Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						20 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

AUSTURLAND

Neskaupstaður | Blús-, rokk- og

jazzklúbburinn á Nesi (BRJÁN) fer

nú 10. árið í röð með rokkveislu árs-

ins til Reykjavíkur og sýnir á Broad-

way föstudaginn 23. febrúar n.k.

Sýningin, sem tileinkuð er hljóm-

sveitinni Queen, var sýnd fjórum

sinnum sl. haust í Egilsbúð í Nes-

kaupstað fyrir fullu húsi. Auk tónlist-

armanna úr Brján syngur Norðfjarð-

arvinurinn Jón Jósep Snæbjörnsson

stórt hlutverk í sýningunni og einnig

mun Erla Ragnarsdóttir, oft kennd

við Dúkkulísurnar, troða upp. Á efn-

isskrá eru mörg vinsælustu lög

Queen.

Að sögn Guðmundar R. Gíslasonar

hjá Brján hefur aðsókn á Broadway

alltaf verið góð þegar Brján hefur

skemmt þar. ?Rokkveisla Austfirð-

inga er eins konar árshátíð brott-

fluttra sem búa í Reykjavík. Einnig

hefur það færst í aukana að þeir sem

búa fyrir austan fari til borgarinnar

til að hitta ættingja og vini af þessu

tilefni,? segir Guðmundur. Marías B.

Kristjánson skólastjóri Nesskóla er

einn af forsprökkum sýningarinnar

og spilar á trommur. ?Þetta er góður

og samheldinn hópur. Við ætlum þó

að hvíla rútuferðir í ár og fljúga suð-

ur. Oft hefur það gerst að þegar við

förum keyrandi koma dýpstu lægðir

ársins upp að landinu. Í fyrra þurft-

um við að stoppa í Freysnesi og héld-

um uppi stuðinu fyrir 5 bílstjóra sem

þar voru líka veðurtepptir og í fyrstu

suðurferðinni komst hluti hópsins

suður, en hinir voru veðurtepptir á

Hornafirði yfir helgi.?

Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir

Innlifun ?Ein skemmtilegasta sýningin sem ég hef tekið þátt í,? sagði Jón Hilmar Kárason (t.h.) sem hér sést ásamt Viðari Guðmundssyni taka Queen-sóló

í Egilsbúð, Neskaupstað af stakri snilld. Næst sýnir BRJÁN drottningartakta sína á sviðinu á Broadway í Reykjavík á föstudagskvöldið.

Drottningin á svið í borginni

Stuð Jón Jósep Snæbjörnsson, bet-

ur þekktur sem Jónsi í Svörtum föt-

um, þenur raddböndin langleiðina

að raddstyrk Freddies heitins

Mercury?s.

Í HNOTSKURN

»

Blús-, rokk- og jazzklúbb-

urinn á Nesi (BRJÁN) fer nú

10. árið í röð með rokkveislu árs-

ins til Reykjavíkur og sýnir á

skemmtistaðnum Broadway á

föstudagskvöld.

»

Sýningin er tileinkuð stór-

hljómsveitinni Queen og öll

bestu laga hennar flutt með til-

þrifum af hörkugóðu tónlist-

arfólki.

Reyðarfjörður |

Framkvæmdir

við byggingu ál-

vers Alcoa

Fjarðaáls eru nú

á seinni stigum.

Undanfarið hafa

ýmsar forprófan-

ir farið fram í

spennistöð og

straumi verið

hleypt tímabund-

ið á raflínur í tilraunaskyni. 

Við lofthreinsivirki er verið að

ljúka við að koma fyrir köplum og

fyrstu tveir af sex hlutum virkisins

þegar verið afhentir undirbúnings-

teymi Alcoa. Á næstu vikum verða

síðan hinir 4 hlutarnir afhentir. Í

steypuskála er verið að ljúka við að

steypa gólf, setja saman álsteypuvél-

ar og tengja litla spennistöð við

steypuskálann. Stefnt er á að búið

verði að klæða steypuskálann utan

seint í mars. 

Afhenda skautsmiðju í vikunni

Í vikunni verður rafstraumi hleypt

á skautsmiðju álversins og hún af-

hent Alcoa. Á næstu dögum mun

framkvæmdum við allt flutnings-

kerfi súráls, þ.e. allt frá bryggjunni

og í súrálsgeyminn, ljúka. Undirbún-

ingsteymi Alcoa hefur tekið við

fyrstu 22 kerunum í kerskálanum, en

enn er verið að setja ker niður í þeim

báðum. Í þessari viku lýkur öllum

framkvæmdum í fyrstu fjórðungum

þeirra. Vinna fyrirtækisins Atafls við

skrifstofubyggingu Alcoa gengur vel

og áætlað er að fyrsti hluti bygging-

arinnar verði afhentur undirbún-

ingsteymi Alcoa um miðjan mars. 

