arákvæðis kjarasamningsins.

Félagið lýsir yfir áhyggjum sín-

um komist aðilar ekki að sameig-

inlegri niðurstöðu varðandi endur-

skoðunina, en fátt bendir til þess í

dag að sátt sé innan seilingar. Deil-

an er núna hjá ríkissáttasemjara.

Áhyggjur skólastjórnenda í

Reykjavík beinast fyrst og fremst

að því hvaða áhrif deilan hefur á

allt skólahald. Hún geri það erf-

iðara bæði fyrir starfsmenn og

nemendur.

Félagið bendir á að nú sé und-

irbúningur stjórnenda að skipu-

lagningu næsta skóaárs að hefjast,

m.a. með starfsmannaviðtölum við

kennara. ?Öllum má ljóst vera

hvaða áhrif deilan hefur á afstöðu

kennara til vinnuveitandans og

starfsins.?

Félagið hvetur samningsaðila að

taka upp viðræður og forða því að

sagan frá 2004 endurtaki sig.

Skólastjórar

áhyggjufullir

???

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52