Skaut-

smiðjan

tilbúin

Þáttaskil í álvers-

framkvæmdinni.

Hofsós ? Viggó Einarsson útgerð-

armaður á Hofsósi og eigandi fyr-

irtækisins Sjóskips keypti seint á

síðasta ári 60 tonna bát frá

Hvammstanga. Báturinn var upp-

haflega smíðaður á Seyðisfirði og

hét áður Harpa en heitir nú Óskar

og ber einkennisstafina SK 131. Tíð-

indamaður Versins hitti Viggó í

bátnum þar sem hann lá við bryggj-

una á Hofsósi en þá var verið að

gera allt klárt um borð til að hefja

línuveiðar.

,,Það er búið að stunda ýmiskonar

veiði á þessum bát í gegnum tíðina,

rækju, snurvoð og net, en undanfar-

ið hef ég verið að gera hann kláran

fyrir línuveiði. Ég var með hann í

Siglufirði á dögunum. Var að láta þá

hjá JE-vélaverkstæði breyta svo-

litlu, setja nýjan spilbúnað og svo

höfum við áhöfnin verið að vinna í

honum, erum að breyta þannig að

við komum fleiri körum fyrir. Við

ætlum að kæla allan afla í ískrapa,

þá er fiskurinn um mínus einnar

gráðu kaldur þegar hann kemur í

land. Þannig teljum við okkur koma

með úrvalshráefni að landi. Þannig

vilja þeir fá vöruna sem eru að flytja

út ferskan fisk með flugi,? sagði

Viggó.

Hann sagði að þeir yrðu fjórir á

bátnum. Þeir eru þegar búnir að

fara nokkra róðra á honum og það

gekk ágætlega og nægur fiskur.

Viggó segir að stefnan sé að róa

með einfalda setningu sem eru 42

balar í róðri. Þá er skilyrðið að róð-

urinn sé ekki lengri en einn sólar-

hringur til að ná línuívilnuninni.

Hann segist hafa farið út í þetta til

að tryggja stöðugra hráefni og svo

verður hann ekki eins háður veðri

og áður, en gamli báturinn sem

hann hefur gert út undanfarin ár er

aðeins 12 tonn. Aflinn mun að sjálf-

sögðu fara að hluta til í fiskvinnsl-

una sem Viggó rekur á Hofsósi en

eitthvað mun væntanlega fara í

vinnslu á Sauðárkróki og á markaði. 

Sextíu tonna skip er

nú gert út frá Hofsósi 

Ljósmynd/Örn Þórarinsson

Báturinn Óskar SK er 60 tonna bátur og var keyptur frá Hvammstanga

Úgerðarmaðurinn Viggó Einarsson útgerðarmaður á Hofsósi og eigandi

fyrirtækisins Sjóskips um borð í Óskari.

Grímsey ? Fólk flykktist frá fasta-

landinu til að taka þátt í þorra-

blóti Kvenfélagsins Baugs sem er

stærsta hátíð ársins hér í nyrstu

byggð og mikil gleðisamkoma.

Ferjan Sæfari sigldi með yfir 30

farþega hingað og Flugfélag Ís-

lands þurfti að fljúga tvær ferðir

á sunnudeginum milli Akureyrar

og eyjar til að ferja þorrablóts-

gestina. Já, það var mikil

stemmning í félagsheimilinu Múla

með um eitt hundrað gesti og

einstakan þorraanda. Þær voru

fjórar kvenfélagskonurnar sem

báru hitann og þungann af

skemmtuninni, Rannveig Vil-

hjálmsdóttir, Steinunn Stef-

ánsdóttir, Stella Gunnarsdóttir og

Þorgerður Einarsdóttir. Veislu-

stjóri kvöldsins var Kári Þorleifs-

son, ættaður úr Grímsey, snjall

og fyndinn ungur maður. Hljóm-

sveitin Bylting frá Akureyri lék

fyrir dansi fram á rauðan morg-

un. Hápunktur kvöldsins var leik-

rit samið af þorrablótsnefndinni ?

Jólamessan ? kölluðu þær það og

léku öll hlutverkin sjálfar við

mikinn fögnuð þorrablótsgesta.

Morgunblaðið/Helga Mattína

Skemmtanir Þorrablótanefnd Baugs: Þorgerður Einarsdóttir, Steinunn

Stefánsdóttir, Stella Gunnarsdóttir og RannveigVilhjálmsdóttir.

Þorrinn blótaður á

heimskautsbaugnum

LANDIÐ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52